Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 6
6 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Ríkisstarfsmaður fyrir dómi
n Yfirmenn á Hagstofunni vita ekkert um málið
M
ikil dulúð hvílir yfir máli
starfsmanns Hagstofu Íslands
en karlmaður á sextugsaldri,
sem starfar hjá stofnuninni,
hefur verið ákærður af ríkissaksóknara
og er málið nú fyrir dómi. Þinghald
er lokað og fást því engar upplýs-
ingar um málið hjá embætti ríkissak-
sóknara. Maðurinn er enn við störf
en yfirmönnum hans hjá Hagstof-
unni var ekki kunnugt um málið þegar
blaðamaður náði af þeim tali.
„Ég hef heyrt einhvern orðróm en
það hefur ekki komið neitt staðfest
inn á mitt borð,“ segir Ólafur Arnar
Þórðarson, starfsmannastjóri Hag-
stofunnar í samtali við blaðamann.
Manninum verður ekki vikið úr starfi
á meðan málið er til með ferðar en
Ólafur segir slíkt ekki gert nema
menn hafi hlotið dóm.
Samkvæmt Gunnari Björnssyni
hjá fjármála- og efnahagsráðu-
neytinu, sem sér um mál opinberra
starfsmanna, ber hvorki ráðuneytinu
né öðrum skylda til að upplýsa
yfir menn innan opinberra stofn-
ana um dómsmál sem höfðuð eru
gegn starfsmönnum þeirra. Hvort
slíkt sé gert ráðist aðallega af tilefni
ákærunnar.
„Það er ekki hægt að svara þessu
almennt því þetta ræðst af aðstæð-
um; hvers konar brot er um að ræða,
við hvaða aðstæður og á hvaða tíma
það var framið og líka hvers konar
starfi viðkomandi gegnir, hvort
ákæran hefur áhrif á hans starf eða
ekki,“ segir Gunnar. „Ef þetta er eitt-
hvað sem gerist utan starfs þá veit
yfirmaður sjaldnast af því frekar en
aðrir Íslendingar.“ n
Ákærður Mál mannsins er til meðferðar
hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Misnota kerfi
Félagsbústaða
n Þekkt er að leigjendur félagslegra íbúða áframleigi íbúðirnar
E
ndurleiga félagslegs leigu-
húsnæðis þekkist vel og hef-
ur DV heimildir fyrir því að
endurleigjendur séu svo bí-
ræfnir að gera bæði leig-
usamning og tvískrá bæði leigj-
anda og leigusala í sömu íbúðina.
„Það er ástæðulaust að fólk sem á
ekki rétt á að búa í félagslegu hús-
næði sé að ryðja frá fólki sem er í
brýnni þörf. Að annað fólk sé svo að
leigja á markaði og sé svo að borga
á okkar verðlagi, að hafa okkur að
féþúfu, það er ekki meiningin,“
segir Sigurður Kr. Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða hf.
Leiguverð mikið lægra en á
almennum markaði
Leiguverð félagslegs húsnæðis er
umtalsvert lægra en gengur og ger-
ist á almennum leigumarkaði. Til
marks um það hefur leiguverð hjá
Félagsbústöðum aðeins hækkað
um tæp þrettán prósent frá ár-
inu 2011, samanborið við um þrjá-
tíu prósenta hækkun á almennum
markaði á sama tíma. Leiguverð
hefur hækkað umtalsvert síðast-
liðin misseri og aðeins frá upp-
hafi síðastliðins sumar hefur vísi-
tala leiguverðs tekið mikinn kipp
upp á við. „Það er húsnæðisneyð í
borginni, það er bara staðreynd,“
segir Sigurður.
Leigjandi og leigjendur
skráðir í sama húsnæði
DV hefur heimildir fyrir því að mað-
ur sem hefur leigt félagsíbúð í hart-
nær átta ár hafi síðastliðið ár endur-
leigt pari íbúðina, sem er þó nýlega
flutt úr íbúðinni. Svo bíræfin voru
þau að bæði parið og maður voru
skráð í sömu íbúðina. Ekki er um að
villast því í þeirri tilteknu blokk eiga
Félagsbústaðir hf. aðeins eina íbúð.
Birgir Ottósson, forstöðumaður
þjónustudeildar Félagsbústaða hf.,
kannaðist ekki við það tiltekna mál
er DV lagði það undir hann, en bað
þó um upplýsingar um málið svo
hægt væri að rannsaka það. „Hann
hefur leigt frá árinu 2005 og hefur
verið fyrirmyndarleigjandi, aldrei
kvartað og alltaf borgað á réttum
tíma,“ segir Birgir.
Erfitt að sanna endurleigu
„Það kemur fyrir annað slag-
ið að við fáum ábendingar
um svona og þá eru þær
kannaðar. Við reynum
allt til að stöðva slíkt.
Þetta er svolítið aug-
lýst á Barnalandi.
Við reynum að rekja
það ef við fáum
fregnir af því,“ segir
Birgir. Hann segir að
komist upp um slíkt
sé viðkomandi krafinn
um endurgreiðslu og
gert að flytja úr íbúð-
inni. Mjög sjaldgæft sé þó
að hægt sé að sanna slíkt og
raunar hafi aðeins eitt
slíkt mál farið fyr-
ir dóm. „Í því
máli
var
það
svo bí-
ræfið
að það var gerður leigu samningur
við annan aðila og sá hafði haldið
eftir afriti af greiðslukvittunum. Við
fórum með það í lögfræðing og lét-
um það fara alla leið, viðkomandi
greip til varna en við unnum það
auðvitað,“ segir Birgir. Hann segir að
þó þetta sé eina málið sem hafi far-
ið alla leið þá hafi komið önnur
mál upp. Í þeim tilvikum
hafi sá sem var grunaður
um endurleigu oftast
bakkað aftur og sagst
hafa lánað vini eða
félaga íbúðina vegna
einhverra ástæðna.
Hann ítrekaði að það
væri mikilvægt að al-
menningur fylgdist
með. „Við biðjum fólk
um fylgjast með. Og
ef það veit af endurleigu
að láta okkur vita,“ segir
Sigurður. n
Hjálmar Friðriksson
blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is
Misnotkun Endurleiga á
félagslegu húsnæði ryður frá fólki
sem er í brýnni þörf, segir fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða hf.
Erfið sönnunarbyrði Sigurður segir að
aðeins eitt mál hafi farið fyrir dóm. Erfitt
sé að sanna endurleigu á félagslegu hús-
næði. Athygli er vakin á að meðfylgjandi
mynd tengist fréttinni ekki beint.
MYnd RakEL Ósk siguRðaRdÓttiR
„ Í því máli var það
svo bíræfið að það
var gerður leigusamning-
ur við annan aðila og sá
hafði haldið eftir afriti af
greiðslukvittunum.
Þörf á hjálp
afar mikil
Fjöldi barna á Filippseyjum sem er
á vergangi hefur nú náð 1,7 millj-
ónum og eru fjölskyldur að flýja
þau svæði sem verst urðu úti. Felli-
bylurinn Hayian var einn öflugasti
fellibylur sem gengið hefur á land
í sögunni. Meira en ein milljón
heimila eyðilögðust í hamförunum
og yfir fimm milljónir barna urðu
fyrir verulegum áhrifum. Neyðin
er mikil og mikilvægt er að koma
hjálp til fólks sem allra fyrst að
mati UNICEF á Íslandi, en samtök-
in segja að hjálparstarfi miði vel.
Síðustu daga hefur verið stöðug
dreifing hjálpargagna til þeirra sem
eiga um sárt að binda.
„Mikill gangur er í hjálparstarf-
inu og við náum sífellt að koma
fleiri börnum til hjálpar. Þörfin er
hins vegar gríðarleg og mikið starf
óunnið,“ segir Stefán Ingi Stefáns-
son, framkvæmdastjóri UNICEF á
Íslandi. Neyðarsöfnun UNICEF á
Íslandi er enn í fullum gangi. Hægt
er að leggja hjálparstarfi UNCEF
lið með því að senda smáskilaboð-
in BARN, í númerið 1900 og styrkja
þannig söfnunina um 1.900 krónur.
Slösuðust í
hálkunni
Tveir voru fluttir á slysadeild seint
á miðvikudagskvöld og aðfaranótt
fimmtudags eftir að hafa dottið illa
í hálkunni sem var á höfuðborgar-
svæðinu. Slysin áttu sér stað í
austurborginni og meiddust báð-
ir á fæti. Í tilkynningu frá lögreglu
kemur fram að líklega hafi hinir
óheppnu brákast eða brotnað.
Lögreglan hafði í ýmsu að snú-
ast aðfaranótt fimmtudags og
að kvöldi miðvikudags. Einn var
handtekinn í Hafnarfirði grunaður
um sölu fíkniefna. Þá var ökumað-
ur stöðvaður í Kópavogi grunaður
um ölvun við akstur og annar á
Vesturlandsvegi sem talinn er hafa
ekið undir áhrifum fíkniefna. Þá
var tilkynnt um innbrot í Hafnarf-
irði en þjófurinn hljóp burt þegar
íbúar urðu hans varir.