Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.01.1986, Síða 34
32
Tilgangurinn með þessari skýrslugerð er að fá vísbendingu um umsvifin í
einstökum atvinnugreinum eftir rekstrarformi fyrirtækja, þ.e. eftir einstakl-
ings- og sameignarfélögum, hlutafélögum, samvinnusamtökum o.fl. Sá mæli-
kvarði á umsvifin sem tiltækur er eftir rekstrarformi fyrirtækja eru launa-
greiðslur samkvæmt launamiðaskýrslum. Rekstrarform fyrirtækis eða launa-
greiðanda kemur hins vegar ekki fram í launamiðaskrá og er samkeyrsla við
fyrirtækjaskrá Hagstofunnar því nauðsynleg við gerð ofangreindra taflna, eins
og raunar var gert.
Heimildir launamiðaskrár eru launamiðar frá skattyfirvöldum að viðbættum
reiknuðum launum eigenda og er sú fjárhæð tekin úr launaframtali eigenda.
Launamiðarnir eru flokkaðir niður á atvinnugreinar en einnig auðkenndir með
sveitarfélagsnúmeri. Starfi sami aðili innan fleiri en einnar atvinnugreinar, ber
honum að skila sérstakri launaskýrslu fyrir hverja atvinnugrein. Launamiða-
skráin telur því fjölda starfsstaða, er laun greiða, en ekki einungis fyrirtæki í
merkingunni lögformlegan aðila eða félag með sjálfstæðan rekstur eins og
fyrirtækjaskráin gerir. Af þessum sökum er fjöldi þeirra aðila sem fram koma í
launamiðaskrá mun meiri en í fyrirtækjaskrá. En fleira kemur einnig til.
í fyrirtækjaskrá eru allir þeir aðilar sem vegna þarfa stjórnsýslu verða að hafa
sérstakt númer til auðkenningar, og eru þeir flokkaðir eftir rekstrarformi og
atvinnugreinanúmeri. Um er að ræða öll einstaklingsfyrirtæki með heiti skráðu
í firmaskrá, enn fremur hvers konar félög sem reka atvinnu og eru með skráð
heiti í félagaskrá svo og hvers konar stofnanir, embætti og félagasamtök sem
hafa fjárhagsleg umsvif eða eiga fasteign. Hins vegar tekur fyrirtækjaská ekki
til einstaklinga, sem reka sjálfstæða atvinnu í eigin nafni, enda eru þeir á
skattskrám og öðrum opinberum skrám auðkenndir með nafnnúmeri sínu í
þjóðskrá. Þessir aðilar koma aftur á móti fram í launamiðaskrá ef þeir hafa
greitt öðrum laun á árinu eða reiknað eiganda laun, og eru því meðtaldir við
samkeyrslu launamiðaskrár og fyrirtækjaskrár eins og hér er gert. Við
samkeyrslu skránna tveggja var þeirri reglu fylgt, að aðili í launamiðaskrá, sem
ekki fannst í fyrirtækjaskrá, var talinn vera einstaklings- eða sameignarfyrirtæki
eða einyrki þ.e. í flokki 1 eða 2, samanber hér á eftir.
í fyrirtækjaskrá eru margir aðilar, sem hætt hafa starfsemi, svo og aðrir, sem
hafa látið skrá sig í firmaskrá eða félagaskrá, en aldrei hafið starfsemi. Þessir
aðilar, svo og þeir aðrir í fyrirtækjaskrá, er ekki hafa greitt laun á viðkomandi
ári, eru ekki teknir með í töflur 4.6-4.9. Hér er um allmarga aðila að ræða
einkum hlutafélög og félagasamtök.
Hvað varðar rekstrarform, er töflum 4.6-4.9 skipt niður í 8 flokka og er þar
byggt á flokkun Hagstofunnar á fyrirtækjum eftir rekstrarformi í fyrirtækja-
skrá.
Fyrsti flokkurinn, einstaklings- og sameignarfélög, tekur til einstaklinga sem
stunda rekstur í eigin nafni, einstaklingsfyrirtækja með heiti skráð í firmaskrá