Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 20
20 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Koss páfa gladdi fílamann
n Vinicio Riva átti innilega stund með páfa
E
ins og frægt er orðið kyssti
Francis páfi hinn afmyndaða
Vinicio Riva – sem stundum er
kallaður fílamaðurinn – á torgi
heilags Péturs í Vatíkaninu. Riva, sem
hefur lengi glímt við ættgengan sjúk-
dóm sem veldur afmyndun líkam-
ans, hefur nú lýst upplifun sinni af
platónskri stund þeirra páfa. „Hjarta
mitt sló svo hratt, að ég hélt að ég
dæi,“ sagði Riva í samtali við breska
blaðamenn, en hann er kaþólskur, og
bætti við: „Mér leið eins og ég væri
staddur í paradís. Hann hugsaði sig
ekki tvisvar um, þrátt fyrir ófrýnilegt
útlit mitt. Ég smita ekki, en hann vissi
það ekki.“
Francis páfi, sem er Argentínu-
maður, hefur gegnt stöðunni í átta
mánuði. Hann hefur vakið athygli
fyrir frjálslyndar áherslur og alþýð-
lega framkomu. Sem dæmi hefur
hann þvegið fætur heimilislausra,
boðið fátæklingum í mat og hr-
ingt persónulega í sjúka og veitt
þeim blessun sína. Eftir að hann var
kjörinn af kardínálum hefur fjöldi
kaþólikka aukist verulega í Bretlandi,
Ítalíu, Spáni, Frakklandi, Bandaríkj-
unum og víðar og hafa menn kallað
fjölgunina „Francis áhrifin“.
Riva er ekki hissa á vinsældum
páfa og segir nærveru hans guðdóm-
lega. „Hann nálgaðist mig án þess að
mæla orð frá munni. Mér leið eins
og hjarta mitt yfirgæfi líkama minn.
Fyrst kyssti ég hönd hans og á með-
an strauk hann mér um höfuðið. Síð-
an hallaði hann sér að mér, faðm-
aði mig og kyssti. Faðmlagið varaði
sennilega í mínútu en fyrir mér virt-
ist það eilíft.“ n
Frægur koss Francis páfi veigrar sér ekki við að handfjatla afmyndað andlit Riva. Myndin
er tekin rétt fyrir kossinn fræga.
13 ára nauðgaði
10 ára stúlku
13 ára drengur játaði fyrir velskum
dómstól að hafa nauðgað 10 ára
stúlku og misnotað hana á marg-
víslegan hátt yfir tveggja ára
tímabil. Sökum lágs aldurs var
hann ekki dæmdur til fangelsis-
vistar, en þarf þess í stað að dúsa á
endurhæfingarheimili fyrir unga
brotamenn og hefur auk þess ver-
ið settur á lista breskra yfirvalda
yfir kynferðisafbrotamenn. Dreng-
urinn, sem er frá Llandudno í
Wales, hafði um langt skeið verið
háður internet-klámi og skoðaði
ýmiss konar klámefni í hverjum
degi. Þá voru leiddar líkur að því
við aðalmeðferð málsins að hann
hafi, hugsanlega oftar en einu
sinni, séð móður sína hafa kyn-
mök við sambýlismann sinn.
Dómarinn í málinu, Niclas
Parry, skaut föstum skotum að
móður drengsins og að það væri
henni að kenna að hann þekkti
ekki muninn á réttu og röngu.
Lögmaður drengsins bar að hann
hafi orðið fyrir barðinu á líkam-
legri og andlegri misnotkun; van-
ræktur af móður sinni og barinn af
sambýlismanni hennar. Óeðlileg
tölvunotkun drengsins hafi hún
látið óáreitta. Strákurinn þiggur
nú sálfræðimeðferð á unglinga-
heimilinu. Búist er við að móðirin
og sambýlismaður hennar verði
ákærð fyrir meðferðina á honum.
Skilin eftir að hafa
unnið tugi milljarða
n Hjónabandið varð fyrir óbætanlegum skaða n Unnu risapott í Euromillions
H
jónin sem hrepptu risa-
lottópott í Euromillions í
fyrra eru skilin. Hjónin heita
Adrian og Gillian Bayford
en fyrir fyrsta vinning fengu
þau 148 milljónir punda, sem sam-
svara um 29 milljörðum íslenskra
króna. Peningarnir hafa sannarlega
ekki gert þau hamingjusöm hjón því
fjölmiðlar í Bretlandi greina frá því
að þau séu nú skilin eftir að hjóna-
band þeirra varð fyrir óbætanlegum
skaða. Þau neita alfarið að tjá sig um
málið við breska fjölmiðla en þau
komust í heimsfréttirnar eftir að þau
gáfu sig fram eftir að hafa hreppt
þennan risapott.
Það er breska dagblaðið The Daily
Mail sem greinir frá málinu en þar
kemur fram að Gillian búi nú í húsi
sem kostar sex milljónir punda, eða
um einn milljarð íslenskra króna, en
það er húsið sem hjónin fyrr verandi
fjárfestu í eftir að hafa hreppt lottó-
vinninginn. Adrian býr í íbúð sem
kostar um 98 milljónir íslenskra
króna.
Vildu verja meiri tíma með
fjölskyldunni
Áður en þau duttu í lukkupottinn
starfaði Gillian á næturvöktum á
sjúkrahúsi en Adrian rak litla hljóð-
færabúð þar sem hann seldi einnig
notaðar hljómplötur. „Hvorugt okkar
nær að fanga hve há upphæð þetta er,“
sagði Adrian í fyrra þegar þau hrepptu
vinninginn. „Við höfum ávallt unnið
fyrir okkar og safnað fyrir ferðalögum.
Við höfum ekki farið fram úr okkur
þegar kemur að eyðslu og höfum
unnið eins og hestar fyrir því sem við
eigum,“ sagði Adrian fyrir ári og bætti
við að þessi vinningurinn myndi gera
það að verkum að þau gætu varið
meiri tíma með fjölskyldunni. „Þessi
peningur kom á réttum tíma fyrir okk-
ur og mun öll fjölskyldan njóta góðs
af honum. Við munum deila þessum
peningi svo að líf þeirra sem standa
okkur næst muni batna.“
Meðal þeirra ríkustu í Bretlandi
Þegar þau fögnuðu þessum vinningi
pöntuðu þau pítsu frá Domino‘s
og ákvað Bayford að halda áfram
með rekstur verslunar sinnar. Hann
neyddist þó síðar til að loka versl-
uninni eftir að hafa orðið fyrir miklu
áreiti vegna nýfengins auðs.
Athyglin virðist hafa haft mik-
il áhrif á þau en þau komust á lista
yfir ríkasta fólk Bretlands þar sem
þau sátu í 488. sæti, rétt á eftir Bítl-
inum Ringo Starr og voru 23 milljón-
um punda ríkari en tónlistarmaður-
inn Eric Clapton.
Þeir sem þekkja til þeirra segj-
ast hafa fundið fyrir óhamingju í
hjónabandi þeirra um nokkurt skeið
eftir að þau eignuðust þessa pen-
inga. „Það er mikil synd því þetta
var yndisleg fjölskylda. Það glöddust
allir yfir því þegar þau duttu í lukku-
pottinn,“ hefur breska dagblaðið The
Sun, sem einnig fjallaði um skilnað-
inn, eftir nánum vini hjónanna á vef
sínum. n
Meðan allt lék
í lyndi Gillian og
Adrian Bayford
hér með lottó
vinninginn.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
„Þessi peningur
kom á réttum
tíma fyrir okkur og mun
öll fjölskyldan njóta góðs
af honum.
Aldraður í haldi
í Norður-Kóreu
85 ára Bandaríkjamaður, Merrill
Newman, er sagður vera í haldi
yfir valda í Norður-Kóreu. Frá
þessu greindi bandaríski fjölmið-
illinn Bay Area News á fimmtudag.
Í umfjöllun blaðsins kemur fram
að Newman hafi komið til Norður-
Kóreu sem ferðamaður í gegnum
kínverska ferðaskrifstofu. Er hann
sagður hafa verið leiddur frá borði
flugvélar sem var á leið frá landinu
fyrir þremur vikum. Hvorki yfir-
völd í Bandaríkjunum né Norð-
ur-Kóreu hafa staðfest tíðindin en
yfirvöld í Bandaríkjunum eru sögð
vera að skoða málið.
Flugvél föst á of
litlum flugvelli
Ein stærsta flutningaflugvél heims
situr föst á flugvelli í Wichita í
Bandaríkjunum. Vélin lenti á flug-
vellinum fyrir mistök og síðar kom
í ljós að flugbraut vallarins er of
stutt fyrir vélina til að hún kom-
ist á loft með öruggum hætti. Vél-
in sem um ræðir er af gerðinni
Boeing 747 Dreamliner og er
talin þurfa að minnsta kosti 2.780
metra langa braut. Brautin á flug-
vellinum í Wichita er hins vegar
einungis 1.860 metra löng. Óvíst
er til hvaða bragðs verður gripið til
að koma vélinni burt.