Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Blaðsíða 18
Svarthöfði er sjálfstæðismaður í báðar ættir og trúir á flokkinn ofar öllu öðru. Sjálfstæðis-flokkurinn hefur í gegnum tíð- ina einkennst af samvisku og réttsýni í bland við djúpa visku. Flokksskírtein- ið hefur nægt Svarthöfða til að skilja á milli þess sem er rangt og rétt. Þannig var það í fjölmiðlamálinu forðum. Þá steig Davíð Oddsson fram og krafðist þess að eignarhald á fjölmiðlum yrði skilgreint í lögum þannig að ljótu karl- arnir gæti ekki eignast meirihluta og beitt miðlunum gegn góða fólkinu. Frumvarp þáverandi formanns Sjálf- stæðisflokksins var samþykkt á hinu háa Alþingi Íslendinga. Svarthöfði fylgdist með atkvæðagreiðslunni og það fóru um hann hlýir straumar þeg- ar sú niðurstaða lá fyrir að nú væru fjölmiðlarnir loks frjálsir undan oki auðmanna. En Adam var ekki lengi í par-adís. Þegar kom að því að forseti Íslands staðfesti þessi lög sem áttu að gera Íslendinga frjálsa undan Baugi, Björgólfsfeðgum og Bakkabræðrum kom babb í bátinn. Náung- inn á Bessastöðum taldi sig hafa vald til þess að neita að kvitta upp á þessi lög. Þetta var reiðarslag fyrir lýð- ræðið í landinu. Og fjöl- miðlalögin féllu. Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra en nú á eftirlaunum, gagnrýndi mjög framgöngu forsetans. „Stjórnskipunarkreppan vegna synj- unar Ólafs Ragnars Grímssonar er öllum augljós og túlkanir þeirra, sem vörðu þennan gjörning hans, valda ekki síður óvissu en synjun sjálf,“ sagði Björn. Og sjálfstæðismenn töluðu hver um annan þveran um tilgangs- leysi embættis forsetans og efuðust um heimild hans til að synja lögum staðfestingar. Svarthöfði var að sjálf- sögðu sammála sínum mönnum. Hvað vildi þessi forseti eiginlega upp á dekk? Hans hlutverk var það eitt að ferðast um heiminn með útrásarvík- ingum og gróðursetja hríslur um allt land. Svarthöfði var árið 2004 orðinn sannfærður um að embættið væri óþarft. En nú kveður skyndilega við annan tón. Sjálfstæðismenn-irnir sem lúskruðu á forset-anum vegna fjölmiðlalag- anna vilja ólmir að forsetinn neiti að skrifa upp á lög um að Íslendingar leggi Icesave-skuldum Björgólfs Guðmundssonar og Kjartans Gunnarssonar til ríkisá- byrgð. Hver um annan þveran mæra þeir for- setann og særa hann til þess að neita að draga upp pennann og pára nafn sitt. Yfir 50 þúsund manns hafa skorað rafrænt á forsetann að segja nei. Hitt er ekki síður varasamt ef rafrænar kennitölusafnan-ir, sem síðan eru svipaðar leyndarhjúp, eiga að ráða því, hvort lögum er synjað eða ekki, þegar þau berast til Bessastaða,“ skrif- aði Björn Bjarnason eftirlaunaþegi og einn þeirra sem seldu Landsbankann einkavinum flokksins á sínum tíma. Reyndar skrifaði hann þessi orð árið 2004. Nú skrifar Björn: „Hann veit, að hann á skjól á vinstri vængnum, sem hefur barist upp á líf og dauða fyrir því, að Icesave-skuldabagginn verði lagður á þjóðina. Ólafur Ragnar mun ekki kasta því skjóli frá sér, þótt tæp- lega 60 þúsund hafi skorað á hann að gera það.“ Ekki orð um vafasamar raf- rænar kannanir. Svarthöfði er auðvitað sammála sínum flokki. Nú er forsetinn orðinn mikilvægur og hefur fullt umboð til að synja eða samþykkja þau lög sem honum berast til áritunar. Framvegis mun forset- inn horfa gagnrýnum og haukfrán- um augum á öll ný lög. Hann mun senda allt í þjóðaratkvæðagreiðslu sem umdeilt er. Og þjóðin mun segja nei við öllu sem hefur í för með sér aukin útgjöld. Og við sjálfstæðismenn munum haga seglum eftir vindi. Það skiptir jú öllu máli hvort flokkurinn er innan eða utan ríkisstjórnar. Heill forseta vorum. HEILL FORSETA VORUM SPURNINGIN „Það er alveg djöfullegt,“ segir Gunnar Gunnarsson vefmeistari og einn helsti stuðningsmaður Manchester United. Liðið, sem oft er kallað Rauðu djöflarnir, tapaði fyrir erkifjendunum í Leeds United. HVERNIG ER AÐ HALDA MEÐ MANCHESTER UNITED Í DAG? „Ég fékk pínu sjokk þegar ég mætti fyrst enda allt strákar sem maður hefur verið að horfa á í sjónvarp- inu lengi og litið upp til. Það rann af mér fljótt.“ n Ólafur Guðmundsson handboltakappi úr FH sem var valinn í EM-hópinn sterka. - Fréttablaðið „Fundur er settur á Alþingi. Þessum fundi er frestað til 11.00.“ n Ragnheiður Ríkharðsdóttir, varaforseti Alþingis, klukkan 10.30 sl. miðvikudag. Nóg að gera. - Sagt á Alþingi „Þeir voru skrítnir fyrst en svo urðu þeir voðalega ljúfir.“ n Soffía Anna Sveinsdóttir sem tók sveinspróf í pípulögnum í desember um alla strákana sem voru með henni í náminu. - Morgunblaðið „Mér þykir dásamlega hlægilegt að horfa á myndirnar sem DV velur þegar fjallað er um þann ágæta (hrokafulla) stjórnmálamann Davíð Oddsson.“ n Margrét Hugrún Gústavsdóttir Eyjubloggari sem er á því að DV velji sérstaklega undarlegar myndir af öðrum ritstjóra Morgunblaðsins þegar hann er til umfjöllunar. - eyjan.is/goto/mhg „Ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar, séð neitt þessu líkt.“ n Bubbi Morthens, sem var bitinn af hinum hættulega skógarmítli. Bitinu geta fylgt langar og alvarlegar aukaverkanir sem Bubbi fékk að kynnast. - DV Týpan sem felldi Ísland LEIÐARI Hér er uppskrift að efnahagshruni fyrir áhugasama: Fjölmörg fyrir-tæki frá sama landi eru eftirlitslaus undir stjórn hrokafullra, vanhæfra og áhættusækinna stjórnenda með takmar- kalaust aðgengi að lánsfé. Fram að þessu hef- ur mikið verið fjallað um eftirlitsleysið og yfir- drifnu lántökurnar, en mun minna um fólkið á bak við tölurnar: Íslenska stjórnendur. Rannsóknir á íslenskum stjórnendum í góðærinu eru ómetanlegar heimildir, eins og lesa má um á síðum 14 og 15 í DV í dag. Ís- lenskir stjórnendur lýstu sjálfum sér þannig að þeir forðuðust skynsamlegar greiningar og skipulagningu. Þeir hunsuðu ráðgjöf ann- arra og tóku ákvarðanir út frá tilfinningunni. Oft tóku þeir afdrifaríkar ákvarðanir út frá tilboði um milljarðaviðskipti sem kom upp í óformlegu spjalli. Í rannsókn Sigrúnar Davíðsdóttur frá 2006 birtist hugarheimur útrásarstjórnenda skýrt. Einn þeirra útskýrði vinnulag sitt með þessum hætti: „Við fórum dálítið íslensku leiðina, fór- um bara af stað, létum hlutina ráðast án þess að hafa neina strategíu. Undirbúningurinn var þessi venjulegi íslenski undirbúningur: „þetta reddast!“ Fórum svo í eina átt og ef það gekk ekki þá reyndum við eitthvað annað.“ Stjórnandinn útskýrir þarna hvernig hann fór af stað, líklega eftir að hafa veðsett íslensk- ar eigur fyrir lánsfé, skipulagslaust og blind- andi í gríðarlegar fjárfestingar, trúði því að hlutirnir leystust af sjálfu sér. Sjálfslýsing- in ber vott um að stjórnandinn ætti ekki að vera með ökuskírteini, hvað þá stýra fyrir- tæki. Annar stjórnandi útskýrir í sömu rann- sókn snilld sína svona: „Við reynum að finna það besta þannig að 1+1 verði 3.“ Mannkynið hefur hins vegar búið yfir þeirri vitneskju frá fornöld að einn plús einn verður aldrei þrír, og að ef einhver fái út að einn plús einn séu þrír sé hann að gera grundvallarmistök í út- reikningi. Innistæðulaus hroki, byggður á þjóðern- ishyggju, var sérstaklega útbreiddur með- al íslenskra stjórnenda. Forsetinn og ráð- herrar kyntu stöðugt undir þeirri fölsku trú stjórnendanna að þeir væru sérstakir og öðr- um fremri. En það sem helst aðskildi þá frá evrópskum stjórnendum var að þeir höfðu minni þekkingu, meiri áhættusækni og voru hrokafyllri. Íslensku stjórnendurnir töldu samt að erlendir stjórnendur væru þeim síðri, því þeir fóru varlegar. Norrænir stjórn- endur voru hins vegar meðvitaðir um stór- slysið sem var í vændum og gáfu lítið fyrir ís- lenskan stjórnunarstíl. „Mér finnst það frekar vera að Íslendingar hafi gaman af að berja sér á brjóst. Ég er allavega orðinn þreyttur á að hlusta á íslenskt stærilæti þegar menn halda að gangi þeir fram af hengjunni geti þeir bara flogið,“ sagði einn þeirra í rannsókn Sigrúnar. Uppgjörið við hrunið má ekki aðeins snúa að mistökum í hagstjórn og pólitískri spill- ingu. Sökin liggur líka hjá íslensku týpunni sem hafði ekki getuna og ekki reynsluna, en taldi sig betri en alla aðra. Lykilatriði er að gera upp við manntegund ungra, hrokafullra stjórnenda sem svipti þjóðina eigum sínum. Til þess þarf að átta sig á þeim sára sannleika að íslensku stjórnendurnir voru ekki aðeins fífldjarfir. Þeir voru fífl. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. „... fórum bara af stað, létum hlutina ráðast án þess að hafa neina strategíu.“ BÓKSTAFLEGA 18 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 UMRÆÐA SANDKORN n Drottningarviðtali Jóns Ólafs- sonar heimspekings við Pál Magnússon útvarpsstjóra RÚV á Rás 1 á nýársdag hefur vakið furðu. Heimildarmaður innan RÚV benti á að skýring- in á þessu viðtali væri einföld. Þar útlistaði Páll hugmynd- ir sínar um RÚV bæði almennt og sérstakt. Skýringin er sú að á þessu nýja ári eru fimm ár liðin frá því að Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, þáverandi mennta- málaráðherra, réð Pál Magnússon sem útvarpsstjóra að kröfu Davíðs Oddssonar. Því má vænta þess að staða hans verði auglýst laus til umsóknar á árinu og Páll mun auðvitað sækja aftur um. n Þar sem Páll Magnússon út- varpsstjóri hefur átt undir högg að sækja, eftir að í hámæli komst að við rekstrarbreytingu RÚV varð sú breyting helst að laun hans hækkuðu um helming og RÚV hefur haldið áfram að borga undir hann lúxusjeppa, telur Páll greinilega af- farasælast að hefja „kosn- ingabaráttu“ sína um starfið snemma. Spurn- ingin er þá aðeins sú hvort Jón Ólafsson heimspekingur verði kallaður frá Bifröst til að taka 38 mínútna auglýsingaviðtöl við alla aðra hugsanlega umsækjendur um útvarpsstjórastarfið. n Það eru fleiri embættismenn á tímamótum þetta árið vegna fimm ára reglunnar. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, sem hefur siglt í gegnum embætt- ismannakerfið í meðbyr Sjálf- stæðisflokksins, þarf nú að sækja um aftur. Það mun vænt- anlega koma í hlut Rögnu Árnadóttur dómsmála- ráðherra að taka afstöðu til umsóknar- innar. Vitað er að hún hefur af því talsverðar áhyggjur hve dýrt og umfangs- mikið í tilgangsleysi sínu embætti Haraldar er. Viðbúið er að ráð- herrann muni nota tækifærið til kerfisbreytinga og færa verkefni undir þann vinsæla og lítt um- deilda Stefán Eiríksson, lögreglu- stjóra höfuðborgarsvæðisins. Þar með yrði Haraldarbúð stekkur. n Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri skaupsins, vann nokkurn sigur á gamlárskvöld. Þótt ekki séu allir sáttir við afraksturinn er yfir- gnæfandi meirihluti ánægður með þá grjóthörðu stefnu sem þar var ráðandi. Fjölmörg tabú voru tekin fyrir eins og drykkjuskapur ein- stakra fjölmiðlamanna og útrásar- víkinga. Þá var fjallað af einlægni og miskunnarleysi um þátt kóka- ínneyslu í öllu útrásarflippinu. LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRAR: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.