Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1972, Síða 21
Búnaðarskýrslur 1964—1967
19
Alifuglar hafa verið taldir fram sem hér segir:
Hœnsni Endur Gæsir
1951 ................... 96 270 142 298
1954 ................... 80 376 265 276
1957 ................... 92 943 215 127
1960 ................... 96 397 332 241
1963 .................. 106 550 830 328
1967 ............... 107 946 1 078
Framtal alifugla er sem fyrr ekki áreiðanlegt. I forðagæzluskýrslum
eru endur og gæsir taldar saman.
6. Búsafurðir 1964—67.
Livestock products 1964—67.
í 6 töflum á bls. 34—45 í Búnaðarskýrslum 1961—63 og í hliðstæð-
um eldri töflum voru ýtarlegar upplýsingar um magn búsafurða eftir
sýslum, og voru þær byggðar á framtölum framleiðenda til skatts, en
þau komu öll fram í búnaðarskýrslum skattyfirvalda til Hagstofunnar.
Þegar þær búnaðarskýrslur voru lagðar niður og í staðinn kom — til
skýrslugerðar um framleiðslu og tilkostnað i búrekstri — skattfram-
tal 8. hvers bónda, var grundvöllur ekki lengur fyrir hendi til að gera
slíkar búsafurðartöflur eftir sýslum. Hins vegar var talið æskilegt, að
skipting magns og þá einnig verðmætis búsafurða á landssvæði kæmi
fram í Búnaðarskýrsium 1964—67, enda var framtalaúrtakið full-
nægjandi til áætlunargerðar þar um. Niðurstöður hennar eru í töflu 15
(bls. 44). Rétt er að taka fram, að í Búnaðarskýrslum 1961—63 var
verðmæti búsafurða eftir sýslum aðeins gefið upp fyrir árið 1963, og
svo var eins í Búnaðarskýrslum áranna þar á undan — þar var slik
sýsluskipting búsafurðaverðmætis aðeins gefin upp fyrir eitt af
hverjum 3 árum. í Búnaðarskýrslum 1964—67 er verðmæti búsafurða
bins vegar gefið upp eftir landssvæðum fyrir öll 4 árin, og er það
nokkur endurbót frá því, sem áður var í þessu efni.
Meðal búsafurða hafa garðávextir þá sérstöðu, að magn þeirra er
gefið upp eftir sýslum, í töflu 5 (bls. 8), enda eru í forðagæzluskýrsl-
um upplýsingar um uppskerumagn þeirra á hverju býli, og að því er
varðar uppskeru þeirra í kaupstöðum og þorpum er hún áætluð af
sveitarstjórn eða aðila á hennar vegum.
Á bls. 23* í inngangi Búnaðarskýrslna 1961—63 er yfirlit um
alla mjólk, heimanotaða og sclda, samkvæmt Búnaðarskýrslum þessara
ára (þó vantar skýrslur um þetta 1952 og 1953), og fer það hér á eftir,
þó með þeirri breytingu, að framtalin lítratala 1946—53 hefur hér verið
umreiknuð i kíló. Við þelta yfirlit bætist hér hliðstætt mjólkurmagn
hvert áranna 1964—67, eins og það er birt i töflu 15 (i 1 000 kg):