Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 38
Vikublað 30. september–2. október 201438 Fólk
Hildur Líf
mormóni
Hin nýgifta Hildur Líf Higgins,
stílisti og förðunarfræðingur, nýt
ur lífsins og hveitibrauðsdaganna
á Ítalíu ásamt eiginmanni sínum,
bandaríska íþróttamanninum og
lögfræðinemanum Albert Higgins.
Samkvæmt heimildum DV
kom Higgins eiginkonunni á
óvart með ferðalaginu. Hjóna
kornin gengu í það heilaga fyrr í
mánuðinum. Um fallega athöfn
var að ræða sem fram fór að
kvöldi til úti í náttúrunni.
Hildur gekk til liðs við kirkju
Jesús Krists fyrir tveimur árum og
er því mormóni í dag líkt og eigin
maður hennar.
„Hún segir að ég
sé rómantískur“
n Haraldur og Birna trúlofuðu sig í síðustu viku n Bónorðið var skyndiákvörðun
É
g held að hún hafi sofið með
brosið á andlitinu, ef brosið
er ekki bara fast. Hún er ör
ugglega komin með harð
sperrur í kinnarnar,“ seg
ir Haraldur Einarsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, sem trú
lofaðist kærustunni sinni, Birnu
Harðardóttur, á afmælisdaginn
sinn, síðastliðinn miðvikudag. Að
biðja Birnu þennan dag var hálf
gerð skyndiákvörðun hjá þing
manninum unga, en hann var þó
fyrir löngu orðinn viss um að hann
vildi eyða ævinni með henni.
Þurfti ekki að segja neitt
„Ég hef nú aldrei haldið mikið upp
á afmælisdaginn minn, en ég veit
að hún er mikil afmælisstelpa og
afmæli eru hátíð fyrir henni.“ Har
aldur segir Birnu hafa skemmt
sér mjög vel við að skipuleggja
afmælis daginn hans og skyndilega
fann hann að þetta væri rétti tím
inn. „Ég ákvað þetta seinnipart
inn á afmælisdaginn minn, að ég
myndi láta verða að þessu. Fór og
keypti hringinn um hálf sex leytið
og svo fórum við saman út að borða
um átta.“ Þegar á veitingastaðinn
var komið gekk Haraldur beint til
verks, en fór þó ekki niður á hnén,
eins og hann ætlaði að gera. „Ég dró
þarna öskju með málmhlut í upp
úr vasanum og hún varð orðlaus og
dolfallinn. Ég fékk svo já eftir nokk
ur tár. Hún vissi hvað þetta þýddi
greinilega og ég þurfti ekki að segja
neitt.“ Þegar blaðamaður spyr hvort
Haraldur hafi þá í raun aldrei borið
upp þá spurningu hvort Birna vildi
giftast honum, fer hann að hlæja og
segist ekki muna það. „Aðstæðurn
ar voru einhvern veginn þannig að
þær sögðu það fyrir mig.“
Unnustan strax farin að plana
brúðkaup
Að sögn Haraldar er Birna strax far
in skipuleggja brúðkaupið, en sjálf
ur er hann frekar rólegur yfir þessu
öllu saman. „Hún er ekki eina
stelpan sem fer strax á flug þegar
svona gerist. Hún búin að bera upp
fullt af flóknum spurningum við
mig, en ég viðurkenni það að ég var
ekki búin að hugsa neitt lengra en
þetta.“ Birna er hins vegar farin að
skoða hentugan tíma fyrir brúð
kaup næsta sumar eða sumarið þar
á eftir. „Hún er farin að bera þess
ar tillögur upp en ég hef ekki hug
mynd um svarið,“ segir Haraldur og
slær á létta strengi. Hann hefur þó
engar áhyggjur af því að þau komist
ekki að sameiginlegri niðurstöðu
með tímanum.
Alltaf hægt að gleðja
elskuna meira
Þau eru ekki búin að vera lengi
saman, en þau kynntust úti á lífinu
snemma á þessu ári og fóru að
rugla saman reytum í lok febrúar.
„Okkur líður samt eins og sam
bandið sé búið að vara mun lengur
en bara þetta ár. Við náum mjög vel
saman og ég er allavega viss í minni
sök. Væntanlega hún líka fyrst hún
sagði já,“ segir Haraldur. Aðspurður
hvort hann sé rómantískur að eðlis
fari, vill hann ekki meina það. En
rómantíkin leynist líklega inni við
beinið. „Hún segir að ég sé róman
tískur, en mér finnst að ég mætti al
veg bæta mig. Ég veit samt ekki við
hvað ég á að miða. Maður reynir
að gera það sem maður getur fyrir
elskuna sína, en það er örugglega
alltaf hægt að gleðja hana meira,
og veita henni það sem hún óskar
sér,“ segir ástfangni þingmaðurinn
að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Hún búin að bera
upp fullt af flókn-
um spurningum við mig,
en ég viðurkenni það að
ég var ekki búin að hugsa
neitt lengra en þetta.
Nýtrúlofuð
Haraldur og
Birna brugðu á
leik í Alþingis-
garðinum.
Samrýmd Birna og Haraldur hafa verið saman í stuttan tíma, en ná mjög vel saman.
Roðnaði í
lokahófi
Fréttamaðurinn góðkunni og
knattspyrnumaðurinn knái,
Hjörtur Hjartarsson, hefur spilað
sinn síðasta leik með uppeldisliði
sínu ÍA, og var kvaddur með virkt
um á lokahófi félagsins síðastliðið
laugardagskvöld. Liðsfélagi hans,
Gunnlaugur Jónsson, hélt mikla
lofræðu um Hjört og viðurkenndi
hann það á Facebooksíðu sinni
að hann hefði roðnað, þrátt fyrir
að vera veikur fyrir skjalli. Hjörtur
kveður félag sitt sáttur og skrifaði
nokkur þakkarorð á Facebook.
„Ferðalagið með ÍA hefur verið
frábært alla tíð. Ég er stoltur af
því sem ég gerði fyrir félagið og
þakklátur fyrir það sem klúbbur
inn hefur gefið mér. Ég vildi að
ég gæti klæðst gulu treyjunni á
hverju sumri um ókomna tíð en
það er víst ekki í boði!“
Óðinn tók
plötuáskorun
Óðinn Jónsson, fyrrverandi
fréttastjóri RÚV og núverandi rit
stjóri Morgunútgáfunnar á Rás 2,
tók áskorun kollega síns Óla Palla
á Facebook og birti lista yfir tíu
plötur tónlistarkvenna sem hafa
haft áhrif á hann í gegnum tíð
ina. Fannst honum með listanum
einnig ágætt að minna á glæsi
legan hlut kvenna í rytmískri tón
list. Efst á lista Óðins, í fyrsta og
öðru sæti, var söngkonan Billie
Holiday svo ætla má að hún hafi
verið í mikið í hlustun hjá hon
um og haft á hann töluverð áhrif.
Tíu sæti dugðu Óðni þó ekki til
að koma fyrir öllum þeim konum
sem hafa haft áhrif á hann en á
listann hjá honum vantaði til að
mynda Emilíönu Torrini, Ellý Vil
hjálms og Ellu Fitzgerald.
Lenti í sjálfheldu í réttum
Skemmtilegur dagur í góðra vina hópi
T
ónlistarmaðurinnMugison
sló á létta strengi um helgina
þegar hann var í réttum í Súða
vík, þar sem hann býr. Hann
sendi myndir á Facebooksíðu sína
þar sem hann sagðist hafa verið að
leita að rollum en engar fundið og
hafi lent í sjálfheldu í staðinn. „Ég
var nú bara að grínast,“ segir Mugis
on. „Ég var að reyna að vera fyndinn
eins og Bragi Valdimarsson. Ég fann
engar rollur en tók nokkrar „sel
fies“ sem er sjálfhelda. Ég var aldrei
í neinni hættu og þetta var æðisleg
ur dagur í góðum hóp.“
Eins og allir vita hefur Mugison
gert það gott sem tónlistarmaður
bæði hérlendis sem erlendis síð
ustu árin. Hann heitir réttu nafni
Örn Elías Guðmundsson en fékk
gælunafnið þegar hann var að
heimsækja Mugg föður sinn í
Malasíu. Árið 2003 fengu Mugison
og faðir hans þá hugmynd að halda
stórhátíð á Ísafirði þar sem venju
legt fólk væri stjörnurnar og popp
stjörnurnar í aukahlutverki. Hefur
hátíðin síðar orðið ein af stærstu
tónlistarhátíðum landsins en Mugi
son tekur ætíð þátt í hátíðinni
við góðar undirtektir. Allar plötur
Mugison hafa unnið til verðlauna
hér á landi en síðasta plata hans,
Haglél sem kom úr árið 2011, hlaut
fimm verðlaun á Íslensku tónlistar
verðlaunum. n
helgadis@dv.is
Mugison Ætlaði að vera fyndinn eins
og Bragi Valdimarsson. MyNd EyÞóR ÁRNASoN