Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 12
Dramatískur enDir á áratuga samstarfi
n Kristján Loftsson og viðskiptafélagar greiddu um 2,6 milljarða fyrir hlutabréf Árna Vilhjálmssonar heitins og systur hans n Fengu bréfin á hagstæðu verði
K
ristján Loftsson, Birna
Loftsdóttir, eiginkona hans,
og Sigríður Vilhjálmsdóttir
greiddu um 2,6 milljarða
króna fyrir 31,44 prósenta
hlut sem fjölskylda Árna Vilhjálms-
sonar heitins og systir hans, Kristín
Vilhjálmsdóttir, áttu í Fiskveiða-
hlutafélaginu Venusi, sem meðal
annars er stór hluthafi í HB Granda
og Hampiðjunni. Þetta herma
heimildir DV. Greint var frá við-
skiptunum í lok ágúst síðastliðinn
en kaupverðið hefur ekki áður kom-
ið fram. Tekið skal fram að Kristján
átti forkaupsrétt að bréfunum. Ljóst
er að Kristján, Birna og Sigríður
fengu hlutabréfin á hagstæðu verði.
Seljendur hlutabréfanna eru
ekkja Árna Vilhjálmssonar, Ingi-
björg Björnsdóttir, og systir hans,
Sigríður Vilhjálmsdóttir. Báðar
áttu þær 15,72 prósent í félaginu
og saman 31,44 prósent. Verðið á
hlutabréfunum verður að teljast lágt
í ljósi þess hvert ætlað markaðsvirði
þeirra gæti verið. Venus á tæplega
40 prósenta hlut í Hval hf. sem aft-
ur á eignarhaldsfélagið Vogun sem
er stærsti hluthafi HB Granda með
tæp 40 prósent. Venus á því 16 pró-
sent hlutafjár í HB Granda í gegnum
Hval og á svo sjálft tæp 3,43 prósent
í HB Granda. Venus á því á endan-
um, í gegnum hlutdeildarfélög, tæp
20 prósent í HB Granda.
Dramatískar hræringar
Árni Vilhjálmsson lést sem kunn-
ugt er fyrr á árinu. Hann og Kristján
Loftsson höfðu unnið saman um
áratugaskeið þegar hann féll frá og
meðal annars stundað hvalveiðar
saman í gegnum Hval hf. Kristján
var alltaf andlit hvalveiðanna út á
við en Árni var hluthafi í félaginu.
Faðir Árna hafði stofnað Hval hf.
árið 1947. Félagið er því fjölskyldu-
fyrirtæki. Saman keyptu þeir Árni
og Kristján svo Granda af Reykja-
víkurborg árið 1988 og er það í dag
stærsta útgerð landsins miðað við
úthlutaðar aflaheimildir á Íslandi.
Þegar Árni féll frá lá fyrir að ann-
aðhvort myndi eftirlifandi eigin-
kona hans eiga áfram hlutabréfin í
þeim fyrirtækjum sem Árni átti með
Kristjáni eða selja þau. Hún valdi
seinni kostinn og seldi hlutabréfin. Í
stað þess að bíða og selja hlutabréf-
in á markaði eða reyna að hámarka
verðmæti þeirra með einhverjum
hætti var Kristjáni gert tilboð. Þetta
herma heimildir DV. Kristján hafn-
aði hins vegar tilboðinu sem upp-
haflega var gert þar sem hann taldi
það of hátt en gerði Ingibjörgu og
Kristínu svo gagntilboð upp á þá
fjárhæð sem greint er frá hér á und-
an – 2,6 milljarða króna. Þær Ingi-
björg og Kristín gengu að því tilboði
þó ljóst sé að undirliggjandi verð-
mæti hlutabréfa þeirra er líklega
umtalsvert hærra en þetta.
Þannig má segja að áratuga
löngu og góðu viðskiptasambandi
Kristjáns og Árna hafi lokið með
sölunni, en þeir Kristján og Árni
voru sömuleiðis góðir vinir.
Vildi fyrst ekki kaupa
Sala erfingja Árna Vilhjálmssonar á
hlutabréfunum í Venusi vekur tals-
verða athygli í ljósi þess að upphaf-
lega stóð ekki til að Kristján myndi
kaupa bréfin. Til að mynda neit-
aði hann því í viðtali við DV í júní
að hann ætlaði sér að kaupa bréf-
in. „Það stendur ekkert svoleiðis til,“
sagði hann.
Erfingjar Árna vildu hins vegar
selja hlutabréfin sem fyrst og þar
sem Kristján átti forkaupsrétt að
bréfunum lá beinast við að leita til
hans. Kristján átti því ekki frum-
kvæði að viðskiptunum með bréf-
in, líkt og ívitnuð orð hans hér að
ofan gefa til kynna, heldur voru það
erfingjar Árna sem vildu ólmir selja.
Kristján vildi hins vegar ekki kaupa
á því verði sem erfingjar Árna og
systir hans vildu fá fyrir bréfin held-
ur á öðru lægra og því fór svo að
hann fékk hlutabréfin á því verði.
Deilt um hvalveiðar
Salan á hlutabréfunum í Venusi
átti sér stað eftir orðaskipti erfingja
Árna og Kristjáns í fjölmiðlum þar
sem þeir tókust á um hvalveiðar.
Ein af dætrum Árna, Birna Björk
Árnadóttir, skrifaði til dæmis harð-
orða grein í Fréttablaðið eftir and-
lát föður síns þar sem hún deildi á
Kristján fyrir hvalveiðarnar, líkt og
vitnað er til hér annars staðar á síð-
unni. Hafði sú umræða yfir sér þann
blæ að skyldmenni Árna hafi ekki
viljað opinbera andstöðu sína við
veiðarnar fyrr en að honum liðnum.
Grein Birnu var reyndar skrifuð
eftir að tillaga hafði verið lögð fram
á aðalfundi Hvals um að skipta upp
rekstri félagsins í tvær einingar:
Annars vegar hvalveiðieiningu og
hins vegar einingu utan um annan
rekstur en hvalveiðar. Sú tillaga var
ekki samþykkt.
Kristján gagnrýndi málflutning
Birnu í viðtali við DV í júní, sama
viðtali og hann hafnaði því alfarið
að hann væri að fara að kaupa
hlutabréf Árna í Venusi. „Nú hef ég
stundað þetta í 30 ár og það heyrast
alltaf gagnrýnisraddir. En þessi
grein hennar Birnu kom mér veru-
lega á óvart. Hennar krítík beinist
alveg jafn mikið að föður hennar og
að mér, svo maður á eiginlega ekki
til orð.“ Þannig benti Kristján á að
Birna væri með grein sinni einnig að
gagnrýna föður sinn þar sem hann
hafi verið fylgjandi hvalveiðum
áður en hann lést.
Þar stóð hnífurinn í kúnni þegar
hlutabréfaviðskiptin á milli fjöl-
skyldnanna áttu sér stað: Hluti
erfingja Árna Vilhjálmssonar var á
móti hvalveiðum en Kristján ekki,
líkt og Árni sjálfur á meðan hann
var á lífi. Þessi grundvallarmunur á
sjónarmiðum til hvalveiða skapaði
því eðlilega núning á milli þessara
stóru hluthafa og varð eitthvað að
gerast í eignarhaldinu á Venusi og
Hval hf. þar sem ljóst var að fjöl-
skyldan gæti ekki haldið áfram sam-
vinnunni við Kristján eftir andlát
Árna. Því fór sem fór.
Á hlutabréfamarkað
Verðmæti HB Granda er rúmir 30
milljarðar króna, samkvæmt verð-
mati á félaginu sem greint var frá
á Vísi nú í nóvember. Boðað hef-
ur verið að HB Grandi verði sett á
hlutabréfamarkað og tæplega þriðj-
ungur hlutafjár boðinn út á næsta
ári. HB Grandi er nú skráð á First
North markað Kauphallar Íslands
en ekki Aðalmarkaðinn þar sem
verðmæti félagsins mun líklega
stökkbreytast.
Kristján Markús Bragason,
yfir maður hlutabréfagreiningar
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Nánir vinir og
samstarfsfélagar
Kristján Loftsson minntist Árna í minn-
ingargrein í Morgunblaðinu í mars á þessu
ári. Grein Kristjáns varpar ljósi á hversu
náið samstarf þeirra var og kallaði hann
Árna „stóra bróður“ sinn. Orðrétt sagði í
greininni:
„Okkar samstarf í atvinnulífinu hófst
er ég hóf störf á skrifstofu Hvals hf. hjá
föður mínum 1966. Kallaði pabbi Árna oft
til skrafs og ráðagerða um hin ýmsu mál er
tengdust rekstrinum. Árni varð formaður
stjórnar Hvals hf. 1979. Árni kom með þá
hugmynd, hvort ekki væri rétt að við gæf-
um okkur fram við Reykjavíkurborg með
það í huga að gera tilboð í hlut Reykja-
víkurborgar í Granda hf. Reykjavíkurborg
vildi selja sinn hlut. Leiddi Árni þær við-
ræður og var gengið frá samningi í ágúst
1988. Fjögur félög komu að kaupunum og
var Hvalur hf. afgerandi stærst. Það áraði
ekki vel í útgerð og fiskvinnslu á þessum
árum og voru þessi kaup ansi djörf að áliti
margra. Árni tók þá við forystu í stjórn
Granda hf. og hefur hann leitt félagið alla
tíð síðan. Hann sá til þess að hlutabréf
félagsins voru skráð á markaði, hlutaðist
til um sameiningar við útgerðarfélög og
kaup á öðrum útgerðarfélögum. Þannig
var hann potturinn og pannan í eflingu
félagsins alla tíð. Jóhann Hjartarson,
stjórnarmaður í HB Granda hf., orðaði það
svo í tölvupósti til mín: „Það er einhvern
veginn erfitt að hugsa um HB Granda án
Árna.“ Svipuðu gegndi um aðkomu Árna
að Fiskveiðahlutafélaginu Venus, Hval,
Hampiðjunni, Stofnfiski og Nýherja. Þar
sat hann ekki með hendur í skauti. Sam-
starf okkar hefur verið náið alla tíð. Þar
hef ég frekar verið þiggjandi en gefandi
enda Árni mikill viskubrunnur og auðsótt
alltaf að leita í smiðju til hans.“
„Hennar krítík beinist
alveg jafn mikið að föður
hennar og að mér
Vildi ekki bréfin Kristján sagði við
DV í sumar að hann vildi ekki hlutabréf
erfingja Árna Vilhjálmssonar í Venusi. Á
endanum keypti hann hins vegar bréfin
eftir að honum voru boðin þau. MynD DV
12 Fréttir