Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1972, Síða 31
Búnaðarskýrslur 1964—1967
29
og hjúskaparstétt. Það skal upplýst, að frain að 1966 voru einyrkjar
hafðir sér í flokki, en frá og með því ári eru þeir hafðir í flokki með
öðrum bændum — þeim er taldir voru vera vinnuveitendur. Það mark,
sem hér gilti fram að 1966, var 25 000 kr. vinnulaunagreiðsla, þannig
að þeir, sem höfðu minni Iaunaútgjöld á ári en þetta voru taldir vera
einyrkjar. Önnur breyting á flokkun, er einnig kom til frá og með
1966, er sú, að aðilar að félagsbúi, sem höfðu fallið undir lið 21 eða
22, voru settir í sérlið, nr. 29.
1 töflu 21 kemur fram tala kvenna, sem reka bú, og eru tekjur
þeirra miklu lægri en tekjur karla með sjálfstæðan rekstur í land-
búnaði. Eru til þess margar ástæður, m. a. að í framtöldum tekjum
kvæntra bænda eru tekjur eiginkvenna þeirra meðtaldar. Hjá konum,
sem búa, eru tekjur maka aldrei með í tekjum á skattframtali.
Athygli er vakin á því, að eins og þessari flokkun er háttað getur
framteljandi, sem merkist sem bóndi eitt ár, verið merktur annarri
starfsstétt næsta ár, þó að hann reki bú sitt eins og fyrra árið. Fækkun
eða fjölgun bænda eða annarra, sem starfa við landbúnað samkvæmt
töflum 19—21, þarf af þessum sökum ekki að vera raunveruleg. Sér-
staklcga á þetta við, þegar miklar breytingar verða á möguleikum bænda
og annarra hlutaðeigandi til tekjuöflunar á öðrum starfssviðum, sam-
hliða búrekstri.
Auk efnis töflu 21 skal hér birt eftirfarandi yfirlit úr hinum árlegu
töflum í Hagtiðindum um tekjur starfsstétta samkvæmt skattskrám.
Eru þar sýndar meðaltekjur kvæntra bænda 25—66 ára hvert ár 1962
—67, með skiptingu þeirra á tekjuflokka og eftir byggðarstigi. Hér
eru bændur i landi kaupstaða meðtaldir, vinnuveitendur og einyrkjar
eru eins taldir öll árin, en aðilar að félagsbúi, sem teljast sjálfstæðir
bændur, eru með 1962—65, en undanskildir 1966 og 1967:
Tala bænda
Meðal- Tekjur Tekjur Tekjur Tekjur
tekjur yfir 150— 100— 50— Rvík,
kvæntra 249 249 149 99 Kópav.,
bænda þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr. Seltj.n. Kaupst. Kaupt. Svcitir Alls
1962 .. 99 23 325 1 068 1 589 29 66 226 2 955 3 276
1963 .. 118 61 610 1 285 1 117 36 69 218 2 893 3 216
1964 .. 161 254 1 388 1 108 382 38 72 211 2 832 3 153
1965 .. 199 660 1 603 647 179 35 65 243 2 758 3 101
1966 .. 193 532 1 369 621 239 34 66 214 2 464 2 778
1967 .. 194 657 1 370 729 281 35 68 244 2 714 3 061
Samanlagðar tekjur þeirra einstaklinga, sem flokkast til land-
búnaðar, hafa verið sein hér segir hvert áranna 1962—67, samkvæmt
fyrr nefndum árlegum töflum í Hagtíðindum: