Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 11
Fréttir 11Helgarblað 22.–24. nóvember 2013
Þ
rjár járnstangir sem stóðu
lóðréttar upp úr jörðinni í
hlíðum skíðasvæðisins við
Jafnasel í Breiðholti voru fjar
lægðar eftir athugasemd af hálfu
blaðamanns DV. Stangirnar voru
staðsettar fyrir miðju skíðasvæðisins
og ollu mikilli hættu fyrir þau fjöl
mörgu börn sem þangað koma að
leika sér.
Blaðamaður ræddi við áhyggju
fulla móður sem kom auga á um
ræddar járnstangir.
„Ég var með strákinn minn þarna
og mér blöskraði að sjá krakka leika
sér í kringum þetta því það þarf lítið
til að alvarleg slys eigi sér stað,“ segir
móðirin. Hún segir óskiljanlegt að
ekki hafi eitthvað verið gert til að
minnka slysahættu ungra barna sem
sækja í þessa vinsælu skíðabrekku.
„Þetta hefur ekki verið girt af
og það eru ekki nema tveir metr
ar í næsta stökkpall svo krakkar eru
að renna sér niður á einmitt þessu
svæði,“ segir hún og bendir á að
stangirnar séu nokkuð faldar í snjó
num og því sé ekki auðvelt að koma
auga á þær.
Þegar blaðamaður hafði samband
við Hafstein Hrafn Grétarsson, starfs
mann frístundamiðstöðvarinnar
Gufunesbæjar, brást hann strax við
og setti sig í samband við Ásberg K.
Ingólfsson hjá verkfræðistofunni
VSÓ Ráðgjöf. Að sögn Ásbergs voru
járnteinarnir notaðir til að útbúa
línu fyrir undirstöðu timburpalls
sem þarna er í smíðum og var þetta
steypt fyrir tveimur til þremur vik
um. Járnstangirnar höfðu því staðið
ógirtar í meira en hálfan mánuð og
skapað mikla hættu fyrir börn sem
þarna eru að leik en þær voru fjar
lægðar eftir ábendingu blaðamanns
og segir Ásberg að svæðið umhverfis
undirstöður fyrirhugaðs timburpalls
verði hér eftir betur afmarkað.
„Verktaki harmaði þá yfirsjón sína
að teinar hafi ekki verið fjarlægðir að
lokinni steypuvinnu við undirstöðu
timburpalls og hann mun merkja og
girða svæðið eftir þessa ábendingu
fréttamanns,“ segir meðal annars í
svari Ásbergs. n
horn@dv.is
Járnstangir fjarlægðar eftir ábendingu DV
n Stangirnar stóðu ógirtar í meira en hálfan mánuð n Foreldrar áhyggjufullir
Hættulegt Járnstangirnar sköpuðu tals-
verða hættu fyrir þau fjölmörgu börn sem
koma í brekkuna til að leika sér.
Slægi ekki
hendi á móti
skuldalækkun
„Nú get ég alveg játað að ég er í þeim
hópi sem gæti fengið skuldalækkun.
Við keyptum íbúð á versta tíma, árið
2007. Borguðum út í henni, það fé
brann upp í hruninu,“ skrifar Egill
Helgason samfélagsrýnir.
„Eftir standa verðtryggðar skuld
ir sem nema um það bil því sem
mögulegt væri að selja íbúðina á.
Við fengjum varla neitt umfram það,
þótt íbúðaverð hafi verið að hækka.
Fórum samt hina svokölluðu 110
prósenta leið. Staðan væri auðvitað
verri án hennar.“
Egill skrifar pistil á Eyjunni þar
sem hann segist ósammála Stefáni
Ólafssyni prófessor, sem segist ekki
skilja andstöðu fólks við skuldaniður
fellingum. Egill segir að andstaðan sé
ekki við skuldaniðurfellingar, heldur
fremur við skort á upplýsingum um
hvernig þeim verði hagað, ef þær
verða yfirleitt.
„Lengi var talað um að þessir pen
ingar yrðu teknir af erlendum kröfu
höfum bankanna – sú leið virðist
ekki vera fær núorðið. Eða það skilst
manni. Þess vegna bíður fólk spennt
eftir niðurstöðum starfshóps um
skuldalækkanirnar – fyrr er eiginlega
ekki hægt að vera á með eða móti,“
skrifar Egill. „Ekki slægi ég hendinni
á móti því að skuldir mínar lækkuðu.
En það getur líka verið að hægt sé að
gera eitthvað skynsamlegra við pen
ingana. Óvissan er enn svo mikil að
ég get ekki metið það.“
Alþingi kærir
borgina
Alþingi hefur lagt fram kæru á
hendur Reykjavíkurborg fyrir
meint stjórnarskrárbrot. Þing
ið kærir ákvörðun borgarstjórnar
um að samþykkja deiliskipulag við
Landssímareit í Kvosinni.
Telur forsætisnefnd Alþingis að
deiliskipulagið brjóti gegn 36. grein
stjórnarskrárinnar, þar sem stend
ur: „Alþingi er friðheilagt. Enginn
má raska friði þess né frelsi.“
RÚV greindi frá kærunni á
fimmtudag en meirihluti Alþingis
telur að borgin sé að leyna
raunverulegum áformum um
byggingu á Landssímareitnum, að
í deiliskipulagi sé talað um að ef
hótelstarfsemi fari fram á reitnum
þá eigi inngangur hótelsins að vera
frá Kirkjustræti. „Áform Reykja
víkurborgar eru skýr og augljós –
byggja á hótel í Landssímahúsun
um með tengingu við nýbyggingu
að Kirkjustræti,“ segir í kærunni að
því er RÚV greinir frá.