Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 35
Sakamál 35Helgarblað 22.–24. nóvember 2013
H
inar ýmsu kenningar hafa lif-
að góðu lífi síðan Kennedy
var myrtur. Ásakanir gengu
á víxl, hreinar lygar fengu
vængi, hálfsannleikur, ill-
kvittnisleg plott voru upphugsuð og
jafnvel fölsuð gögn skutu upp koll-
inum. Svo virtist sem nánast allir
sem með einhverju móti var hægt að
bendla við málið hefðu einhverju að
leyna.
Ein þeirra samsæriskenninga sem
lengst hafa loðað við morðið á Kenn-
edy tengjast mafíunni en áður en
lengra er haldið er vert að geta úr-
skurðar Warren-nefndarinnar árið
1964. Í hnotskurn var niðurstaðan
einföld; morðið á Kennedy tengdist
engu samsæri.
Sagan segir að sumir nefndarmenn
hafi skammast sín fyrir niðurstöðuna
og haft var eftir einum þeirra: „Svörin
sem við fengum voru ófullnægjandi,
en við sóttum málið ekki fastar því
þá hefðum við þurft að bera brigð-
ur á niðurstöður alríkislögreglunnar,
og árið 1964 gerðum við það einfald-
lega ekki.“ Annar nefndarmaður var
ómyrkari í máli: „Forstjóri FBI, J. Edgar
Hoover, laug sig máttlausan fyrir
nefndinni; hann laug um Oswald, um
Ruby, um vini þeirra, byssukúlurnar,
byssuna, bara nefndu það …“
Persónuleg launungarmál
Það má leiða líkur að því nefndin hafi
tekið rétta ákvörðun í ljósi valda al-
ríkislögreglunnar og einkum og sér í
lagi J. Edgars Hoover á þessum tíma. Í
valdatíð hans sankaði alríkislögreglan
að sér upplýsingum um helgustu
leyndarmál nánast allra áhrifamanna
bandarísku samfélagi og að sjálfsögðu
voru þungavigtarmenn í ríkisstjórn
Kennedys ekki undanskildir.
Með vitneskju sinni gat Hoover
mýlt hvern þann sem ógnaði veldi
hans og ef samsæriskenningar
kæmust á kreik væri hætta á að stoðir
alríkislögreglunnar riðuðu til falls og
Hoover í kjölfarið.
Nefndarmenn gátu vart hugsað til
enda afleiðingar þeirra hefndarráð-
stafana sem Hoover kynni þá að grípa
til. Hvað sem heljartaki Hoover leið þá
sveif andi efasemda yfir niðurstöðu
nefndarinnar og efasemdaraddir urðu
æ háværari.
Árið 1979 þegar Hoover var allur
og ógnin sem af honum stóð að engu
orðin var sett á laggirnar þingnefnd
sem gert var að endurskoða niður-
stöður Warren-nefndarinnar. Niður-
staðan; um samsæri hafði verið að
ræða og margt studdi þann úrskurð.
Þrátt fyrir þá niðurstöðu má leiða líkur
að því að hvað samsæriskenningar
áhrærir sé nú aðeins að finna glæður
þar sem fyrr meir brunnu eldar.
Óvefengjanlegar staðreyndir
Ekki hefur verið deilt um að skotum
var hleypt af út um glugga á 6. hæð
Texas School Book Depository, þar
með talið það skot sem banaði Kenn-
edy. En við endurmat þingnefndar-
innar 1979 komu fram vitni sem sögðu
að fleiri skotum hefði verið hleypt af til
hægri og fyrir framan bifreið forset-
ans; af svæði sem nú kallast „grassy
knoll“ eða grösugi hóllinn.
Á meðal vitnanna var hermaður í
orlofi, Gordon Arnold, sem sagði að
einu skoti hefði verið hleypt af fyrir
aftan hann, af grösuga hólnum. Hann
sagðist hafa rekist á leyniþjónustu-
fulltrúa þar sem hefði vísað honum á
brott – skotið kom úr þeirri átt.
Lögreglumaður nokkur, Joseph
Smith, studdi frásögn Gordons, hann
hafði rekist á mann að baki hólsins og
sagðist sá vera leyniþjónustufulltrúi.
En fyrirspurnir nefndarinnar leiddu í
ljós að enginn fulltrúi Secret Service
hafði verið staðsettur þar. Hvaða mað-
ur var þar á ferð?
Maður hér og menn þar
Fleiri manns báru vitni fyrir nefndinni
og sögðust hafa séð eitthvað grun-
samlegt; tvo menn á þessum stað rétt
fyrir skotárásina; mann á hlaupum frá
vettvangi sem síðar settist inn í svarta
bifreið og brunaði á brott.
Fjöldi skota var einnig eitthvað á
reiki, aðeins þrjú skothylki fundust í
byggingu bókageymslu Texas en þeir
voru til sem sögðust hafa heyrt fjóra
skothvelli. Við endursköpun atburða-
rásarinnar kom í ljós að Lee Harvey
hefði aðeins haft góða yfirsýn í 5 eða
6 sekúndur – nægði sá tími honum til
að hleypa af þremur skotum og þar af
tveimur með þeirri nákvæmni sem
raun bar vitni? Hvað þá fleiri?
Endurkast
Margt af þessu fór þvert á kenningu
Warren-nefndarinnar árið 1964. Sam-
kvæmt hennar kenningu hafði einn
maður haft ráðrúm til að hleypa af
þremur skotum. Svo kenningin stæð-
ist leiddu þeir líkur að því að fyrsta
skotið hefði lent í aftanverðum hálsi
Kennedys, farið út að framan og end-
að í bringu Connally ríkisstjóra.
Sú kúla sem hafnaði í Connally
fannst síðar á sjúkrabörum hans en
var nánast óskemmd –
hverjar voru líkurnar á
því?
Sama kúlan hefði
ekki getað farið í gegnum
háls Kennedy og endað
í Connally nema ef hún
hefði endurkastast af
bílnum, og þá hefði
kúlan afmyndast.
Sjálfur trúði Conn-
ally því ekki að um sömu
kúlu hefði verið að ræða;
hann heyrði skothvell
og hafði samt tíma til að
snúa sér til hægri og síð-
an örlítið til vinstri áður
en hann lyppaðist niður,
skotinn í bringuna.
Sovéttengingin
Þeirri spurningu af hverju Lee Harvey
myrti Kennedy hefur aldrei verið svar-
að, þökk sé Jack Ruby, sem einhverra
hluta vegna var aldrei yfirheyrður al-
mennilega. Margt var á huldu hvað
Lee Harvey varðaði, en tengsl hans
við Sovétríkin, sem þá voru, höfðu
ekki farið fram hjá FBI.
Reyndar fór um menn innan FBI
þegar Lee Harvey var nefndur til
sögunnar sem morðingi Kennedy.
Maður sem þeir þekktu vel til, sem
þeir vissu að hafði á sínum tíma
hlaupist undan merkjum og dvalið í
Sovétríkjunum, og þeir, í ljósi atburða
22. nóvember, höfðu greinilega að því
er virtist ekki fylgst nógu vel með.
Inn í vangavelturnar blandaðist
Rússagrýlan því Lee Harvey hafði
dvalið í Sovétríkjunum í hálft annað ár
og haldið dagbók um drauma sína og
væntingar til lífsins þar. Sagan segir að
sú dagbók hafi verið fölsuð – skrifuð í
tveimur áföngum sennilega rétt áður
en Lee Harvey sneri aftur til Banda-
ríkjanna.
Samsæri leyniþjónustunnar
Hvaða gerðist eftir að Lee Harvey kom
til Moskvu er á huldu. En eitthvað olli
því að þegar hann sneri til Bandaríkj-
anna og settist að í Dallas hafði hann
umbreyst og var þegar þar var komið
sögu orðinn annaðhvort fyrirsvars-
maður eða leppur samtaka sem vildu
fjarlægja Kennedy af hinum pólitíska
vettvangi.
Samsæriskenning sem bendlaði
CIA við morðið á Kennedy varð til.
Samkvæmt henni höfðu ákveðnir
menn af hægri væng innan leyniþjón-
ustunnar ráðið Lee Harvey til að fyrir-
koma forsetanum.
Enn þann dag í dag er einungis um
kenningu að ræða, enda ekkert kom-
ið fram sem treyst getur stoðir hennar.
Kúba og Castro
Í ljósi sambands Kennedy og Castro,
leiðtoga Kúbu á þessum tíma, varð
nánast óumflýjanlegt að Kúba yrði
bendluð við morðið á forsetanum.
Leyniþjónustan réð menn úr röðum
mafíunnar til að koma Castro yfir
móðuna miklu, enda var mafíós-
um mörgum hverjum í mun að hefja
mafíuna til fyrri vegs og virðingar á
Kúbu.
En leyniþjónustan hafði ekki er-
indi sem erfiði og greip til þess ráðs
að setja saman her brottfluttra Kúbu-
manna sem skyldi gera innrás á
Kúbu. Þeirri innrás, sem kennd er við
Svínaflóa, lyktaði hörmulega hvað
Bandaríkin áhrærði og leiddi síðar til
þráteflis þjóðanna vegna kjarnorku-
vopna sem komið var upp á Kúbu
með fulltingi Sovétmanna, en það er
önnur saga.
Sama dag og Kennedy var ráðinn
af dögum hitti fulltrúi CIA, Rolando
Cubella, ráðherra í ríkisstjórn Castro, í
París í Frakklandi. Cubella var orðinn
fráhverfur Castro og hafði boðið fram
þjónustu sína til að koma Castro fyrir
kattarnef. Cubella fékk í hendurn-
ar sérhannaðan penna. Penninn var
þannig úr garði gerður að sá sem skrif-
aði með honum þyrfti ekki að kemba
hærurnar. Ekkert varð af tilræði
Cubella því Lee Harvey myrti Kennedy
áður en til þess kom, og vaknar þá sú
spurning hvort það hafi, eftir allt, verið
Kúbumenn sem réðu Lee Harvey til að
myrða forseta Bandaríkjanna.
Vinsælasta kenningin
Mafíukenningin hefur löngum notið
mestra vinsælda. Hún er í reynd ekki
flókin; mafían vildi forsetann feigan
vegna þess að hann hafði boðið
skipulagðri glæpastarfsemi birginn.
Mafían vildi einnig koma forsetanum
undir græna torfu því honum hafði
mistekist að bola Castro frá völd-
um á Kúbu, og var Salvatore „Sam“
Giancana sérstaklega nefndur í því
samhengi. Fyrir valdatöku Castro
hafði starfsemi mafíunnar á Kúbu
verið arðbær með eindæmum.
Mafían taldi að ef Kennedy heyrði
sögunni til yrði bróðir hans, Bobby,
sem gegndi stöðu dómsmálaráð-
herra, hornreka ger og sviptur áhrif-
um. Bobby fór eðli málsins samkvæmt
fyrir stríðinu gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi.
Fræðilega er kenningin ekki fá-
ránleg fyrir margra hluta sakir. Í kjöl-
far morðsins á Kennedy einangraðist
Bobby og lítillar aðstoðar var að vænta
frá J. Edgar Hoover. Hoover hafði ávallt
verið í nöp við Bobby og alla tíð
afneitað tilvist mafíunnar. Með-
al þeirra manna sem nefnd-
ir voru til sögunnar í tengslum
við þátt Bobby að málinu öllu
voru mafíósinn Sam Gian cana
og stéttarfélagsleiðtoginn Jimmy
Hoffa. Sagan segir að augu
Bobby hafi einkum og sér í lagi
beinst að þessum tveimur dáða-
drengjum.
Stútfull mappa
Í sannleika sagt hafði Hoover
örlög Bobby í höndum sér, og
slíkt hið sama hafði gilt um Kenn-
edy meðan hann var á lífi.
Á meðal þess sem Hoover sankaði
að sér voru leyndarmál nafntogaðra
Bandaríkjamanna; leyndarmál sem
vörðuðu kynlífsathafnir þeirra, kyn-
hneigð og rekkjunauta. Innihald
möppu hans um Kennedy-bræðurna
var þvílíkt að hún var við að springa,
ef svo má að orði komast. J. Edgar
Hoover hafði gögn sem vörðuðu
hverja þá konu sem bræðurnir höfðu
sofið hjá og sannanir þar að lútandi.
Að baki mafíukenningunni
liggur sú hugmynd að Lyndon B.
Johnson varaforseti hefði gefið Bobby
reisupassann að Kennedy gengnum,
enda ríkti gagnkvæmt hatur á milli
þeirra.
Valdalaus gagnvart mafíunni
Enginn gat hins vegar rekið J. Edgar
Hoover án þess að eiga á hættu að
óhreinn þvottur yrði hengdur upp á
almannafæri. En Hoover átti sín eig-
in leyndarmál; samkynhneigð, klæð-
skiptablæti og áfergju í kynsvall – en
þau leyndarmál voru mafíunni vel
kunn. Því gat hann lítið aðhafst gagn-
vart mafíunni sem myndi ekki hika
við að svipta hulunni af huliðsmálum
Hoovers, ef ástæða krefði.
Í raun var mafían hæstánægð með
Hoover við stjórnvölinn hjá alríkislög-
reglunni og jafnvel áfjáð í að svo yrði
áfram svo lengi sem alríkislögreglan
héldi sig á mottunni.
Giancana var ekki eini mafíustór-
bokkinn sem hafði horn í síðu Kenn-
edy því Santo Trafficante í Flórída
hafði haft á orði að Kennedy „fengi
það sem hann átti skilið,“ og þurfti
enginn að efast um að hann hugsaði
Kennedy þegjandi þörfina.
Enn einn mafíósi, Carlos Marcello,
var nefndur til sögunnar og talið
nokkuð ljóst að hann bjó yfir vitneskju
um Lee Harvey Oswald.
Seint á 8. áratug síðustu aldar, eftir
að Jimmy Hoffa hvarf af yfirborði jarð-
ar, heyrðist Trafficante segja: „Carlos
Marcello og ég erum nú þeir einu sem
þekkja sannleikann um það sem átti
sér stað í Dallas,“ og mun hann eiga
lokaorðin í þessari yfirreið um það
sem gerðist í Dallas fyrir hálfri öld, og
eftirmála þess. n
Mafíutengingin lífseig
Kennedy myrtur
n Heimsbyggðin stóð á öndinni fyrir hálfri öld n Einn dáðasti forseti Bandaríkjanna féll fyrir morðingja hendi
Skipulögð glæpastarfsemi
Hvað vakti fyrir Jack Ruby hefur
aldrei komist á hreint en sjálfur
sagði hann síðar að hann hefði ver-
ið í öngum sínum vegna morðsins
á Kennedy og engan veginn getað
á sér heilum tekið. Að eigin sögn
hafði hann ráðið Lee Harvey bana
„til að hlífa frú Kennedy við þeirri
raun að vera viðstödd réttarhöld.“
Mörgum árum síðar sagði G.
Robert Blakey, yfirmaður sér-
stakrar nefndar vegna morðanna
á Kennedy og Martin Luther King,
sem starfaði frá 1977 til 1979, að
líklegasta skýringin hvað varðaði
morðið á Lee Harvey væri tengsl
við skipulagða glæpastarfsemi, „…
Ruby hafði elt hann […] reynt að
ná í hann að minnsta kosti þrisvar
sinnum á tveimur sólarhringum,
áður en hann þaggaði endanlega
niður í honum.“
Enginn annar
Parkland-sjúkrahúsið í Dallas varð
síðasti íverustaður Johns F. Kennedy,
Lee Harvey Oswalds og Jacks Ruby.
Sá síðastnefndi fór yfir móðuna
miklu 3. janúar 1967 á sjúkrahúsinu
á sama tíma og undirbúningur
vegna nýrra réttarhalda yfir honum
voru í fullum gangi.
Associated Press hafði eftir
ónafngreindum heimildarmanni að
Jack Ruby hefði gefið sína síðustu
yfirlýsingu 19. desember 1966, af
sjúkrabeði sínum á Parkland-sjúkra-
húsinu. Hann hefði staðið einn á bak
við morðið á Lee Harvey Oswald:
„Það er ekkert að fela … Það var
enginn annar bendlaður við það.“
Hver sem tilgangur Jacks Ruby
var og hvað sem lokaorðum hans
líður, hefur nú, hálfri öld síðar,
ekki enn fennt yfir morðið á Kenn-
edy. Tveggja daga atburðarás lagði
grunninn að samsæriskenningum
sem ekki sér enn fyrir endann á og
kennir þar margra grasa.
Heimildir: truelibrary.com,
wikipedia.org og fleiri miðlar - þýtt
og endursagt
n Enn er margt á huldu varðandi morðið n Hafsjór samsæriskenninga
Lee Harvey
Oswald
Vopnaður riffli
með komm-
únískt rit í
hægri hönd.
Forsetinn skotinn Tvö skot af þremur hæfðu John F. Kennedy.