Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 8
8 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Auglýsingin
ögrar launafólki
„Þetta er bara sögufölsun.
Annars vegar á þróun launa og
verðlags og hins vegar á því sem
Seðlabankinn var að gera,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, í sam-
tali við DV um nýja auglýsingu
Samtaka atvinnulífsins þar sem
launþegar eru hvattir til að stilla
kröfum sínum um kjarabætur í
hóf vegna verðbólgu. Gylfi segir
óskiljanlegt að SA fari fram með
auglýsingu þar sem ábyrgð verð-
bólgunnar er sett algjörlega á
herðar launþega.
Samtök atvinnulífsins segja
í auglýsingu sinni að launa-
hækkanir síðustu sjö ára hafi
engu skilað fyrir launafólk. Rök-
in sem færð eru fyrir því eru að
kaupmáttur launa sé lægri nú
en hann var árið 2006. Í auglýs-
ingunni eru dregin upp línurit
sem sýna þróun launa hér og
í samanburðarlöndum hvað
kaupmátt varðar. „Of miklar
launahækkanir hafa valdið verð-
bólgu sem hefur étið upp ávinn-
inginn,“ segir í auglýsingunni og
vísað til þess að Norðurlöndin
Svíþjóð, Danmörk og Noregur,
hafi farið aðrar leiðir með hóf-
legri launahækkunum.
Gylfi segir auglýsingarnar
ögra launþegum. „Ég þykist
nokkuð viss um það að þetta
muni ögra mönnum mjög
verulega. Þannig er það með
sögufalsanir, þær ögra mjög
verulega. Þú heyrir það á við-
brögðum mínum,“ segir hann. Í
auglýsingunum er talað um að
tveggja prósenta launahækkun
sé góð niðurstaða fyrir launþega,
þannig sé hægt að halda verð-
bólgu í skefjum og koma í veg
fyrir auknar skuldir heimilanna.
Gylfi segir auglýsingu sam-
takanna alvarlega. „Mér finnst
þetta vera mjög alvarlegt, þegar
að gagnaðilar okkar í miðjum
fasa þess að ná fleti á þessar við-
ræður, setja fram auglýsingar og
auglýsingaherferð sem meira
og minna byggir á afskræmingu
sögunnar og reyna að skrifa
söguna eftir eigin hentugleika,
túlka tillögur Seðlabankans eftir
eigin hentugleika og telja það
vera innlegg í það að leysa úr
flóknu viðfangsefni kjarasamn-
inga,“ segir hann.
Kærir Guðjón fyrir
að sparka í hunda
n Tennur losnuðu úr hvolpinum Breka n „Ég varð bara mjög hrædd“
S
if Vilhjálmsdóttir hundaeig-
andi hefur lagt fram kæru
til lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu á hendur
knattspyrnuþjálfaranum
Guðjóni Þórðarsyni. Sif segir að
Guðjón hafi sparkað í hunda sem
hún á og var með á Geldinganesi á
sunnudag. Guðjón vildi ekki tjá sig
um málið þegar eftir því var leitað og
sagði kæruna byggða á ósannindum.
Hittast oft
Málsatvik voru þau að Sif var í fjör-
unni á Geldinganesi á sunnudaginn
með vinkonu sinni. Þar er heimilt að
vera með lausa hunda.
„Við hittumst þarna oft vinkon-
urnar og leyfum þeim að hittast,“
segir Sif sem var með tvo hunda og
hvolp, en vinkona hennar með tvo
hunda.
Hvolpinn er Sif að venja við að
vera í kringum fólk og var hann því
í fanginu á henni. Þær vinkonurnar
voru því með fjóra fullvaxta hunda
og hvolp, en Sif lagði
hvolpinn frá sér þegar að
átökin brutust út.
Svaraði ekki
„Við vorum þarna í fjör-
unni að spjalla og vorum
nýbúnar að hittast,“ segir
hún. „Þá kom þarna mað-
ur að okkur, Guðjón, sem
ég hafði tekið eftir þegar
ég kom þangað, vegna
þess að hann var með svo
fallegan hund. Ég bauð
honum góðan daginn, en
hann svaraði mér ekki,
heldur gekk beint að
hundunum og byrjaði að
sparka í þá,“ segir Sif.
„Hann byrjaði á
stærsta hundinum, Úlfi,
og sparkaði í hann. Ég
setti þá hvolpinn niður
og hljóp að honum og
bað hann um að hætta. Ég var í svo
miklu sjokki,“ segir hún.
Sif segir að hundarnir hafi farið að
Guðjóni, en þeir hafi ekki verið ógn-
andi, heldur glaðlegir og greinilega
viljað leika við hund Guðjóns. „Við
fyrsta spark fældust hundar
vinkonu minnar og hlupu í
burtu,“ segir Sif.
Þegar Sif kom að
hundunum fór Guðjón
að hvolpinum, að hennar
sögn. „Þá hljóp hann að
hvolpinum og sparkaði í
hann. Eftir þetta urðu orða-
skipti okkar í milli og Guðjón
sagðist hafa haldið að hvolpur-
inn ætlaði að ráðast á sig,“ segir
hún og segir að ef Guðjón hafi
verið hræddur hefði hann vel
getað valið aðra leið fram-
hjá þeim vinkonunum
og hundunum, en
þarna sé leyfilegt að
hafa hundana lausa.
Lausar tennur
Í kærunni kemur
fram að sparkað
hafi verið í
hundana, en sá
sem hafi orðið allra
verst úti hafi verið
hvolpurinn Breki.
Í kærunni segir að
Breka hafi verið
veitt „þung högg
með fótleggj-
um […] í andlit
og kvið hvolps-
ins, með þeim
afleiðingum að
hvolpurinn rak upp hávær
öskur og kastaðist aftur á
bak.“
Kærunni fylgdi áverkavott-
orð fyrir Breka, sem er af
tegundinni Terrier Boston.
Þar segir: „Tönn í efri góm (i1)
hægra megin datt úr og önn-
ur tönn (i1) vinstra megin er
laus. Hvolpurinn var dasaður
og greinilega skelkaður eftir
árásina.“ Sömu sögu er að segja
um áverkavottorð fyrir hundinn
Dexter (Terrier Boston) sem
dýralæknir segir að hafi ver-
ið „[…] greinilega skelk-
aður eftir árásina
og lemstraður.“
Í áverkavott-
orði fyrir hund-
inn Úlf (Border
Collie) segir að
hann hafi ekki
verið lemstrað-
ur en „greini-
lega skelkaður
og hræddur eft-
ir árásina.“
Kveðst hafa sannleika að segja
Sif segist vera mikill dýravinur og
segir atvikið hafa skotið henni skelk
í bringu. „Ég varð bara mjög hrædd,“
segir hún í samtali við DV.
Guðjón var sjálfur með hund
á svæðinu. Þegar blaðamaður DV
hafði samband við Guðjón sagði
hann að segja þyrfti sannleikann í
málinu. Þegar blaðamaður óskaði
eftir því að Guðjón segði sína sögu
vildi hann ekki gera það.
Hann sagði Sif ekki hafa mátt vera
með hundana á svæðinu en gat ekki
farið nánar út í það. Hann var þó aug-
ljóslega ekki sáttur við að Sif og vin-
kona hennar hefðu verið með fimm
hunda. Þegar blaðamaður spurði
hann hvort hann teldi að hundarnir
hefðu ætlað að ráðast á hann vildi
Guðjón ekkert segja. „Þetta fer bara
sína leið,“ sagði Guðjón og vildi ekki
leiðrétta það sem hann sagði annars
vera rangfærslur.
Mega vera þarna
Sif telur að málið sé ekki forgangsmál
hjá lögreglunni, en hún hefur lagt
fram kæru og bíður átekta. Hún hafði
samband við lögreglu sem síðar hitti
hana á vettvangi. Lögreglan ræddi
við Sif en tók ekki af henni skýrslu.
Það getur tekið nokkurn tíma að mati
lögmanns Sifjar, að hefja rann-
sókn, en kalla þarf þau
þrjú í skýrslutöku; Sif,
Guðjón og vinkonu
Sifjar. Ítrekað skal
að heimilt er að
leyfa hundum
að vera lausum
á Geldinganesi,
Geirsnefi og við
Rauðavatn í
Reykjavík. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Skelkuð Hér sést
Sif með hundun-
um, þeim Úlfi,
Breka og Dexter.
Breki með lausar tennur Hvolpurinn Breki er með lausar tennur og ein datt úr.
„
Þetta fer
bara sína
leið
Vildi segja
sannleika
Guðjón sagð-
ist vilja segja
sannleik-
ann, en gat
ekki rætt
við blaða-
mann.