Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 44
Í góðu skapi og topp-
formi yfir veturinn
44 Lífsstíll 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
n Það má líka fjölga klukkustundum í sólarhringnum n Skiptir máli að borða hollt og hvíla sig nóg
Ingólfur Sigurðsson
blaðamaður skrifar ingosig@dv.is
D
agarnir styttast og myrkrið
tekur völdin. Einhverjir fagna
þeirri breytingu, en flestir
kunna illa við það og leggja
ótalmargt á sig til þess að líða vel.
Hávær umræða er í samfélaginu um
að seinka klukkunni. DV ræddi við
fólk úr ólíkum áttum og lagði fyrir
það spurningar um hvernig það
hyggist sleppa frá vetrinum í góðu
formi og með geðheilsuna í lagi. n
Spurningarnar:
1 Hvernig heldur þú þér í góðu formi yfir vetur-
inn?
2 Hvernig tryggir þú að geðheilsan sé í lagi nú í
skammdeginu?
3 Hvað finnst þér um hugmyndir þess efnis að
breyta klukkunni til þess að
fá meiri birtu í lífið?
Guðmundur
Jörundsson
fatahönnuður – 26 ára
1 Ég get ekki sagt að ég geri það. Spila fótbolta einu sinni í
viku, það er allt og sumt. Þyrfti að vera
duglegri. Fer reyndar á skíði á veturna og
veiði á sumrin – það er mikil hreyfing en
kannski fyrst og fremst andlegt.
2 Nota ekki áfengi, stunda tólf sporin, sæki AA-fundi og reyni
að vera góður við annað fólk.
3 Mér er eiginlega alveg sama, er ekki alltaf dimmt? Hætti
að pæla í þessu þegar ég kom geðheils-
unni í lag.
Saga
Garðarsdóttir
leikkona – 26 ára
1 Ég er mikið í víkingaþreki. Ég fer líka út að hlaupa með Kristínu
Tómasdóttur. Svo er ég leikfimiþjálf-
ari Saga Class sem er töffaralegasta
leikfimifélag Íslands. Það samanstendur
af ótrúlega hressum konum.
2 Með því að hreyfa mig rosalega mikið og borða
ótakmarkað magn af súkkulaði. Og
umgangast fyndið fólk.
3 Ég tek mjög vel í hugmyndir um breytta klukku. Það mætti
líka fjölga klukkutímunum í sólarhringn-
um.
Unnur
Eggertsdóttir
söngkona – 21 árs
1 Ég er að æfa og kenna dans. Það eru allavega fjórir klukkutím-
ar sem fara í það á viku. Síðan reyni ég
stundum að fara í ræktina fyrir vinnu.
2 Það er mjög erfitt! Ég er ekki mikil vetrarmanneskja. Ég
þoli ekki skammdegið. Á mínu heimili
reynum við að hafa kveikt á kertum og
pössum að við borðum hollt. Það skiptir
svo miklu upp á vellíðan manns.
3 Mér finnst það rosalega fínt. Ég skil ekki af hverju Ísland
gerir þetta ekki. Þrátt fyrir að það muni
bara einum klukkutíma þá munar það
strax miklu upp á að fara í vinnuna og
það er kannski orðið pínu bjart úti.
Arnar Sveinn Geirsson
knattspyrnumaður – 22 ára
1 Ég æfi fótbolta og kemst því eiginlega ekki hjá því að vera í formi – en það sem ég hef komist að á síðustu árum er mikilvægi mataræðis og hvíldar.
Það að vera í formi myndi ég segja að væri að vera heilbrigður og líða vel – og þar
skiptir máli að borða hollt fæði, hreyfa sig reglulega og hvíla sig nóg.
2 Það hjálpar mikið til að vera í fótbolta, það er það skemmtilegasta sem ég geri og því veitir það mér ánægju í gegnum skammdegið. Svo er það bara
að vera jákvæður, það getur glatt mann ansi mikið að vera ekki að pirra sig á hinu og
þessu sem við höfum enga stjórn á.
3 Held að það sé eina vitið, þá er maður vakandi aðeins lengur í birtunni og þar sem löndin í kringum okkur gera það sé ég ekki af hverju við ættum ekki að
gera það.
Mynd Sigtryggur Ari
Mynd Fótbolti.net
Mynd Sigtryggur Ari Mynd Sigtryggur Ari