Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað Vilja fella niður tolla Þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur lagt fram frumvarp sem gengur út á að afnema tolla og vörugjöld á sojamjólk, hrísmjólk, möndlumjólk og haframjólk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bjartri framtíð. Þar er vitnað í greinargerð frumvarpsins þar sem meðal annars kemur fram að neysla mjólkurafurða hafi auk­ ist að undanförnu. Útlit sé fyrir að fyrirtæki í mjólkurvinnslu muni af þeim sökum kaupa um 3 milljónir lítra mjólkur um­ fram greiðslumark á líðandi ári. „Ákveðinn hópur fólks getur hins vegar ekki neytt mjólkur vegna mjólkurofnæmis eða mjólkur­ óþols. Fyrir þennan hóp eru stað­ gengdarvörur mjólkur mikil­ vægur þáttur þess að viðhalda eðlilegum lífsgæðum. Hið sama gildir um þá sem kjósa að neyta ekki mjólkur af öðrum ástæðum,“ segir í tilkynningu Bjartrar fram­ tíðar. Þá kemur fram að helstu staðgengdarvörur mjólkur séu innflutt sojamjólk, hrísmjólk, möndlumjólk og haframjólk. Um­ talsverður verðmunur er hins vegar á innlendri kúamjólk og staðgengdarvörum hennar. Einn lítri af hreinni sojamjólk kostar til dæmis 369 krónur í einum af leiðandi stórmörkuðum á höfuð­ borgarsvæðinu en einn lítri af ný­ mjólk kostar 128 krónur og einn lítri af léttmjólk 115 krónur. Verð á staðgengdarvöru mjólkur virð­ ist því vera allt að því þrefalt verð kúamjólkur. Opna snemma í Hlíðarfjalli Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar verður opnað í dag, föstudag, klukkan 16 – viku á undan áætlun. Í tilkynningu frá Akureyrarstofu kemur fram að þétt snjóalög séu nú í Hlíðarfjalli og gott skíðafæri. Þá er veðurspá­ in hagstæð fyrir helgina en spáð er kulda, hægviðri og úrkomu­ lausu veðri. „Aðstæður hér eru alveg frá­ bærar miðað við árstíma,“ segir Guðmundur Karl Jónsson, for­ stöðumaður skíðasvæðisins, í til­ kynningunni. „Hér hefur kyngt niður snjó suma daga og aðra daga hefur verið nístingsfrost og þá framleiða snjóbyssurnar tíu snjó allan sólarhringinn, villt og galið. Það er því mikill hug­ ur í okkur hér í Hlíðarfjalli og við hlökkum mikið til að taka á móti fyrstu gestunum.“ Svara pyntinganefndinni n Íslensk stjórnvöld fara yfir gagnrýni á málefnum fanga á Íslandi Í slensk stjórnvöld hafa nú svarað athugasemdum í skýrslu pyntinganefndar Evrópuráðsins, en nefndin lagði fyrir stjórn­ völd spurningar eftir reglubundna heimsókn hingað haustið 2012. Athugasemdirnar varða stöðu fang­ elsismála, löggæslu, framkvæmd útlendingalaga og lögræðislaga og nauðungarvistana hér á landi. Eftir_ liti nefndarinnar er þannig háttað að þegar nefndin hefur samþykkt skýr­ slu vegna heimsóknar til ríkis er við­ komandi stjórnvöldum send skýr­ slan. Þá er stjórnvöldum gefið tóm til þess að skila nefndinni greinar­ gerð vegna skýrslunnar og bregðast við athugasemdum, tilmælum og frekari beiðni um upplýsingar sem nefndin fjallar um á fundi sínum. Pyntinganefndin gerði athugasemdir við stöðu heilbrigðis­ mála í fangelsum, sagði þau vera undirmönnuð og óskýrt verklag vera ríkjandi. Þá gerði hún athugasemdir við aðgengi fanga að geðheilbrigðis­ þjónustu, og taka íslensk stjórnvöld undir athugasemdir nefndarinnar og segja að ýmislegt megi betur fara. Nefndin gerði einnig athugasemdir við að konur og karlar afplánuðu dóma í sömu fangelsum, en afstaða íslenskra stjórnvalda er sú að það sé ekki grundvallaratriði að aðskilja kynin. Þá segjast íslensk stjórnvöld hafa tryggt það að nú geti allir fangar farið út að deginum til. Nefndin hvatti til þess að íslensk stjórnvöld hættu að vista unga fanga í fangelsum og að byggt yrði nýtt fangelsi í Reykjavík. Stjórnvöld segja að unnið sé að því að koma á fót reglugerð um vistun ungra fanga, enda hafi Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verið lög­ festur hérlendis. n astasigrun@dv.is Margar athugasemdir Pyntinganefndin gerði margar athugasemdir við aðstöðu fanga. Enginn leigumarkaður á Suðurnesjunum Þ etta er skelfilegt ástand, það er bara ekkert til leigu,“ segir Sigurður V. Ragnarsson hjá Leigumiðlun Suðurnesja. Leigumarkaðurinn á Suðurnesjum hefur verið í algjör­ um lamasessi frá árinu 2010 eða frá því mikil fjölgun varð í nauðungar­ sölum á þessu svæði. Leigumiðlar­ ar hafa ekki haft neinar eignir á skrá hjá sér og þá hafa leiguvefir ekki haft neinar fasteignir á skrá í tölu­ verðan tíma. Slegist er um hvern lausan fermetra á meðan Íbúða­ lánasjóður á, samkvæmt mánaðar­ skýrslum sjóðsins, 386 auðar íbúðir á Suðurnesjum. Ítrekað óskað eftir samstarfi „Við höfum ítrekað óskað eftir því við Íbúðalánasjóð að eiga samstarf um lausnir varðandi eignir sjóðs­ ins,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og hefur hann bent á ýmsar leiðir til þess. „Sérstaklega óíbúðarhæft hús­ næði sem væri hægt að vinna frekar með og einnig leiðir til þess að skapa fólki möguleika til að nýta auðar íbúðir,“ segir Árni. Samkvæmt mánaðarskýrsl­ um sjóðsins á hann 811 eignir á Suðurnesjum og þar af eru 125 óí­ búðarhæfar. „Íbúðalánasjóður hefur hvorki viljað selja eða leigja heldur hefur þetta bara staðið tómt og sett leigu­ markaðinn í hnút. Leiguframboðið, sem hefur verið lítið sem ekki neitt, hefur þrýst verðinu upp. Hér gildir bara lögmálið um framboð og eftir­ spurn,“ segir Sigurður, ekki sáttur við gang mála. Engin í gær Flestir þeirra sem leita sér að leigu­ húsnæði kíkja á vef Morgunblaðsins og Vísis en þar eru leitarvélar sem tengdar eru inn í sama gagna­ grunninn. Íbúðalánasjóður hefur nýtt sér þessar leiðir til að koma fast­ eignum í leigu en á miðvikudag var engin íbúð til leigu á Suðurnesjum. Ekki einu sinni verslunarhúsnæði. Blaðamaður DV sendi fyrirspurn til Íbúðalánasjóðs vegna máls­ ins og var sjóðnum tjáð að engin íbúð væri til leigu á Suðurnesj­ um, hvorki frá sjóðnum, bönkun­ um eða lífeyrissjóðunum. Það þætti því undarlegt í ljósi þess að sjóð­ urinn eigi um það bil 386 auðar íbúðir á Suðurnesjum sem ekki eru flokkaðar óíbúðarhæfar. Hreyfing á hlutina Fyrirspurn blaðamanns virðist hafa komið hreyfingu á hlutina því sam­ kvæmt svari Íbúðalánasjóðs áttu 20 til 25 eignir að detta inn á leigumark­ aðinn á Suðurnesjum í dag, föstudag. Sigurður segir ferlið taka allt of langan tíma og að sumar af þessum íbúðum sem nú standa auðar hefðu átt að fara í leigu fyrir þremur árum: „Það eru hundruð íbúða sem standa hér tómar og hafa gert það frá árinu 2010.“ Fjölgun í bænum „Þrátt fyrir þetta þá hefur fjölgað í bænum okkar,“ segir Árni Sigfússon, en íbúar eru í kringum 14.400 talsins. „Við skiljum að málið er flókið en vonumst til að svörin fari þó að ber­ ast,“ segir Árni. En Árni er ekki sá eini sem bíður eftir svörum því Sigurður er orðinn langþreyttur á að svara örvæntingar­ fullu fólki tíu sinnum á dag með sömu ræðuna: „Veit ekkert leiðin­ legra en að hafa ekkert fyrir þetta fólk sem hringir í mig.“ Hvað eru margar íbúðir til leigu hjá Leigumiðlun Suðurnesja? „Ekki nein íbúð.“ n n 386 auðar íbúðir hjá Íbúðalánasjóði n „Skelfilegt ástand“ Atli Már Gylfason blaðamaður skrifar atli@dv.is Íbúðir Íls. á Suðurnesjum Samkvæmt mánaðarskýrslu miðaða við október 2013 → 299 í leigu → 386 auðar → 125 óíbúðarhæfar → 1 í vinnslu → 811 samtals „Þrátt fyrir þetta þá hefur fjölgað í bænum okkar. Ekkert til leigu Ekki ein íbúð var til leigu á fimmtu- daginn á öllu Reykjanesinu. Árni Sigfússon Bæjarstjóri Reykjanesbæjar vill samstarf við Íbúðalánasjóð um lausnir varðandi eignir sjóðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.