Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 FRÉTTIR Tugir ætluðu að berjast Lögreglumenn tvístruðu fjöl� mennum hópi ungmenna sem hafði gert sig líklegan til að standa í hópslagsmálum við Kringluna seinnipart laugar� dags. Að sögn sjónvarvotta höfðu um sextíu ungmenni á grunnskólaaldri safnast saman inn í Kringluna og voru að und� irbúa slag. Á slaginu hálf sjö hljóp hóp� urinn út úr Kringlunni en er lögreglu bara að garði hafði hóp� urinn tvístrast og flúið af vett� vangi. Lögreglan gat ekki stað� fest á hvaða aldursbili hópurinn var eða hversu margir komu að slagsmálunum. Með þeim sem urðu verst úti Ísland er á lista með fjórum öðrum þjóðum sem urðu verst úti í efnahagshruninu, samkvæmt lista sem birtur var í vefútgáfu breska blaðs� ins Guardian á sunnudag. Þar segir að langur og grýtt� ur vegur sé fram undan hjá Íslendingum og það muni taka heila kynslóð að borga þær skuldir sem þjóðarbúið stendur núna frammi fyrir. Á listanum eru auk Ís� lands Grikkland, Spánn, Dú� baí og Írland. Þó að Ísland hafi orðið illa úti telur Guard� ian að Grikkir hafi orðið verst úti. Er hræðsluþáttur (eða panic factor) Grikkja metinn 5/5 en hjá Íslendingum er hann 3/5. Margir vinningar á sama miðann Stálheppinn lottóspilari, sem keypti miðann sinn í Tvistin� um í Vestmannaeyjum, var með allar fimm tölurnar réttar í fyrsta lottóútdrætti ársins. Hefur fyrsti lottómilljónamæringur ársins 2010 því litið dagsins ljós. Um var að ræða fimm raða miða og ekki nóg með að hafa allar tölurnar réttar í einni röðinni heldur var hann með fjórar rétt� ar tölur auk bónustölu í annarri röðinni og 4 réttar tölur í öllum hinum þremur röðunum. Hann vann því samtals tæpar 10,3 milljónir á þessar lukkutölur. Ítalinn Marco Brancaccia, fyrrver� andi tengdasonur Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra, fullyrðir að ítalski að� stoðarutanríkisráðherrann, Alfredo Mantica, hafi rætt viðkvæma forræð� isdeilu hans á nýlegum fundi með embættismönnum í utanríkisráðu� neytinu íslenska. Það fékkst staðfest frá ráðuneytinu að ráðherrann hefði minnst á deiluna utan dagskrár. Mar� co segir ítölsk stjórnvöld standa á bak við hann og það kunni að hafa áhrif á aðildarviðræður Íslands um inngöngu í Evrópusambandið. Hann ætlar fljótlega að hringja í Mantica og þakka honum fyrir stuðninginn. „Ítölsk stjórnvöld munu taka mál� ið upp á réttum stað og á réttum tíma. Hegðun Jóns Baldvins í minn garð á eftir að verða íslensku þjóðinni dýrt,“ segir Marco í samtali við DV. Ásakanir á víxl Marco hefur staðið í hatrammri for� ræðisdeilu við dóttur Jóns Baldvins, Snæfríði, vegna þrettán ára dóttur þeirra, Mörtu. Hann telur móðurina hafa numið dóttur þeirra ólöglega á brott frá Mexíkó í maí árið 2003. Það hafi hún gert með ólögmætri aðstoð föður síns sem þá starfaði sem sendi� herra í Bandaríkjunum. Um tíma krafðist ítalska utanríkisráðuneytið skýringa í málinu. Marco hefur kært málið í þremur löndum en ekki haft erindi sem erfiði. Marco og Snæfríður kynntust í París árið 1990 og voru því saman í þrettán ár. Bæði hún og faðir henn� ar hafa sakað Marco um að hafa beitt hana ofbeldi meðan á sam� bandi þeirra stóð og Jón Baldvin hef� ur sagt hann hafa hótað sér lífláti. Á móti hefur Marco fullyrt að sendi� herrann fyrrverandi hafi hótað sér því að beita öllum sínum áhrifum gegn því að hann fengi nokkurn tím� ann forræði yfir barnabarninu. Hann hefur einnig fullyrt að Jón Baldvin hafi staðið fyrir fíkniefnaleit á sér og njósnum við heimsóknir til landsins. Ætlar að hafa áhrif Marco telur að tilgangurinn með heimsókn Mantica til landsins hafi verið sá að afla stuðnings við aðild� arumsókn Íslands til Evrópusam� bandsins. Hann telur heimsóknina ekki líklega til árangurs fyrir Íslands hönd þar sem for� ræðismálið sé ekki gleymt af hálfu Ítala. „Á þessum fundi í ut� anríkisráðuneytinu var fullyrt að Ís� lendingar könnuðust við málið en þeir litu svo á að því væri lokið. Í hug� um Ítala er því algjörlega öfugt farið því að málið er okkur enn sem opið sár. Við munum ekki gleyma því að íslensk stjórnvöld hunds� uðu ítalskar fyrirspurnir um þátt sendiherrans Jóns Baldvins þegar Snæfríður nam dótt� ur okkar á brott,“ seg� ir Marco. Hann seg� ist undanfarið hafa setið fyrir fulltrúum Evrópuþingsins og samninganefndar Evrópusambands� ins um aðild Íslands til að fræða þá um forræðismál sitt. „Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að hafa áhrifa á að� ildarviðræðurnar og minna evrópska embættismenn á forræðismálið mitt þegar þeir fara í viðræður við Ísland um aðild að sambandinu.“ Við vinnslu fréttarinnar var óskað eftir viðbrögðum frá Össuri Skarp� héðinssyni utanríkisráðherra en þau fengust ekki. Marco Brancaccia, ítalskur fréttaritari og barnsfaðir Snæfríðar Baldvinsdóttur, dóttur Jóns Baldvins Hannibalssonar, segir ítölsk stjórnvöld standa við bakið á sér í erfiðri forræðisdeilu. Hann segir málið eiga eftir að hafa áhrif á umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. ÆTLAR AÐ HINDRA INNGÖNGU ÍSLANDS TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Á þessum fundi í utan- ríkisráðuneytinu var fullyrt að Íslending- ar könnuðust við mál- ið en þeir litu svo á að því væri lokið. Í hugum Ítala er því algjörlega öfugt farið því að málið er okkur enn sem opið sár.“ Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is París 1990 Marco Brancaccia kynnist Snæfríði Baldvinsdóttur. Hann starfar sem fréttamaður hjá ANSA en hún er fyrirsæta. Róm 1996 Snæfríður eignast dótturina Mörtu með Marco. Mexíkóborg 2001 Marco og Snæfríður flytja til Mexíkó. Mexíkóborg 2003, maí Snæfríður fer með Mörtu frá Mexíkó, á bráðabirgðavegabréfi. Undanþága Eduardos Rihans ræðismanns, eftir hvatningu Jóns Baldvins Hannibalssonar, nægði til þess að Snæfríður fékk vegabréf fyrir Mörtu, með undirskrift aðeins annars foreldris. Keflavík 2003, ágúst Marco kemur til Íslands ásamt bróður sínum og mágkonu og er framkvæmd fíkniefnaleit í föggum þeirra. Marco segir Jón Baldvin hafa beitt áhrifum sínum og óttast að fíkniefnum verði laumað í farangurinn. Hann er beðinn um vegabréf dóttur sinnar. Lögfræðingur Marcos kvartar til sýslumanns sem viðurkennir að einhver leki hafi átt sér stað, en rannsókn skilar engu. Reykjavík 2003, ágúst Marco hittir dóttur sína Mörtu í fyrsta skiptið eftir brottnám hennar. Hann má ekki yfirgefa hótel sitt með Mörtu og þrír lífverðir á vegum Jóns Baldvins og Snæfríðar eru nærri. Reykjavík 2003, desember Hæstiréttur úrskurðar með Snæfríði vegna skorts á upplýsingum um forræðisréttindi á Ítalíu. Áður úrskurðaði héraðsdómur með Snæfríði vegna sálfræðiskýrslu sem hún útvegaði sjálf. Síðar úrskurðaði héraðsdómur á sama hátt vegna þess að hann taldi ekki sannað að Marta hefði búið í Mexíkó, samkvæmt skilyrðum Haag-sáttmálans. Mexíkóborg 2004, janúar Utanríkisráðuneytið í Mexíkó leggur fram þá kröfu að Mörtu Brancaccia verði þegar í stað skilað til Mexíkó, búsetulands hennar. Reykjavík 2004, júlí Marco kemur til Íslands í fjórða sinn eftir brottnám Mörtu. Hann fær að hitta hana þremur dögum síðar. Marco leysir frá skjóðunni um samskipti sín við Jón Baldvin og Snæfríði og ræður sér 6. lögfræðinginn í málinu. Reykjavík 2004, ágúst Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að Snæfríður hafi ekki numið dóttur sína og Marcos ólöglega á brott frá Mexíkó þegar hún fór þaðan án samþykkis föðurins. Strassborg 2005, janúar Marco höfðar mál gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttinda- dómstólnum í Strassborg. Hann telur íslenska ríkið bera ábyrgð á því að barnið var numið á brott frá Mexíkó. Reykjavík 2005, júní Ummæli Jóns Baldvins um að Marco hafi hótað sér og Bryndísi lífláti eru dæmd ómerk. Opið sár Marco segir forræðismál sitt eins og opið sár í huga ítölsku þjóðarinnar og þarlend stjórnvöld komi til með að beita sér á réttum tíma. Nokkrir þættir úr forræðisdeilunni: Sagður beita áhrifum Fyrrverandi tengdasonur Jóns Baldvins sakar hann um að hafa í sendiherratíð sinni beitt áhrifum sínum á ólögmætan hátt. Enginn fundur Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneyt- inu fundaði Össur ekki með ítalska aðstoðarutanrík- isráðherranum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.