Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 52
52 Fólk 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað Xxxxxxxxxxxx n Xxxxxxxx n Xxxxxxxxxx Svefn­ purkur 1 Matthew McConaughey Matthew segist þurfa að minnst kosti átta og hálfrar stundar svefn á hverri nóttu. „Ég er ekki nærri jafn góður daginn eftir ef ég sef minna.“ 2 Lady Gaga Söngkonan er vissulega mikið á ferðinni en hún notar ferðatímann til að hvíl- ast. „Vinir mínir segja að ég hlaði mig eins og vélmenni. „Ég hreyfi mig ekkert, sit alveg kyrr í fötunum mínum, með höfuðið hnar- reist og bara sef.“ 3 Gwyneth Paltrow Leikonan Gwyneth Paltrow er þekkt fyrir að hugsa um heilsuna. „Fyrir mér er svefn meiriháttar mál. Ég fæ hann ekki alltaf, og þegar það gerist lít ég út fyrir að hafa orðið fyrir vörubíl.“ 4 Jon Hamm Mad Men-leikarinn elskar að sofa og vill helst ná 12 tíma svefni á sólar- hring. „Ég vil ná fullum 12 tímum en ekki öllum í einu. Ég hallast að því að skiptast á að vaka og sofa í fjóra tíma í senn.“ 5 Eva Mendes: Evu finnst svo gott að sofa að hún hefur nefnt það sem helstu ástæðu þess að hún vilji ekki eignast börn, hún er hrædd um að þau trufli fyrir henni nætursvefninn. topp 5 Ofurlaun í heimi tónlistar Madonna 15,2 milljarðar Drottningin Madonna er efst á listanum. Hún þénaði allra mest á síðasta ári en meirihluta þeirra tekna aflaði hún á tónleikaferðalagi sínu um heiminn, sem stóð frá 31. maí til 22. desember. Lady Gaga 9,7 milljarðar Söngkonan litríka hefði líklega þénað enn meira ef hún hefði ekki meiðst á mjöðm meðan á tónleikaferðalagi stóð. Í kjöl- farið þurfti hún að fara í aðgerð. Íslandsvinurinn hefði að mati Forbes þénað mun meira ef hún hefði klárað ferðalagið. Bon Jovi 9,6 milljarðar Hinn síungi Bon Jovi fylgir Lady Gaga. Tónleikaröð hans, sem bar réttnefnið, Because We Can, skilaði tónlistarmannin- um myljandi tekjum. n Forbes hefur tekið saman launahæstu tónlistarmennina í fyrra Toby Keith 7,9 milljarðar Toby er kannski ekki eins þekktur utan heimalandsins og aðrir á þessum lista. Kántrí- kóngurinn hefur undanfarin fimm ár þénað 32 milljarða króna. Hann hefur á þeim tíma haldið nokkur hundruð tónleika, selt milljónir platna og opnað mikinn fjölda veitingastaða. Coldplay 7,8 milljarðar Tónleikaferðalag hljómsveitarinnar í fyrra skilaði um 365 milljónum króna í tekjur í hverri borg. Hljómsveitin hefur hægt og bítandi klifið upp listann undanfarin ár og er nú sú hljómsveit sem mest þénar. Justin Bieber 7,0 milljarðar Kanadíski raularinn er á meðal þeirra tónlistarmanna sem mest þéna í heiminum. Hann kom fram á sjónarsviðið árið 2008, þá 14 ára. Síðan hefur hann aflað gríðarlegra tekna og hefur fjárfest í sprotafyrirtækjum eins og Enflick, Tinychat og Spotify. Taylor Swift 6,7 milljarðar Swift gaf út sína fjórðu sólóplötu í október í fyrra og seldi 1,2 milljónir eintaka fyrstu vikuna. Hún gerði í kjölfarið feita samninga við Diet Coke, Sony og Covergirl, auk þess að vera dugleg að spila og syngja á almannafæri. Elton John 6,5 milljarðar Gamla brýnið er fastagestur á lista yfir þá tónlistarmenn sem mest þéna, ár eftir ár. Hann þénaði vel á síðasta ári þrátt fyrir að útgáfu næstu plötu hans, The Diving Board, hafi ítrekað verið frestað. Beyoncé 6,4 milljarðar Þokkadísin sneri aftur úr fæðingarorlofi í fyrra og skýst aftur upp á listann. Beyoncé þénar vel á tónleikahaldi en einnig gefa samningar við Pepsi og H&M henni fúlgur fjár í aðra hönd. Þá er hefur hún enn drjúgar tekjur af gömlum smellum, að því er Forbes greinir frá. Kenny Chesney 6,4 milljarðar Kantríkóngurinn Kenny Chesney skýtur mörgum þekktari tónlistarmönnum ref fyrir rass á lista yfir tekjur. Tekjurnar í fyrra fékk hann mestmegnis fyrir tónleikahald á stórum íþróttaleikvöngum. Chesney kynnti í upphafi árs nýtt romm, sem ber nafnið Blue Chair Bay. Faðir í annað sinn Kvikmyndaleikarinn Chris Hemsworth er aðalstjarnan í nýjustu framhaldsmyndinni um þrumugoðið Þór sem frumsýnd var nýlega. Hann er nú kominn með annað framhaldsverkefni því hann viðurkenndi nýlega að hann yrði brátt faðir í ann- að sinn. Eiginkona hans, Elsa Pataky, sem hefur komið fram í kvikmyndabálknum Fast and Furious gengur nú með annað barn þeirra hjóna en þau hafa verið gift síðan í árið 2010. „Föð- urhlutverkið setur hlutina í nýtt samhengi,“ sagði hinn verðandi faðir nýlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.