Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 38
„Flestir kennarar og foreldrar
ættu að sjá þessa mynd“
Disconnect
Leikstjóri: Henry Rubin
38 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
„Óvenjulegur leikþokki“
Sveinsstykki
Leikstjóri: Þórhildur
Þorleifsdóttir
Vill ekki lifa hratt
Söngkonan Sigríður Thorlacius vill finna fyrir
sönnum anda jólanna. Hún sendi nýverið frá sér nýja
jólaplötu þar sem yrkisefnið er ljós og friður. Það er
í hennar anda, enda er hún gömul sál og gefur lítið
fyrir markaðssetninguna sem einkennir jólavertíðina.
Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Sigríði um jóla-
plötuna, söngferilinn, hljómsveitarlífið í Hjaltalín,
uppvöxtinn og hvað hún lærði af erfiðum systurmissi.
S
igríður tekur á móti blaða-
manni í íbúð sinni í mið-
borginni. Íbúðin er agnarlítil
en hlýleg og hlaðin persónu-
legum munum í gömlum stíl.
Hún segist enda gömul sál og býður
ekki í að skreyta hjá sér fyrir jólin. „Ég
læt mér nægja að kveikja á kerti,“ seg-
ir hún og hlær. „Skrautinu yrði ofauk-
ið hér. Það yrði bara eins og allt væri
í drasli.“
Hún býður upp á espressokaffi
úr forláta kaffivél og býður til sætis.
Í námunda við hana er ferðataska.
Allt er klappað og klárt fyrir tón-
leikaferðalag til Kanada með félög-
um hennar í Hjaltalín.
Hún er rósemin uppmáluð þrátt
fyrir að vera að leggja í hann inn-
an fárra klukkustunda. „Við spilum í
Toronto, Quebec og Montreal og svo
endum við í New York, þar býr okkar
ástkæra Rebekka, sem var með okkur
í Hjaltalín.“
Er enginn púrítani
Sigríður sendi nýlega frá sér jóla-
plötu. Platan heitir Jólakveðja og lög-
in eru samin af Guðmundi Óskari
Guðmundssyni bassaleikara og
Bjarna Frímanni Bjarnasyni, píanó-
og fiðluleikara. „Þetta eru allt saman
ný lög við gömul jólaljóð. Þetta er
ekki dæmigerð jólaplata, hún er há-
tíðleg en hún er lágstemmd,“ segir
Sigríður og fær sér sopa af kaffi. „Ég
er jólabarn og þykir vænt um jólin
en á sama tíma finnst mér samfé-
lagið fjarlægjast anda jólanna. Ég
vil ekki hljóma eins og Skröggur en
við ræddum um áherslurnar og vor-
um sammála um að finnast fólk sem
við umgöngumst þreytt á því hvern-
ig andi jólanna er notaður í auglýs-
ingar: Endilega kauptu þetta potta-
sett af því að jólin eru tími kærleika,“
segir Sigríður og brosir út í annað.
„Ég er enginn púrítani en mér leiðist
að hlusta á jólalög í nóvember og
myndi gjarnan vilja minni asa. Ég
myndi vilja hverfa til baka í þessum
efnum.“
Fundu gömul jólaljóð
Lög plötunnar endurspegla þessa
þrá eftir gamalli tíð. Textarnir eru
ljóð – þau elstu frá aldamótum 1900
og þau yngstu frá árinu 2000.
„Mér hefði aldrei dottið sjálfri í
hug að gera jólaplötu en hugmyndin
að baki plötunni fannst mér svo
heillandi að ég ákvað að slá til.
Við blöðuðum í gegnum ljóða-
bækur og fengum aðstoð við það frá
fólki. Ég hugsaði með mér að það yrði
erfitt að finna gömul jólaljóð sem
hafa ekki verið notuð. Það var ekki
endilega hugmyndin að þetta væru
ljóð sem hefðu ekki verið snert en við
vildum samt gera eitthvað nýtt.
Ég var glöð og hissa á hvað ég
fann mikið af fallegum ljóðum og eft-
ir konur líka.“
Fegurðin í einfaldleikanum
Á meðal þeirra skálda sem eiga ljóð
á plötunni eru Jóhannes úr Kötlum
og Jakobína Sigurðardóttir. Eitt ljóð-
anna fann Sigríður þegar hún fletti
bókum í bókabúð og það er það ljóð
sem henni finnst hvað fallegast á
plötunni.
„Ég hafði aldrei heyrt eitt ljóð
sem mér fannst ótrúlega fallegt.
Það er eiginlega eina ljóðið sem er
ekki sannkallað jólaljóð, það heit-
ir Frostrós á gleri og er eftir Höllu
Eyjólfsdóttur. Ég rakst á ljóðabókina
í bókabúð og heillaðist, ég henti pen-
ing á borðið og keypti bókina og lagið
við ljóðið er virkilega fallegt hjá Guð-
mundi og Bjarna.
Þeir hafa samið lögin út frá
ljóðunum, þau eru mjög söngvæn og
ég er hrifin af útkomunni. Það er ekki
mikið um jólabjöllur eða slíkt, feg-
urðin er í einfaldleikanum.“
Leiddumst
Síðustu ár hafa verið annasöm hjá
Siggu. Rétt fyrir síðustu jól gaf hún
út plötuna Enter 4 með Hjaltalín.
Platan fékk lofsamlega dóma og risti
djúpt. Ekki að ósekju því platan var
að ákveðnu leyti uppgjör við veikindi
Högna Egilssonar, söngvara sveitar-
innar, sem glímdi við geðhvarfasýki.
Hljómsveitin þurfti að standa þétt
saman og styðja við veikan félaga
sinn. Sigríður minnist tímans með
kærleika.
„Við gáfum út plötu í fyrra sem
kom öllum á óvart, hún kom út á
skrýtnum tíma og hún var erfið í
vinnslu. Högni var veikur og var fjarri
við kynningu plötunnar. Við gátum
ekki sagt frá því, veikindin lágu í loft-
inu. Hann lá inni á meðan við fórum
í viðtöl og auðvitað var tekið eftir því.
Annaðhvort hefðum við hætt við eða
gert þetta svona. Við leiddumst öll í
gegnum þetta. Studdum við félaga
okkar. Þetta var erfitt – stormur. En
þessi tími er fallegur í minningunni.
Hann steig svo sjálfur fram og sagði
frá veikindum sínum. Þegar ró féll
yfir allt saman fór fólk að hlusta á
plötuna og við fengum góða dóma.
Við fórum þessa leið og okkur
fannst við vera að byrja upp á nýtt.
Nú er það spurningin hvort við höld-
um áfram á þessari braut eða förum
enn aðra leið.“
Á eigið líf
Nú fylgja þau í hljómsveitinni Hjalta-
lín plötunni eftir. Sigríður segir allt
hafa lukkast á besta veg. Þeim geng-
ur vel að stilla saman strengi sína
í sveitinni en eiga sér öll eigið líf í
bransanum.
„Okkur hefur tekist að vera í
þessari hljómsveit en eiga samt okk-
ar líf. Við eigum líf saman og í hvert í
sínu lagi. Ég get bæði verið í Hjalta-
lín og sinnt eigin verkefnum. Ef ég
skipulegg mig get ég framkvæmt
svona klikkaðar hugmyndir, eins og
að búa til jólaplötu á nokkrum vik-
um,“ segir hún og kímir og segir að
þau hafi ekki hafið vinnsluna fyrr en
í október.
Guðfræði eða húsgagnasmíði
Hún hefur yndi af því að starfa við
tónlist. Hún hefur sungið frá blautu
barnsbeini og er ánægð að fá að gera
það sem hún er góð í.
Ef henni dytti í hug að hætta í tón-
list gæti hún hugsað sér að læra hús-
gagnasmíði, gerast grænmetisbóndi
eða læra guðfræði.
„Mér finnst stundum gott að láta
hugann reika um aðra hluti. Hvað
gæti beðið mín ef svo ólíklega vildi til
að ég fengi einn daginn nóg af tónlist.
Ég myndi nefnilega hætta um leið og
Tónlist
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
„Ég var svolítið
rugluð á tímabili
eftir að hún dó
„Ég er enginn
púrítani en mér
leiðist að hlusta á jólalög
í nóvember.
„Við leiddumst öll í gegnum þetta“
Sigga segir síðustu jól hafa verið erfiðan
tíma, en hún lítur til baka og minnist hans
með kærleika. MynD SiGtryGGur Ari