Fréttablaðið - 27.01.2015, Qupperneq 49
ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 2015 | TÍMAMÓT | 17
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SÆMUNDUR HÖRÐUR BJÖRNSSON
fyrrv. flugumsjónarmaður,
Háholti 16, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 19. janúar á Landspítala
Fossvogi. Útförin verður gerð frá
Hafnar fjarðarkirkju fimmtudaginn
29. janúar nk. kl. 15.00.
Eyjólfur Þór Sæmundsson Gerður Sigurðardóttir
Gunnar Hörður Sæmundsson Sigríður Björg Stefánsdóttir
Þórey Ósk Sæmundsdóttir Friðþjófur Helgi Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EMIL ÁGÚSTSSON
Melteigi 22,
Keflavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 22. janúar.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju,
þriðjudaginn 3. febrúar kl. 13.00.
Sigríður Jóhanns Óskarsdóttir
Ingileif Emilsdóttir Snorri Eyjólfsson
Anna María Emilsdóttir Árni Hannesson
Ægir Emilsson Sóley Ragna Ragnarsdóttir
Sigríður Þórunn Emilsdóttir
Valdimar Ágúst Emilsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þakka auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför systur minnar,
KRISTÍNAR INGÓLFSDÓTTUR
Grænumýri 18, Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Einihlíðar
á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun
og hlýhug í hennar garð.
Ólöf Ingunn Ingólfsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
EVA ÓSKARSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í faðmi
fjölskyldunnar, fimmtudaginn 22. janúar.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Margrét Stefánsdóttir Ingvar J. Karlsson
Ingvar Stefánsson Áslaug Hartmannsdóttir
Ásta Edda Stefánsdóttir Birgir Björgvinsson
Ellert K. Stefánsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
BJARGHILDUR SIGURÐARDÓTTIR
áður til heimilis
í Kelduskógum 1, Egilsstöðum,
sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík
þriðjudaginn 13. janúar, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. janúar
kl. 13.00.
Gerður, Sigurður, Björn, Bergljót, Ingibjörg
og Guðný Arabörn og fjölskyldur.
Elskuleg mamma mín, tengdamamma,
amma, langamma, frænka og æskuvinkona,
SOFFÍA JÓNSDÓTTIR
frá Hvammi í Dýrafirði,
lést í faðmi dóttur sinnar og umvafin
gæsku starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík
þann 22. janúar sl.
Útför Soffíu fer fram frá Neskirkju
fimmtudaginn 29. janúar nk. kl. 13.00.
Helga Sigurðardóttir Ólafur Jóhannsson
barnabörn og makar, barnabarnabörn, vinir og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SVÖVU INGIMUNDARDÓTTUR
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Lynghaga 12.
Ágúst Ingólfsson
Örn Ingólfsson Hrafnhildur Bjarnadóttir
Einar Ingólfsson Bára Bjarnadóttir
Hjartkær sonur minn, bróðir,
mágur og frændi,
MAGNÚS THORLACIUS EINARSSON
lést á heimili sínu að morgni föstudagsins
23. janúar. Útför verður frá Grensáskirkju,
föstudaginn 30. janúar kl. 11.00.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar.
Petrína Steinadóttir
Elín Einarsdóttir Guðm. Ingi Leifsson
Guðmundur Th. Einarsson Þórstína Aðalsteinsdóttir
Rósa Einarsdóttir Ragnar Baldursson
Steinunn E. Egeland Torstein Egeland
og frændsystkin.
Ástkær faðir okkar og afi,
JÚLÍUS CESAR OCARES ROMO
sem lést í San Antonio, Síle, þann
22. janúar var jarðsunginn í El Totoral í Síle
þann 23. janúar sl. Minningarathöfn verður
haldin miðvikudaginn 28. janúar kl. 16.00
í Fríkirkjunni Reykjavík.
Sandra Hlíf Ocares Erlendur Egilsson
Júlía Heiða Ocares Kristján Þór Gústafsson
Victor Ocares Rakel Sölvadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðursystir okkar,
GUÐRÚN INGIBJÖRG
KRISTÓFERSDÓTTIR
(DÚNNA)
Sogavegi 168, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
v/Hringbraut miðvikudaginn 21. janúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 29. janúar
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á sumarstarf
KFUK í Vindáshlíð eða Kristniboðssambandið.
Guðmundur Ingi, Sigurður og Elías Halldór Leifssynir
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
INGI KRISTINSSON
fyrrverandi skólastjóri,
lést laugardaginn 24. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hildur Þórisdóttir
Þórir Ingason Þorbjörg Karlsdóttir
Kristinn Ingason Bergdís H. Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Mér kom valið svo á óvart að það
lá við að mig svimaði. Þó sat ég,“
segir Steinunn Sigurðardóttir, fyrr-
verandi hjúkrunarframkvæmda-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands, um viðbrögð sín við því að
vera kjörin Skagamaður ársins 2014.
Útnefninguna hlaut hún á þorra-
blóti á Akranesi síðasta laugardag.
Auk blómaskreytingar frá verslun-
inni Model fékk hún Sögu Akraness
og málverk eftir Bjarna Þór mynd-
listarmann að gjöf. „Málverkið sýnir
gamla sjúkrahúsið á Akranesi eins og
það var þegar ég kom hingað fyrst
1972 og fremst á myndinni er kona,
ég álít að það sé ég sjálf að taka mín
fyrstu skref í hjúkrun,“ segir Stein-
unn glaðlega.
Viðurkenninguna fékk Steinunn
fyrir störf sín í þágu heilbrigðis-
þjónustu á Vesturlandi og þrautseigju
við öflun fjár til kaupa á nýju sneið-
myndatæki.
„Þó ég sé bráðung kona er ég komin
á 95 ára regluna og þegar ég hætti
að vinna hét ég því að gangast fyrir
stofnun Hollvinasamtaka Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands sem nær frá
Akranesi norður á Hólmavík og
Hvammstanga. Fékk með mér fjóra
röska einstaklinga og samtökin urðu
til fyrir nákvæmlega einu ári. Mjög
fljótlega var ákveðið að fá fólk í lið
með okkur og kaupa sneiðmyndatæki.
Það er rúmlega 40 milljóna króna
dæmi. Með okkur eru almenningur,
fyrirtæki og félagasamtök á svæðinu,
auk þess sem ráðuneytið kemur inn
í,“ lýsir Steinunn og segir tækið von-
andi verða afhent á þessu ári.
Steinunn kveðst upphaflega vera
Reykvíkingur en hafa komið til
Akraness sem nýútskrifaður hjúkr-
unarfræðingur og bara ætlað að vera
þar í þrjá mánuði. En örlögin tóku í
taumana. „Ég hitti manninn minn
og hef verið hér óslitið í 53 ár, nema
hvað ég var í Danmörku í tvö ár fyrir
næstum 40 árum, að vinna og í fram-
haldsnámi.“ Hún á 12 ára setu í bæj-
arstjórn Akraness að baki og nær 30
ár sem hjúkrunarforstjóri. Nú sinnir
hún ráðgjafastörfum þegar eftir því
er leitað.
gun@frettabladid.is
Lá við að mig svimaði
Steinunn Sigurðardóttir, fyrrverandi hjúkrunarframkvæmdastjóri, var kjörin Skagamaður árs-
ins 2014 fyrir heilbrigðisþjónustu og þrautseigju við söfnun fyrir nýju tölvusneiðmyndatæki.
SKAGAMAÐUR ÁRSINS 2014 „Auðvitað er oft einhver forystusauður en ég lít á þetta sem viðurkenningu til okkar allra sem höfum unnið að
söfnuninni.“ MYND MYNDSMIÐJAN SF.
Málverkið sýnir gamla
sjúkrahúsið á Akranesi eins
og það var þegar ég kom
hingað fyrst 1972 og fremst
á myndinni er kona, ég álít
að það sé ég sjálf að taka
mín fyrstu skref í hjúkrun.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
0
-6
4
6
8
1
7
F
0
-6
3
2
C
1
7
F
0
-6
1
F
0
1
7
F
0
-6
0
B
4
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K