Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Side 11
FRÉTTIR 4. janúar 2010 MÁNUDAGUR 11
Jón Þorsteinn Jónsson fjárfestir var stöðvaður af öryggisvörðum á Keflavíkurflugvelli 22. desember.
Hann var með 2,5 milljónir í erlendum gjaldeyri á sér, en aðeins má flytja 500 þúsund krónur á milli landa.
Jón var nýbúinn að losna úr farbanni hjá sérstökum saksóknara vegna rannsóknarinnar á Exeter-mál-
inu. Tekin var skýrsla af Jóni Þorsteini í Leifsstöð.
Fjárfestirinn Jón Þorsteinn Jóns-
son, sem er með réttarstöðu sak-
bornings í rannsókn sérstaks
saksóknara á Exeter-málinu, var
stöðvaður á Keflavíkurflugvelli
þann 22. desember síðastliðinn
með tösku fulla af peningum. Jón
var á leiðinni til Bretlands þar
sem hann býr ásamt fjölskyldu
sinni.
Ástæðan fyrir því að hann var
stöðvaður var sú að hann var 2,5
milljónir króna í erlendum gjald-
eyri í handfarangri sínum. Lögum
samkvæmt má aðeins flytja sem
nemur 500 þúsund krónur í gjald-
eyri frá Íslandi til annarra landa.
Öryggisverðir í öryggishliðinu á
Keflavíkurflugvelli fundu pening-
ana í fórum Jóns Þorsteins. Vegna
þess að Jón Þorsteinn var með
fimm sinnum hærri upphæð en
mátti vera kölluðu þeir á tollverði
og lögreglan var látin vita, sam-
kvæmt heimildum DV.
Fjárfestirinn, sem er fyrrver-
andi stjórnarformaður í spari-
sjóðnum Byr, hafði losnað úr far-
banni skömmu áður en hann var
stöðvaður á flugvellinum. Sér-
stakur saksóknari efnahagshruns-
ins, Ólafur Hauksson, úrskurðaði
hann í farbann nokkrum dögum
áður en þann 22. desember var
greint frá því í fjölmiðlum að far-
bannið yrði ekki framlengt.
Lögreglan tók skýrslu
af Jóni Þorsteini
Samkvæmt heimildum DV var
tekin skýrsla af Jóni Þorsteini eft-
ir að upp komst að hann var með
margfalt meiri peninga á sér en
hann mátti. „Það voru örygg-
isverðir sem stöðvuðu hann ...
Upphæðin sem hann var með var
miklu hærri en leyfilegt er ... Þess
vegna var hann stöðvaður ... Þetta
fannst við reglubundna öryggisleit
í handfarangri þegar hann var að
fara í gegnum hliðið. Hann
var á leið úr landi,“
segir heimild-
armaður DV
sem vill ekki
láta nafns síns
getið.
Í skýrslutök-
unni útskýrði
Jón Þorsteinn
af hverju hann
væri með svo mikla
peninga á sér í reiðu-
fé. Ekki hafa
fengist upp-
lýsingar um hvaða ástæðu Jón
Þorsteinn gaf fyrir þessu.
Jóni var sleppt að lokinni
skýrslutöku og hann fékk að
halda áfram ferð sinni til Bret-
lands þrátt fyrir að upphæðin
væri þetta miklu hærri en mátti
vera með. Skýringar Jóns á því
af hverju hann var að flytja pen-
ingana úr landi hafa því þótt full-
nægjandi. Samkvæmt heimildum
DV tók um klukkustund að ganga
frá málinu.
Heimildir DV um hvort pening-
arnir hafi verið teknir af Jóni eða
ekki eru hins vegar misvísandi.
Einn möguleiki er sá að Jón hafi
borið því við að hann hafi stuðst
við reglurnar sem voru í gildi um
fjármagnsflutninga á milli landa
frá því fyrir bankahrun en sam-
kvæmt þeim mátti flytja allt að 15
þúsund evrur frá Íslandi í reiðufé,
það er nokkurn veginn sú upphæð
sem Jón var með á sér. Einn heim-
ildarmaður DV segir að Jón hafi
fengið að njóta vafans í málinu og
hafi því fengið að fara leiðar sinn-
ar, en líkt og áður segir stangast
heimildir DV á um þetta tiltekna
atriði málsins.
Rannsaka möguleg lögbrot
Embætti sérstaks saksóknara
rannsakar hvort auðgunarbrot og
umboðssvik hafi átt sér stað í Exet-
er-málinu sem snýst um tvær lán-
veitingar upp á 1,4 milljarða króna
sem Byr veitti til eignarhaldsfé-
lagsins Tæknisetur Arkea /Exet-
er Holding í október og desem-
ber 2008. Lánið til Arkea var notað
til að kaupa stofnfjárbréf stjórn-
armanna og starfsmanna Byrs í
sparisjóðnum, meðal annars
bréf Jóns Þorsteins Jóns-
sonar, á yfirverði.
Veðið fyrir láni Ex-
eter var að öllu
leyti í stofnfjár-
bréfunum sem
keypt voru. Jón Þorsteinn var
stjórnarformaður Byrs þegar tek-
in var ákvörðun um að veita lánin.
Bréfin í Byr höfðu lækkað gríð-
arlega í verði eftir bankahrunið
og þjónaði það hagsmunum eig-
endanna að losa sig við þau þar
sem MP Banki var byrjaður að
sækja það hart að fá lánin greidd
til baka. Eigendur bréfanna
stóðu því frammi fyrir því
að MP Banki setti þá í
þrot vegna vanefnda.
Einnig þjónaði það
hagsmunum MP
Banka að Exeter
Holding keypti
bréfin þar
sem bankinn
hafði upp-
haflega veitt
eigend-
um bréf-
anna lán til
að kaupa
stofnfjár-
bréfin.
Sérstak-
ur sak-
sóknari
gerði hús-
leitir hjá
Byr og MP
Banka í nóv-
ember vegna
rannsóknar-
innar. Rann-
sókn embættis-
ins beinist því að
báðum fjármála-
fyrirtækjunum og
nokkrum einstakling-
um sem störfuðu hjá
þeim, meðal annars
Jóni Þorsteini.
Rann-
sóknin á málinu er langt á veg
komin og hefur sérstakur sak-
sóknari náð vel utan um það, sam-
kvæmt heimildum DV
DV hefur ekki náð tali af Jóni
Þorsteini Jónssyni til að spyrja
hann um fjármagnsflutningana en
hann er staddur erlendis um þess-
ar mundir.
TEKINN MEÐ TÖSKU
FULLA AF PENINGUM
n Jón Þorsteinn var stjórnarformaður í sparisjóðnum Byr þegar gengið var
frá lánveitingunum til Arkea/Exeter. Hann er eitt af börnum Jóns Júlíussonar,
fyrrverandi eiganda Nóatúnsverslananna, sem seldi verslanirnar inn í Kaupás
árið 1990.
Fjárfestingafélag systkinanna, Saxhóll, átti um 7,5 prósenta hlut í Byr og félag
sem var að hluta til í eigu þess, Saxbygg, keypti 5 prósenta hlut í Glitni í apríl
2007 fyrir um 20 milljarða króna. Saxhólssystkinin voru því stórir hluthafar í
báðum fjármálafyrirtækjunum, Byr og Glitni.
n Jón Þorsteinn hefur sömuleiðis verið í umræðunni út af barnalánunum frá
Glitni sem foreldrar stofnfjáreigenda í Byr tóku fyrir hönd barna sinna í lok árs
2007 til að kaupa stofnfjárbréf í Byr. Þá var stofnfjáraukning í sparisjóðnum
sem fjármögnuð var af Glitni. Börn Jóns Þorsteins og nokkurra systkina hans
voru meðal þeirra sem fengu lán frá Glitni til að kaupa bréf í sparisjóðnum.
n Jón flutti nýlega til Bretlands þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni.
Hann er fyrsti maðurinn sem úrskurðaður hefur verið í farbann í tengslum við
rannsóknina á íslenska efnahagshruninu.
Hver er Jón Þorsteinn Jónsson?
n 10. gr. reglna Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál frá 28.
nóvember 2008: „Inn- og útflutningur gjaldeyris. Óheimilt er að flytja út
gjaldeyri í reiðufé umfram jafnvirði 500.000 kr. hjá hverjum aðila í hverjum
almanaksmánuði.“
Reglur um gjaldeyrismál
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Upphæðin sem hann
var með var miklu
hærri en leyfilegt er
... Þetta fannst við
reglubundna öryggis-
leit í handfarangri.“
Stöðvaður í Leifsstöð Jón Þorsteinn
Jónsson var stöðvaður í Leifsstöð með
tösku sem í voru 2,5 milljónir króna í
erlendum gjaldeyri, fimm sinnum hærri
upphæð en má flytja á milli landa. Kallað
var á tollgæsluna sem tók skýrslu af Jóni.
Fannst við öryggisleit
Öryggisverðir í Leifsstöð
fundu peningana í tösku
Jón Þorsteins við reglu-
bundna öryggisleit.