Fréttablaðið - 27.01.2015, Side 58

Fréttablaðið - 27.01.2015, Side 58
27. janúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26 Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Katar eirikur@frettabladid.is SPORT HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagðist vera stoltur af sínum mönnum fyrir frammistöðuna á HM í handbolta, þó svo að niðurstaðan hafi ekki verið eftir óskum manna. „Ég ætla ekki að vera með neina niðurrifsstarfsemi. Ég er mjög ánægður með strákana og þeirra vinnu– þeir voru mjög virkir á öllum fundum og vildu gera sitt allra besta. Það er ekki nokkur spurning um það,“ segir hann. „En auðvitað vildum við meira.“ Hann segir að danska liðið hafi einfaldlega verið betra gegn því íslenska í gær. „Við vorum að spila við svakalegan múr sem okkur reyndist erfitt að brjóta niður,“ segir Guðjón Valur. „Ef við horfum blákalt á málin þá erum við ekki í hópi fimm eða átta bestu liða heimsins í dag. En mikið rosalega vona ég að við komumst þangað aftur.“ Hann segir allt hægt í íþróttum og hefur trú á því að Ísland geti aftur náð í allra fremstu röð, þrátt fyrir áföllin sem dundu yfir liðið á þessu móti. „Þá hugsar maður sig vissulega um en þannig er líf íþróttamannsins. Heilt yfir fannst mér við komast ágætlega frá mótinu en við fengum Dani í 16-liða úrslitum. Og það var helvíti erfitt.“ - esá Svona er bara blákaldur veruleikinn SÚRT Guðjón Valur Sigurðsson eftir leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK Sverre Jakobsson, varnartröllið í íslenska liðinu, lék líklega sinn síðasta landsleik á móti Dönum í gær. Hann sagðist þó í viðtali við Arnar Björnsson vera til taks í umspilsleikina í Evrópukeppninni verði kallað á hann. „Já, það er mjög líklegt að þetta sé síðasti leikurinn ekki nema að eitthvað komi upp á og að Aron hringi vegna meiðsla eða hann lendi í ein- hverjum vandræðum. Annars lít ég á þetta sem minn síðasta landsleik. Þess vegna er það enn þá sárara að tapa þessu svona,“ sagði Sverre í Vísisviðtali við Arnar. Sverre hefur spilað síðustu 58 leiki ís- lenska liðsins á stórmótum eða allt síðan að hann missti af þriðja síðasta leik liðsins á Evrópumótinu 2008. HM í Katar var hans tíunda stórmót á ferlinum. Svanasöngur Sverre í Doha í gær? ÚRSLIT SEXTÁN LIÐA ÚRSLIT Þýskaland - Egyptaland 23 - 16 (12-8) Pólland - Svíþjóð 24 - 20 (10-11) Ísland - Danmörk 25 - 30 (10-16) Mörk Íslands (Skot): Alexander Petersson 7 (11), Guðjón Valur Sigurðsson 6/2 (11/2), Kári Kristján Kristjánsson 3 (3), Vignir Svavarsson 3 (3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 (5), Arnór Þór Gunnarsson 1 (2), Sigurbergur Sveinsson 1 (3), Arnór Atlason 1 (4), Snorri Steinn Guðjónsson 1 (5), Róbert Gunn- arsson (1), Gunnar Steinn Jónsson (2). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 20 (50/3, 40%). Mörk Dana (Skot): Rasmus Lauge 6 (7), René Toft Hansen 4 (6), Mads Mensah Larsen 3 (4), Mikkel Hansen 3 (4), Anders Eggert 3/1 (4/1), Hans Lind- berg 3/2 (4/2), Mads Christiansen 3 (8), Casper Mortensen 2 (4), Henrik Toft Hansen 1 (1), Lasse Svan Hansen 1 (2), Bo Spellerberg 1 (2), Jesper Nöddesbo (1), Kasper Söndergaard Sarup (1), Varin skot: Niklas Landin 19 (36/1, 53%), Jannick Green 6 (14/1, 43%). Frakkland - Argentína 33 - 20 (16-6) ÁTTA LIÐA ÚRSLITIN Á HM Króatía - Pólland Miðvikudagur Danmörk - Spánn Mið. Katar - Þýskaland Mið. Slóvenía - Frakkland Mið. visir.is Meira um leiki gærkvöldsins ÍSLAND DANMÖRK 25 - 30 (10 - 16) Í HVAÐA STÖÐUM HAFÐI ÍSLAND BETUR HRAÐAUPPHLAUP 5 6 ● 1. BYLGJA 0 (1-1) ● 2. BYLGJA -1 (4-5) ● LOKAÐI MARKINU Í BYRJUN Niklas Landin, aðalmarkvörður danska liðsins, varði sjö fyrstu skot Íslendinga í leiknum og var með 56 prósent markvörslu í fyrri hálfleik. ● TÓK SJÖ MÍNÚTUR AÐ SKORA Fyrsta mark íslenska liðsins kom ekki fyrr en eftir sjö mínútna leik en þá var staðan orðin 5-0 fyrir Dani. Ísland klikkaði á sex fyrstu sóknum sínum. ● NÍU MÖRK Í RÖÐ Alexander Petersson kom að níu mörkum ís- lenska liðsins í röð í seinni hálfleik með því að skora sjálfur (3), gefa stoðsendingu (5) eða gefa línusend- ingu á mann sem fiskaði víti (1). ● NÝTTU SÍN FÆRI Línumennirnir Kári Kristjánsson og Vignir nýttu báðir öll þrjú skotin sín í leiknum. ● TÓKU HANN BÁÐIR Guðjón Valur Sigurðsson lét báða dönsku markverðina verja frá sér einn á einn í hraðaupphlaupi. -1 40% 20-25 50% 0 7-10 +1 4-10 0 -1 +2 0-5 -1 Björgvin Páll Varin skot 20 Skot 50 Maður á mann 13 Varði vel í íslenska markinu allan leikinn. MARKVARSLAN Brottvísanir (mín.) Lína Hraðaupphlaup Gegnumbrot Tapaðir boltar Víti Alexander Mörk 7 Skot 11 Stoðsendingar 9 Kom að 13 íslenskum mörkum í seinni. Bestu menn íslenska liðsins HANDBOLTI Ísland féll í gær úr leik á HM í handbolta eftir örugg- an sigur Dana á strákunum okkar í 16-liða úrslitum, 30-25. Frammi- staða Íslands náði sjaldan þeim hæðum sem þurfti til að ná langt á þessu móti. Strákarnir töpuðu einfaldlega fyrir betra liði í gær og það viður- kenndu þeir fúslega sjálfir í við- tölum við fjölmiðla eftir leikinn í gær. Danir nýttu sér enn einu sinni slaka byrjun íslenska liðs- ins í þessu móti og gerðu í raun út um raunhæfan möguleika Íslands á sigri á fyrsta stundarfjórðungn- um. Svo slæm var byrjun okkar manna. Fyrir leik sagði Aron Kristjáns- son að lykilatriði fyrir Ísland væri að klára sóknirnar almennilega og standa af sér hröð áhlaup danska liðsins. Það gekk engan veginn upp í upphafi leiksins í gær. Strákarn- ir tóku þvinguð skot sem Niklas Landin átti ekki í erfiðleikum með og lokaði hann hreinlega markinu fyrstu sjö mínútur leiksins. Á þeim tíma komst Danmörk 6-0 yfir og Ísland átti aldrei endurkomuleið. Vantar að höggva á hnútinn Sú var tíðin að Ísland gat nánast bókað sigur í sínum leikjum ef varnarleikur og markvarsla liðs- ins var nógu góð til að halda and- stæðingnum undir 30 mörkum. Sóknin sá svo um rest. En þetta vopn íslenska liðsins virðist vera minningin ein í dag. „Ég hef áhyggjur af skotógn- uninni utan af velli,“ sagði Aron Kristjánsson eftir leikinn í gær. „Öll bestu liðin í keppninni eru með leikmenn sem höggva á hnúta með langskotum. Það dregur varn- irnar fram, hægt er að vinna betur með línumanni og allir fá meira pláss,“ sagði Aron. „Okkur tókst að skora 28 mörk gegn framliggjandi vörn Egypta- lands en í dag spiluðum við gegn danskri 6-0 vörn sem er með sterk- an markvörð þar að auki. Það var erfitt.“ Eins og Aron bendir á virtist sóknarleikurinn einungis í lagi gegn Egyptalandi en heilt yfir var hann vandamál í þessu móti – því varnarleikurinn var oftast í lagi og frammistaða Björgvins Páls Gúst- avssonar í mótinu var mun betri en margir þorðu að vona fyrirfram. Frekari kynslóðaskipti í vændum Aron hrósaði leikmönnum fyrir baráttu og dugnað, ekki síst við erfiðar aðstæður gegn Egypta- landi þar sem liðið var nýbúið að missa Aron Pálmarsson úr hópn- um. En hann segir að liðið hafi mætt ofjarli sínum í gær. Margir lykilmenn Íslands voru á löngum köflum ólíkir sjálfum sér og aðspurður um framtíð íslenska liðsins segir hann ljóst að ákveðn- ar breytingar séu í vændum. „Við höfum verið á mörkum kynslóðaskipta en ákváðum að gefa þessum hópi leikmanna sem er hér tækifæri til að kalla fram toppframmistöðu á stórmóti. En það þarf að huga að þessum skipt- um og taka í réttum skrefum. Nú förum við heim, skoðum þetta mót vandlega og metum næstu skref,“ sagði Aron. Næsta verkefni er að koma Íslandi á EM 2016 og Aron segir að það sé gríðarlega mikilvægt. „Tíminn er ótrúlega knappur og við fáum fáar æfingar fyrir hvern leik. Það er því ekki hægt að gera margar breytingar strax en kannski einhverjar,“ segir hann. „Aðalatriðið er að allir séu heilir heilsu og reiðubúnir að takast á við þá áskorun að halda fána Íslands á lofti í handboltanum,“ segir hann. Tími breytinga fram undan „Við vildum gefa þessu liði einn séns á stórmóti og freista þess að ná toppframmistöðu úr þessum leik- mönnum,“ sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari eft ir að Ísland féll úr leik á HM í Katar í gærkvöldi. SÖGULEGUR SIGUR Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins, varð í gær fyrsti íslenski þjálfarinn til að vinna Ísland á stórmóti í handbolta þegar hann stýrði Dönum til sigurs í Doha. RFRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK LÉTT DAGSVERK Strákarnir hans Dags Sigurðssonar í þýska landsliðinu komust auðveldlega áfram í átta liða úrslitin á HM í Katar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK Snjallara heyrnartæki HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 2 -9 7 4 8 1 7 F 2 -9 6 0 C 1 7 F 2 -9 4 D 0 1 7 F 2 -9 3 9 4 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.