Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 FRÉTTIR
Föst á bar vegna
fannfergis
Dvöl nýársgesta á Tan Hill-
kránni í Norður-Jórvíkurskíri á
Englandi varð ívið lengri en lagt
hafði verið upp með því vegna
mikils fannfergis komust gest-
ir hvorki lönd né strönd í þrjá
daga.
Samkvæmt vefsíðu BBC
komu um þrjátíu gestir á krána
á nýárskvöld til að fagna nýju
ári, en vegna veðurs þurftu gest-
irnir að halda kyrru fyrir í tvær
nætur að auki. Að sögn eins
gestanna héldu þeir í hinn góða
anda á meðan dvölinni stóð og
lögðu sitt af mörkum til að gera
dvölina bærilega. Tan Hill-kráin
stendur hæst allra kráa á Bret-
landi í um 520 metra hæð yfir
sjávarmáli.
Sómalinn hand-
tekinn áður
Sómalinn sem réðst inn á heim-
ili teiknarans Kurts Westergaard
var handtekinn í Kenía á síðasta
ári. Samkvæmt danska blaðinu
Politiken lá fyrir vitneskja hjá
PET, dönsku öryggisþjónust-
unni, um handtöku Sómalans.
Þá var honum gefið að sök að
hafa tekið þátt í skipulagningu
árásar á Hillary Clinton, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, en
honum var síðar sleppt vegna
skorts á sönnunargögnum.
Sómalinn hefur verið ákærð-
ur fyrir tilraun til morðs, en
hann réðst inn á heimili West-
ergaards á föstudaginn vopnað-
ur öxi. Kurt Westergaard sá sitt
óvænna og leitaði skjóls í sér-
styrktu herbergi á heimili sínu.
Buyelekhaya Dalindyebo, konung-
ur ættbálks Nelsons Mandela, hefur
hótað að segja sig úr sambandi við
Suður-Afríku eftir að hann var sak-
felldur fyrir manndráp, mannrán og
ofbeldi.
Buyelekhaya Dalindyebo kon-
ungur, sem er frændi Nelsons Mand-
ela, segist munu lýsa yfir sjálfstæði
og gera kröfu til um sextíu prósenta
landsvæðis Suður-Afríku, nema Jac-
ob Zuma, forseti landsins og Afríska
þjóðarráðsins, sjái að sér og dragi til
baka ákærurnar á hendur konung-
inum, en Buyelekhaya Dalindyebo
stendur frammi fyrir fimmtán ára
fangelsisvist.
Buyelekhaya Dalindyebo er kon-
ungur Thembu-ættbálksins og er hót-
un hans afar vandræðaleg fyrir Afríska
þjóðarráðið því meðlimir ættbálks-
ins eru stærsti hluti kjósenda Xhosa-
hópsins og margir leiðtoga Afríska
þjóðarráðsins hafa komið úr röðum
hans. Einn helsti stuðningsmaður
Dalindyebos konungs er barnabarn
Nelsons Mandela, Thembu-höfðing-
inn Mandla.
Dalindyebo konungur er laus gegn
tryggingu vegna væntanlegrar áfrýj-
unar en ákærurnar á hendur honum
má rekja til ársins 1990 og er hann
sakaður um ofbeldi gegn þegnum
sínum, meðal annars rán á konum og
börnum. Að auki voru heimili brennd
til grunna og ungmenni sættu ým-
iss konar ofbeldi sem leiddi til dauða
eins.
Að sögn konungsins verður sam-
bandi hans og ríkisstjórnar Jacobs
Zuma ekki bjargað og krefst hann
afsökunarbeiðni og 6,75 milljarða
punda skaðabóta til handa ættbálkn-
um og eiga þeir að greiðast eigi síðar
en á miðvikudaginn.
Landkröfur hans taka til Höfða-
borgar, Austurhöfðans, Jóhannesar-
borgar og alls KwaZulu-Natal-héraðs-
ins, þar á meðal Durban.
Talið er að hið síðastnefnda sé
hugsað sem bein móðgun við Jacob
Zuma og Zulu-ættbálkinn sem hann
tilheyrir. Það er ekkert nýtt að það
gusti um konunginn sem hefur verið
umdeildur síðan hann tók við krún-
unni árið 1992 og hafði Nelson Mand-
ela á orði, í forsetatíð sinni, að Dalind-
yebo væri „ekki hæfur til að stjórna“
og að sögn konungsins reyndi Mand-
ela að velta honum úr sessi.
Baráttumenn úr röðum verald-
arhyggjumanna á Írlandi ögruðu
ströngum guðlastslögum sem tóku
gildi um áramótin með því að birta
andtrúarlegar tilvitnanir á netinu og
lofuðu aukinheldur að berjast gegn
lagasetningunni fyrir dómstólum ef
til þess kæmi.
Á meðal þeirra sem vitnað var
í voru rithöfundurinn og háðfugl-
inn Mark Twain og rithöfundurinn
umdeildi Salman Rushdie. En and-
stæðingarnir létu ekki þar við sitja
og gengu einnig í smiðju ekki ómerk-
ari manna en Jesú, spámannsins
Múhameðs og Benedikts XVI páfa
sem nú situr á páfastóli.
4,5 milljónir í sekt
Samkvæmt nýju lögunum eiga þeir
sem sekir verða fundnir um guðlast
yfir höfði sér sekt upp á allt að 25.000
evrum, eða hálfri fimmtu milljón
króna. Guðlast telst samkvæmt þeim
að „birta eða láta í ljós efni sem er
stórkostlega svívirðilegt eða móð-
gandi með tilliti til einhvers sem tal-
ið er helgt í einhverjum trúarbröð-
um og þannig af ásetningi valda reiði
í tiltölulega stórum hópi fylgjenda
viðkomandi trúarbragða“.
Að sögn Dermots Ahern, dóms-
málaráðherra Írska lýðveldisins,
eru lögin nauðsynleg í ljósi þess að
á sama tíma og trúarbrögð í land-
inu yrðu fjölbreyttari vegna innflytj-
enda nyti einungis kristin trú vernd-
ar samkvæmt stjórnarskrárákvæði
frá 1936.
„Heimskuleg og hættuleg“
Sem fyrr segir eru veraldarhyggju-
menn, sumir hverjir, ekki sáttir við
nýju lögin og Atheist Ireland, samtök
sem segjast vera í forsvari fyrir trú-
leysingja, svöruðu lögunum með því
að birta tuttugu og fimm tilvitnanir á
vefsíðu samtakanna.
Auk áðurnefndra er vitnað í Björk,
tónlistarmanninn Frank Zappa, fyrr-
verandi ritstjóra Observer og ráð-
herra Conor Cruise O’Brien og fleiri.
Formaður samtakanna, Michael
Nugent, sagði að ef samtökin yrðu
ákærð fyrir guðlast myndu þau berj-
ast fyrir dómstólum. Nugent sagði
að lögin væru bæði hættuleg og
heimskuleg.
„Þau eru heimskuleg því mið-
aldalög eiga engan sess í veraldlegu
lýðveldi nútímans, þar sem lög eiga
að vernda manneskjuna en ekki hug-
myndir. Og þau eru hættuleg því þau
hvetja til trúarlegrar reiði, og því ís-
lömsk ríki undir forystu Pakistans
nota orðalag írsku laganna til að
knýja á um ný guðlastslög innan vé-
banda Sameinuðu þjóðanna,“ sagði
Michael Nugent.
„Því elska ég mannkynið“
Á vefsíðu samtakanna, blasphemy.
ie, segir að í ofangreindu samhengi
birti þau tuttugu og fimm dæmi um
guðlast sem hafa áður verið sögð
af eða eignuð Jesú Kristi, Múham-
eð spámanni, Mark Twain, Tom
Lehrer, Randy Newman, James
Kirkup, Monty Python, séra Ian Pais-
ley, Conor Cruise O’Brien, Frank
Zappa, Salman Rushdie, Björk,
Amöndu Donohoe, George Carlin,
Paul Woodfull, Jerry Springer-óper-
unni, Tim Minchin, Richard Daw-
kins, Benedict XVI páfa, Christopher
Hitchens, PZ Myers, Ian O’Doherty,
Cormac Murphy-O’Connor kardin-
ála og Dermot Ahern.
Tónlistarmaðurinn Randy New-
man hefur oft ögrað með textum sín-
um og á hann eina tilvitnun á síð-
unni, texta sem tekinn er úr lagi hans
Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku
og Afríska þjóðarráðsins Málið
er hið vandræðalegasta fyrir Afríska
þjóðarráðið.
Frændi Nelsons Mandela veldur uppnámi í Suður-Afríku:
Krefst 60 prósenta Suður-Afríku
Rithöfundurinn og háðfuglinn Mark
Twain Sagði guð ekki gera annað en
drepa í bók sem hann skrifaði árið 1909.
„HEIMSKULEG OG HÆTTULEG LÖG“
„Þið hljótið öll að vera
biluð að setja traust
ykkar á mig. Því elska
ég mannkynið.“
Trúleysingjar á Ír-
landi eru ekki sátt-
ir við ný lög sem
tóku gildi um ára-
mótin. Samkvæmt
lögunum varðar
guðlast sekt upp að
25.000 evrum, eða
4,5 milljónum ís-
lenskra króna. Til
að sýna hug sinn
í verki birtu sam-
tök trúleysingja
tuttugu og fimm
tilvitnanir sem
teljast guðlast á
vefsíðu sinni. Tón-
listarmaðurinn
Björk Guðmunds-
dóttir á þar eina
tilvitnun.
Benedikt XVI páfi
Tilvitnun hans í býsanskan
keisara er birt á vefsíðu
írskra trúleysingja.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Páfi sýnir góðvild
Páfagarður staðfesti í gær að
Benedikt XVI páfi hefði sent sér-
legan ritara sinn, séra George
Gänswein, í heimsókn til Sus-
önnu Maiolo, svissnesk-frönsku
konunnar sem sló páfa að kvöldi
jóladags. Talsmaður Páfagarðs,
Federico Lombardi, sagði að páfi
hefði beðið Gänswein að líta til
Susönnu, sem dvelur nú á örygg-
isgeðsjúkradeild, til að „sýna um-
hyggju páfans og góðvild“.
Federico Lombardi neitaði
að tjá sig um orðróm þess efnis
að Gänswein hefði fært Súsönnu
skilaboð um „aflausn“ henni til
handa, en sagði: „Allir kristnir
fyrirgefa.“