Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 25
Sport 25Helgarblað 22.–24. nóvember 2013
voru nískir á boltann,“ sagði
Eiður í viðtali við Morgun
blaðið eftir Spánarferðina.
Hann lýsti því í viðtali við
DV 7. maí 1994 að hann
væri ákveðinn í að ger
ast atvinnumaður. „Ég er
ekkert að stressa mig á því
hvenær það verður. Ég
hugsa núna fyrst og fremst
um að spila hérna heima
og ætla að láta sumarið
líða og sjá síðan til hvað
gerist í haust. Það yrði í
fyrsta lagi þá sem ég færi
út,“ sagði Eiður.
Samdi við PSV
Raunin varð sú því hol
lenska liðið PSV samdi
við Eið eftir fyrsta sum
ar hans með Val. Fyrsta
tímabilið spilaði Eiður
með varaliðinu en annað
tímabilið var Eiður
kallaður inn í aðal
liðið eftir að Brasilíu
maðurinn Rona
ldo, sem síðar átti
eftir að verða besti
knattspyrnumaður
heims, meiddist. Eið
ur skoraði 3 mörk í 13
leikjum þetta tímabil
og var þegar þarna
var komið sögu farinn
að banka upp á hjá A
landsliðinu.
Í apríl 1996 voru
bæði Eiður og faðir
hans valdir í hópinn
fyrir vináttuleik gegn
Eistum og var Arnór í
byrjunarliðinu en Eið
ur á bekknum. Hefðu
þeir verið báðir inni á
samtímis hefðu þeir
orðið fyrstu feðgarn
ir í sögunni til að spila
landsleik saman, en
þess í stað kom Eið
ur inn á fyrir föður
sinn. Þessi ákvörðun
landsliðsþjálfarans,
Loga Ólafssonar,
vakti mismikla
kátínu og lofaði
hann að þeir fengju
að spila saman í fyrsta
leik undankeppni HM
þegar Íslendingar mættu
Makedóníumönnum 1.
júní 1996. Áður en kom
að því meiddist Eiður illa
í leik með U21 árs lands
liðinu er hann ökkla
brotnaði og varð því
aldrei neitt úr því að þeir
lékju saman með lands
liðinu. Eiður var lengi að
glíma við meiðslin og það
var ekki fyrr en tveimur
árum síðar að hann lék
aftur knattspyrnu.
Útlitið var ekki bjart
Eiður gafst ekki upp og í
maí 1998 fór hann á láni
frá PSV til KR og er óhætt
að segja að hann hafi
ekki verið í sínu besta formi eftir að hafa
glímt við meiðslin.
Guðmundur Benediktsson íþróttaf
réttamaður spilaði með Eiði Smára í U21
árs landsliðinu og var í KR þegar Eiður
sneri til baka eftir meiðslin. Þó að Eið
ur hafi ekki verið í sínu besta formi segist
Guðmundur alltaf hafa haft trú á að hann
myndi ná langt. „Ég átti alveg von á að
hann færi langt ef hann næði sér af meiðsl
unum. Það var aldrei spurning hvert hann
var að fara og það voru bara meiðslin sem
gátu komið í veg fyrir það. Auðvitað var
útlitið ekkert sérstaklega bjart á þessum
tímapunkti en hann hafði tímann til að
koma sér í form. Hæfileikarnir sem voru
og eru þarna til staðar eru engu líkir,“ segir
Guðmundur og bætir við að hann útiloki
ekki að meiðslin hafi hjálpað Eiði. „Þeir
íþróttamenn sem hafa náð einna lengst
hafa margir lent í áföllum, jafnvel stórum
snemma á ferlinum, og þá er eins og menn
verði þakklátari fyrir það að vera heilir og
gera meira í því að sjá til þess að haldast
heilir. Ég er ekki frá því að þetta hafi hjálp
að honum þótt þetta hafi verið leiðinlegt á
sínum tíma.“
Eiður lék ekki marga leiki þetta sum
ar en var þrátt fyrir það boðið til æfinga
hjá Bolton í Englandi. Þar stóð hann sig
nægjanlega vel til að vera boðinn samn
ingur. Bolton fékk Eið
frítt og er óhætt að segja
að forsvarsmenn Bolton
hafi dottið í lukkupott
inn þótt þeir hafi vissu
lega tekið áhættu.
Menn brostu út í annað
Arnar Gunnlaugsson,
fyrrverandi landsliðs
maður, var í Bolton
þegar Eiður kom til fé
lagsins sumarið 1998.
„Við vorum í æfingabúð
um á Írlandi þegar hann
kom til móts við liðið. Ég
man að menn brostu út í
annað þegar þeir sáu lík
amlegt atgervi hans. Það
entist þar til eftir fyrstu
æfinguna þegar menn
sáu hvað hann gat,“ rifj
ar Arnar upp.
Eiður kom sér hægt og bítandi í form
og var farinn að spila reglulega eftir ára
mót tímabilið 1998/1999. Liðið lék á þeim
tíma í næstefstu deild Englands. Í septem
ber 1999 skoraði Eiður fyrsta landsliðs
mark sitt fyrir Ísland og í kjölfarið sló hann
rækilega í gegn með Bolton og skoraði 21
mark í 55 leikjum á sínu öðru tímabili.
Forsvarsmenn Bolton ákváðu að selja Eið
sumarið 2000 vegna fjárhagsvandræða og
fór svo að Chelsea, sem lenti í 5. sæti úr
valsdeildarinnar árið áður, keypti Eið á
fjórar milljónir punda. Það er í raun óþarfi
að fara mörgum orðum um glæstan fer
il Eiðs hjá Chelsea. Hann myndaði eitt
hættulegasta framherja par deildarinn
ar með Jimmy Floyd Hasselbaink og varð
Englandsmeistari með liðinu árin 2005 og
2006. Eiður skoraði samtals 75 mörk fyr
ir Chelsea á sex tímabilum og skipaði sér
sess meðal bestu leikmanna áratugarins í
ensku úrvalsdeildinni.
Arnar segir að margir geri sér ekki al
mennilega grein fyrir því hversu góður
Eiður var í Englandi. „Hann var að keppa
við stórstjörnur hjá Chelsea og halda þeim
út úr liðinu. Dæmi um það er Gianfranco
Zola sem þurfti að sætta sig við að vera á
bekknum þegar Eiður kom þangað,“ seg
ir Arnar en Zola er af mörgum talinn einn
besti útlendingurinn sem spilað
hefur í úrvalsdeildinni. „Fyrra árið
undir stjórn Mourinho, tímabilið
2003/2004, var hann einn af þrem
ur lykilmönnum Chelsea,“ segir
Arnar en það tímabil varð Chelsea
Englandsmeistari.
Aftur til Barcelona
Tólf árum eftir að hafa æft með
Barcelona sem stráklingur kom
spænska stórliðið og gerði Chelsea
tilboð í Íslendinginn sem ómögu
legt var að hafna. Á þeim tíma,
árið 2006, var Roman Abramovich
búinn að eignast Chelsea og
kaupa hvern leikmanninn á
fætur öðrum til félagsins. Eið
ur ákvað því að ganga í raðir
Barcelona þar sem honum var
ætlað að leysa sænska marka
hrókinn Henrik Larsson af hólmi.
Talið er að Barcelona hafi greitt tólf millj
ónir evra fyrir Eið Smára. Hann byrjaði
frábærlega með Börsungum og skoraði
sigurmark þremur mínútum fyrir leiks
lok í sínum fyrsta leik í deildinni. Hann
skoraði svo gegn sínum gömlu félögum
í Chelsea í Meistaradeildinni í október
2006 og hélt áfram að skora mikilvæg
mörk fyrir félagið. Hann skoraði tólf mörk
á sínu fyrsta tímabili og aðeins Samuel
Eto'o, Ronaldinho og Lionel Messi skor
uðu fleiri mörk. Síðasti leikur Eiðs Smára
í treyju Barcelona var úrslitaleikur Meist
aradeildarinnar gegn Manchester United
vorið 2009. Eiður var ónotaður varamað
ur þegar Barcelona vann 2–0 sigur en varð
þar með fyrsti Íslendingurinn til að vinna
Meistaradeildina.
Erfiðir tímar
Sumarið 2009 tilkynnti Josep Guardi
ola, stjóri Barcelona, að Eiður mætti yf
irgefa félagið. Svo fór að Eiður samdi við
Monaco og við tóku erfiðir tímar hjá okk
ar manni. Eiður átti erfitt uppdráttar í
Monaco sem átti í tómu basli í frönsku
deildinni. Eftir 11 leiki og ekkert mark
var Eiður lánaður til Tottenham þar sem
hann sýndi ágæta takta. Á lokadegi félaga
skiptagluggans 2010 fór Eiður á frjálsri
sölu til Stoke. Eiður passaði engan veg
inn inn í leikskipulag stjórans, Tony Pulis,
og lék í það heila aðeins fimm leiki þar til
hann var lánaður til Fulham í janúar 2011.
Eftir að lánssamningurinn var búinn
var Eiður látinn fara frá Stoke og samdi
hann við AEK í Aþenu á frjálsri sölu í júlí
2011. Í október það ár fótbrotnaði Eiður
og var frá keppni fram í apríl 2012. Í júlí
komst hann að samkomulagi við stjórn
AEK um að vera leystur undan samningi
vegna fjárhagsvandræða Aþenu liðsins.
Eiður fór í kjölfarið á kunnug legar slóð
ir, til Belgíu, þar sem hann samdi við
Cercle Brugge. Eiður var einn besti mað
ur liðsins og skoraði 7 mörk í 14 leikj
um áður en hann samdi við nágranna
liðið, Club Brugge, í janúar á þessu ári.
Eiður hefur verið inni og út úr liðinu
undanfarnar vikur og er alls óvíst hvað
tekur við hjá þessum besta knattspyrn
umanni Íslandssögunnar að tímabili
loknuw. Þó að Eiður hafi átt erfitt upp
dráttar hjá félagsliðum sínum undanfar
in misseri hefur hann notið þess að spila
með landsliðinu og spilað vel. Miðað við
frammistöðu hans og líkamlegt form á
Eiður nóg eftir og aldrei að vita nema hann
klæðist treyju landsliðsins aftur. Það er að
minnsta kosti alltaf pláss fyrir góða leik
menn í íslenska landsliðinu – skiptir þá
engu hvort viðkomandi er 35 ára. n
„Ég
man
að menn
brostu út í
annað þegar
þeir sáu lík-
amlegt at-
gervi hans
Evrópumeistari
Eiður fagnar hér Meist-
aradeildartitlinum
vorið 2009. Mynd rEutErS
Síðasti heimaleikurinn?
Eiður gengur af velli eftir
jafnteflið gegn Króatíu á
Laugardalsvelli fyrir viku.
Mynd Sigtryggur Ari
20.júní 2000
Finndu
þinn tón
...og leiktu af
fingrum fram!
Þú finnur þinn tón í Hagkaup,
Lyfju, Lyfjum & Heilsu og víðar.