Fréttablaðið - 27.01.2015, Síða 34

Fréttablaðið - 27.01.2015, Síða 34
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 201514 SEAN CONNERY Sean Connery er sonur vörubílstjóra og keyrði einn slíkan sjálfur áður en hann varð leikari. Hann gegndi mörgum störfum og var meðal annars í breska hern- um. Hann er að sjálfsögðu best þekktur fyrir að leika njósnarann „007“ í fyrstu myndunum um James Bond auk þess að hafa verið til- nefndur til Óskarsverðlauna f y rir hlut- verk sitt í The Un- touch- ables. VIGGO MORTENSEN Árið 1980 útskrifaðist ein af stjörnum Hringadróttins- sögu, Viggo Mortensen, úr stjórnmálafræði og sögu frá St. Lawrence-háskóla. Eftir útskrift bjó hann meðal annars á Spáni, í Eng- landi og Dan- mörku og vann hin ýmsu störf, til dæmis keyrði hann vörubíl í Es- bjerg og seldi blóm í Kaupmannahöfn. ELVIS PRESLEY Áður en hann varð „kon- ungur rokksins“, einn fræg- asti tónlistarmaður heims og leikari, var Elvis Presley vöru- bílstjóri. Presley var fæddur þann 8. janúar 1935 í Tupelo í Mississippi við kjör sem voru langt frá því sem hann átti eftir að venjast síðar. Eftir að hann útskrifaðist úr skóla fékk hann starf við að keyra vöru- bíl hjá Crown Electric og fékk greidda litla fjörutíu dollara á viku fyrir. Eftir að hafa reynt í mörg ár að koma ferlinum á flug segja sögur að hann hafi fengið að heyra að hann ætti halda sig við trukkaakstur „því hann myndi aldrei slá í gegn sem söngvari“. CHEVY CHASE Grínleikarinn kunni, sem best er þekktur hér á landi sem Clark Griswold úr National Lampoon’s Vacation-myndun- um, byrjaði feril sinn í Saturday Night Live- þættinum. Áður en fer- illinn fór á f lug var hann meðal annars vöru- bíl- stjóri og verk- stjóri. LIAM NEESON Óskarsverðlaunahafinn Liam Neeson keyrði vöru- bíl áður en hann sló í gegn í kvikmyndum eins og Taken og Schindler’s List. Hann ólst upp á Norður-Írlandi þar sem fljótlega kom í ljós mikill áhugi hans á að verða leikari. Eftir að hafa verið í háskóla í stutta stund fór hann að vinna hjá Guinn- ess-bruggverksmiðjunni og vann þar á hinum ýmsu tækjum, allt f rá ly f tara upp í vöru- bíl. ELÍSABET II BRETADROTTNING Þrátt fyrir að vera ekki Hol ly wood-st jarna fær Elísabet II að vera með á þessum lista því hún var eitt sinn vörubílstjóri og mikill kappi. Drottningin gegndi herskyldu og starfaði sem bílstjóri og vélvirki en hún gekk í herinn í febrúar árið 1945. Þá var hún reynd- ar ekki orðin drottning en hún erfði krúnuna árið 1952 þegar faðir hennar lést. Keyrðu vörubíl fyrir frægðina Fræga fólkið í Hollywood gegndi hinum ýmsu störfum áður en það sló í gegn. Algengt er að þeir sem leita frægðar og frama þjóni til borðs á milli áheyrnarprufa en þessir kappar eiga það allir sameiginlegt að hafa keyrt vörubíla. Tæki í sérflokki frá RAG.IS Helluhraun 4, Hafnarfirði s. 565 2727 • gsm 892 7502 • www.rag.is Rafn A. Guðjónsson Sunward Beltagröfur á kyningar- verði Fliegl Thermo í malbikið Flieg Álvagnar Fliegl Beyslisvagnar Fliegl Vélavagnar Fliegl PUSH-OFF Sala - Innflutningur - Útflutningur Yfir 300 skráningar á heimasíðu. Vantar alltaf góð tæki á skrá. 25 árareynsla 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 1 -0 C 4 8 1 7 F 1 -0 B 0 C 1 7 F 1 -0 9 D 0 1 7 F 1 -0 8 9 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.