Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1972, Qupperneq 20
18*
Búnaðarskýrslur 1964—1967
5. Tala búpenings 1964—67.
Number of livestock 1964—67.
Tafla 6 (bls. 10) sýnir tölu búpenings í árslok 1964, en í lok sláturtíðar
hvert áranna 1965—67, eftir sýslum og kaupstöðum. í töflu 7 (bls. 12)
er þetta sýnt eftir hreppum fyrir árin 1964—66, og í töflu 8 (bls. 24)
fyrir árið 1969. I töflu 9 (bls. 36) kemur fram, eftir sýslum, hvernig
bústofn skiptist milli búa og búlausra i strjálbýli og þéttbýli árið 1967.
Heimildir að tölum í töflum þessum eru skattframtöl að þvi er varðar
árið 1964, en að öðru leyti árlegar forðagæzluskýrslur.
Rétt er að vekja athygli á breyttri flokkun nautgripa, sem kom til
framkvæmda 1964. Áður skyldi telja fram í sama flokki kýr og kelfdar
kvígur, svo sem gert er í alþjóðlegum sltýrslum, en nú var svo fyrir
lagt, að taldar skyldu sér í flokki kvígur 1% árs og eldri, en þær eru
flestar kelfdar. Þarf að hafa þetta i huga við samanburð á kúatölu fyrir
og eftir þessa breytingu. í febrúarblaði Hagtíðinda 1966 er rætt nánar,
hvers beri að gæta við samanburð á tölum um skiptingu nautgripa
síðasta árið (1963), sem kýr og kelfdar kvígur voru taldar saman, en
geldneyti og kálfar sér, og l'yrsta árið (1964), sem kýr og kvigur 1%
árs og eldri voru taldar sér. Vísast til þess.
Það sem af er þessari öld, hefur tala nautgripa, sauðfjár og hrossa
verið sem hér segir samkvæmt biinaðarskýrslum:
Nautgripir Sauðfé Hross
I fardögum 1901 25 654 482 189 43 199
„ „ 1911 25 982 574 053 43 879
„ „ 1921 23 733 553 900 49 320
„ „ 1931 29 379 691 045 47 542
„ „ 1941 39 778 637 067 57 968
I árslok 1951 43 842 410 894 41 411
„ „ 1961 55 744 829 774 31 108
„ „ 1964 59 786 764 013 30 580
Eftir sláturtíð 1965 59 543 846 674 34 083
„ „ 1966 54 535 850 242 35 483
„ „ 1967 52 289 829 067 34 885
Tala svina hefur samkvæmt búnaðarskýrslum verið sem hér segir
3. hvert ár siðan 1951:
1951 .... 441 1960 .... 1 198
1954 .... 707 1963 .... 1 544
1957 .... 709 1967 854
Til búnaðarskýrslu hefur aðeins átt að telja fullorðin svín, en nokkur
misbrestur hefur verið á að þeirri reglu væri fylgt. Eru þvi ofan greindar
tölur óáreiðanlegar og verður að nota þær með varkárni.