Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.01.1986, Blaðsíða 11
1. Inngangur.
Þessi skýrsla, sem er sú 31 ta í ritröð Þjóðhagsstofnunar um atvinnuvegina,
nær að heita má til alls fyrirtækjarekstrar í landinu 1983. Svo sem í fyrri
atvinnuvegaskýrslum er megináhersla lögð á að birta rekstrar- og efna-
hagsreikninga einstakra atvinnugreina, en sífellt er verið að vinna fyllri og betri
tölulegar upplýsingar um atvinnustarfsemina í landinu. Nokkurn árangur
þeirrar viðleitni má sjá í þessari skýrslu. Sem dæmi um nýmæli má nefna
upplýsingar um vergar þáttatekjur á ársverk fyrir árin 1979-1983 (töflur 1.6 og
1.7) og sundurliðun á greiddum launurn fyrirtækja árin 1983 og 1984 eftir
tegundum (töflur 4.10 og 4.11).
í skýrslunni er að finna, auk samandregins efnis úr ársreikningum fyrirtækja,
ýmsar hagtölur sem ná jafnframt til annarrar atvinnustarfsemi í landinu. Má þar
nefna tölur um fjölda fyrirtækja — eða rekstraraðila — eftir stærð og
rekstrarformi, tölur um vinnuafl og launagreiðslur, svo og yfirlit um fjármuna-
myndun og þjóðarauð. Tölunt þessum er ætlað að gefa vissa heildarmynd af
atvinnustarfseminni. Með aðstoð þeirra ætti að vera unnt að bera rekstur
einstakra greina saman við það vinnuatl og fjármagn, sem greinarnar taka til
sín.
Töfluefni skýrslunnar skiptist í sjö hluta. í fyrsta hluta eru rekstraryfirlit
einstakra atvinnugreina á árinu 1983. Yfirlitin ná til svo að segja alls
fyrirtækjarekstrar í landinu. Af rekstri, sem hér er ekki meðtalinn, má helst
nefna starfsemi banka, tryggingafélaga, byggingarstarfsemi á vegum hins
opinbera og nokkrar srnáar þjónustugreinar. Auk þessa er undanskilinn
búskapur hins opinbera svo sem stjórnsýsla, menntamál, heilbrigðis- og
félagsmál o.tl. Þá er undanskilin ýmis önnur starfsemi, sem um margt svipar til
starfsemi hins opinbera og er að jafnaði ekki rekin í ágóðaskyni. Hér má nefna
elliheimili, velferðarstofnanir o.fl., einnig áhuga- og hagsmunasamtök. Athygli
skal vakin á því, að þótt rekstraryfirlit séu ekki birt fyrir framantaldar
atvinnugreinar, þá er í þessari skýrslu að finna ýmsar upplýsingar um umsvif
þeirra, bæði um vinnuafl (töflur 5.1-5.4), launagreiðslur (tötlur 4.2-4.11) o.fl.
I öðrum hluta skýrslunnar eru birt efnahagsyfirlit einstakra atvinnugreina í
árslok 1983. Yfirlitin ná til talsvert færri atvinnugreina en rekstraryfirlitin.
Þannig eru hér ekki birt efnahagsyfirlit fyrir landbúnað, fiskveiðar og fisk-
vinnslu. Ekki eru heldur birt efnahagsyfirlit fyrir þær atvinnugreinar sem
rekstraryfirlitin í fyrsta hluta ná ekki til. í lok þessa hluta er birt tafla um þróun
veltufjár- og eiginfjárhlutfalla árin 1979-1983.
I þriðja hluta eru birt yfirlit yfir stærð úrtaksins í einstökum atvinnugreinum
við gerð rekstraryfirlitanna.