Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Síða 12
SKIPULEGGIÐ
BÓKHALDIÐ
Nú er rétti tíminn til að taka til í
bókhaldinu og koma skipulagi á
fjármálin. Víða getur fólk komist
í þægileg og einföld bókhalds-
forrit. Spara.is er með eitt, þar
sem hægt er að gera raunhæfa
áætlun um niðurgreiðslu skulda.
Neytendasamtökin bjóða upp á
rafrænt heimilisbókhald fyrir fé-
lagsmenn sína og Landsbankinn
flokkar allar færslur og reiknar út
tekjur og útgjöld undir liðnum
„heimilisbókhald“ í einkabank-
anum, svo nokkur dæmi séu tek-
in. Forritin eru einfaldari og flott-
ari en flesta órar fyrir.
OPNAÐU
DÓSIRNAR
Eru allir karlmenn heimilisins
búnir að spreyta sig á rauðkáls-
krukkunni? Situr lokið pikkfast?
Ef þú villt skjóta harðjöxlunum
ref fyrir rass skaltu laumast til að
stinga gat á lokið með beittum
hníf eða skærum. Þá kemst loft
inn í krukkuna og jafnvel ómálga
barn gæti opnað hana. Þú upp-
skerð ómælda virðingu heimilis-
fólksins í verðlaun. Ef þú átt erfitt
með að ná innihaldi niðursuðu-
dósar (til dæmis kæfu eða tún-
fisks) úr dósinni geturðu á sama
hátt gert gat á botninn. Þá verður
það leikur einn.
n Viðskiptavinur Símans
gaf Nokia 2330-farsíma í
jólagjöf. Síminn reyndist
bilaður og slökkti á sér í
sífellu. Hrokafullt
viðmót var það sem
mætti viðskiptavinin-
um þegar hann leitaði í
verslunina. Afgreiðslu-
maðurinn bar fyrir sig reglur og
neitaði að afhenda nýjan síma
fyrr en fullreynt væri að hægt
væri að gera við mánudagssím-
ann.
Jólabarnið
er enn
símalaust.
n Lofið fær starfsfólk Eymundsson í
Kringlunni. Viðskiptavinur í örvænt-
ingarfullri leit að réttu gjöfinni fékk
fyrsta flokks þjónustu síðustu dagana
fyrir jól, þótt brjálað væri að gera.
Þegar rétta gjöfin hafði verið
valin, með hjálp starfsfólks,
bauðst það til að pakka henni
inn, kúnnanum að kostnaðar-
lausu. Fyrirmyndarafgreiðsla.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 185,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 181,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 188,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 183,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 188,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,8 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 183,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 180,2 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 186,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 183,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 188,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 184,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
12 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 NEYTENDUR
Jóhannes Gunnarsson segir slæmt að útsölurnar byrji strax eftir jól:
VILLANDI UPPLÝSINGAR BANNAÐAR
„Ég held að öll alvöru fyrirtæki, sem
vilja vera trúverðug, hljóti að standa
rétt að útsölum. Fyrirtækii sem gera
það ekki kalla ég einnota fyrirtæki.
Það er farsælast fyrir alla að farið sé
að leikreglum,“ segir Jóhannes Gunn-
arsson, formaður Neytendasamtak-
anna, spurður hvort algengt sé að fyr-
irtæki fari á svig við reglur í útsölum.
Jóhannes segir að Neytendasamtök-
in fái jafnan þó nokkuð af kvörtunum
þegar útsölur hefjast eftir jólin.
Enginn skilaréttur
Jóhannes segir mjög slæmt þegar út-
sölurnar byrji strax eftir jól. Það geri
neytendum erfitt fyrir. Reynslan sýni
að það sé ávísun á vandræði þeg-
ar kemur að því að skila jólagjöfum.
Álitamál sé þá hvort verslanir end-
urgreiði fólki vörurnar á fullu verði
eða útsöluverði. „Við teljum að verð-
ið sem varan var keypt á eigi að gilda.
Um það eru verslanir ekki sammála
okkur,“ segir Jóhannes en bendir á að
enginn skilaréttur sé á vörum sem séu
ógallaðar. Eingöngu séu til leiðbein-
andi reglur sem verslanir þurfi ekki
að fara eftir.
Villandi tilboð
Eins og sjá má í greininni hér fyrir
ofan eru verslanir gjarnar á að auglýsa
mjög mikinn afslátt við upphaf út-
Enginn skilaréttur Jóhannes
bendir á að verslunum sé ekki skylt að
taka við ógölluðum vörum.
Fatnaður er sá vöruflokkur sem víð-
ast lækkar í verði á útsölunum, sem
nú eru venju samkvæmt komnar í
fullan gang. Margir auglýsa afslátt á
bilinu 40 til 70 prósent. Herragarð-
urinn, Hugo Boss, Debenhams, Þrír
smárar, Hagkaup og Útilíf eru dæmi
um verslanir sem selja föt á mjög
niðursettu verði.
Húsgagnaverslanir á borð við
ILVA og IKEA bjóða einnig rausn-
arlegan afslátt nú í upphafi nýs árs
en ef vel er leitað má einnig finna
heimilistæki, tölvur og annan bún-
að á miklum afslætti. DV tók sam-
an helstu útsölur sem auglýstar hafa
verið í fjölmiðlum en upptalningin er
vitanlega ekki tæmandi.
Bestu kaupin
Eins og áður sagði má víða gera góð
kaup þegar kemur að fatnaði, að því
gefnu að verslanir séu raunverulega
að slá af verði sem áður var hærra. Í
Útilífi, í Holtagörðum og Glæsibæ, er
afslátturinn auglýstur 30 til 50 pró-
sent, Debenhams auglýsir allt að 70
prósenta afslátt og barnafatabúð-
in Þrír smárar auglýsir helmings af-
slátt af öllum vörum í búðinni. Tísku-
verslanirnar Herragarðurinn, Next
og Hugo Boss slá 40 prósent af öllum
vörum. Hagkaup fer sínar eigin leiðir
og auglýsir sex útsöluverð á fatnaði,
skóm og heimilisbúnaði. Verðin eru
250 krónur, 500 krónur, 1000, 1500,
Góð tilboð Verslanir bjóða allt að 80 prósenta afslátt af vörum sínum. Fatnaður lækkar víðast hvar mest í verði. H&N-MYND PHOTOS.COM
Útsölurnar eru hafnar af fullum krafti. Fatnaður, skór og heimilisbúnaður eru þær
vörur sem mest lækka í verði en þeir sem hafa í hyggju að kaupa húsgögn geta einnig
komist í feitt. Raftæki og tölvuvörur eru sums staðar á mikið lækkuðu verði. DV tók
saman upplýsingar um stærstu og bestu útsölurnar.
BESTU ÚTSÖLURNAR
Ef til vill má gera bestu
kaupin á fatnaði í
Merkja Outlet.