Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Side 20
Matthías Johannessen
SKÁLD OG FYRRV. RITSTJÓRI MORGUNBLAÐSINS
Matthías fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Vesturbænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1950 og cand.
mag. prófi frá HÍ í norrænum fræð-
um með íslenskar bókmenntir sem
aðalgrein, 1955 og stundaði fram-
haldsnám við Kaupmannahafnar-
háskóla veturinn 1956-1957.
Matthías varð blaðamaður við
Morgunblaðið 1951 og var ritstjóri
Morgunblaðsins 1959-2001.
Matthías sat m.a. í stjórn Hins
íslenska þjóðvinafélags, í mennta-
málaráði, í bókmenntaráði Al-
menna bókafélagsins, í stjórn Film-
íu, í stjórn Heimdallar og SUS, átti
sæti í flokksráði Sjálfstæðisflokks-
ins, var, ásamt öðrum, ritstjóri
Stefnis og sat í ritstjórn tímaritsins
Frelsið, sat í stjórn Krabbameins-
félags Íslands og Hjartaverndar.
Hann var formaður Stúdentaráðs
HÍ, Stúdentafélags Reykjavíkur,
Blaðamannafélags Íslands, Félags
íslenskra rithöfunda, Rithöfunda-
sambands Íslands, Rithöfundaráðs,
Norræna rithöfundaráðsins, Þjóð-
hátíðarnefndar 1966-1974, Yrkju og
Menntamálaráðs 1983-1987.
Ljóðabækur Matthíasar: Borgin
hló, 1958, 2. útg. 1995; Hólmgöngu-
ljóð, 1960, 2. útg. 1985; Jörð úr ægi,
1961; Vor úr vetri, 1963; Fagur er
dalur, 1966; Vísur um vötn, 1971;
Mörg eru dags augu, 1972; Dagur
ei meir, 1975; Morgun í maí, 1978;
Tveggja bakka veður, 1981; Veður
ræður akri, 1981; Flýgur örn yfir,
1984; Dagur af degi, 1988; Sálm-
ar á atómöld, 1991; Fuglar og ann-
að fólk, 1991: Árstíðaferð um innri
mann, 1992; Land mitt og jörð,
1994; Vötn þín og vængur, 1996;
Ættjarðarljóð á atómöld, 1999;
Ljóðaúrval, 2001; Kvöldganga með
fuglum, 2005; Netljóð I-III (óprent-
uð útg.); Vegur minn til þín, 2009.
Mörg ljóða Matthíasar hafa ver-
ið þýdd og gefin út á fjölmörgum
tungumálum og hafa birst í fjölda
safnrita og tímarita.
Samtalsbækur Matthíasar: Í
kompaníi við allífið, viðtöl við Þór-
berg Þórðarson, 1959; Svo kvað
Tómas, viðtöl við Tómas Guð-
mundsson, 1960; Hundaþúfan og
hafið, viðtöl við Pál Ísólfsson, 1961;
Hugleiðingar og viðtöl, 1963; Í dag
skein sól, viðtöl við Pál Ísólfsson,
1964; Kjarvalskver, 1968, aukið 1974
og ný útg. 1995; Bókin um Ásmund,
1971; Skeggræður gegnum tíðina,
samtalsgreinar um Halldór Lax-
ness, 1972, Gunnlaugu Scheving,
1974, Sverri Haraldsson, 1977, M
– Samtöl - fimm bindi af völdum
samtölum Matthíasar við ýmsar
persónur, útg. 1977-1985, Í komp-
aníi við Þórberg, 1989; Vökunótt
fuglsins 1990, samtöl og ritgerðir,
og Samtöl Matthíasar Johannessen,
úrval samtala, 2009.
Leikrit Matthiasar: Sólmyrkvi,
1962 og Fjaðrafok og önnur leik-
rit, 1975, en þar eru átta leikrit: Jón
gamli; Eins og þér sáið; Sólborg;
Fjaðrafok; Lungnaæfing; Hús-
kveðja, Ófelía og Sókrates. Meðal
annarra leikrita hans: Guðs reiði;
Glerbrot; Sjóarinn, Spákonan og
Maðurinn er vænglaus fluga.
Sögur: Nítján smáþættir, 1981;
Konungur af Aragon og aðrar sög-
ur, 1986; Sól á heimsenda, 1987;
Flugnasuð í farangrinum, 1998 og
Hann nærist á góðum minningum,
2001.
Smásögur: Hvíldarlaus ferð inn
í drauminn, 1995; Vindkers víður
botn, 2009. Matthías samdi fræði-
ritin Njála í íslenskum skáldskap,
útg. 1958; Klofningur Sjálfstæðis-
flokksins gamla 1915, útg. 1971;
Bókmenntaþættir, 1985; Ævisaga
hugmynda – helgispjall, 1990; Þjóð-
félagið, helgispjall, 1992; Spunn-
ið um Stalín – helgispjall, 1995;
Fjötrar okkar og takmörk – helgi-
spjall, 1995; Eintal á alneti – helgi-
spjall, 1996; Sagnir og sögupersón-
ur – helgispjall, 1997; Gríma gamals
húss – helgispjall, 1998; Við Kára-
hnjúka og önnur kennileiti, helgi-
spjall, 1999. Hann skrifaði ævi- og
stjórnmálasögu Ólafs Thors, sem
út kom í tveimur bindum 1981 og
er höfundur ritsins Um Jónas, 1993,
um Jónas Hallgrímsson, auk mikils
fjölda greinasafna og annarra rita.
Þá hefur hann samið formála og
bókarkafla í ýmis rit og séð um út-
gáfu ýmissa ritverka.
Matthías hlaut verðlaun úr
móðurmálssjóði Björns Jónssonar;
hefur verið í heiðurslaunaflokki Al-
þingis frá 1984; fékk viðurkenningu
úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins;
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á
Degi íslenskrar tungu 1999 og er
heiðursfélagi Rithöfundasambands
Íslands. Þrjár ljóðabóka hans hafa
verið tilnefndar til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs: Tveggja
bakka veður, Dagur af degi og Vötn
þín og vængur.
Fjölskylda
Matthías kvæntist 26.6. 1953, Jó-
hönnu Kristveigu Ingólfsdóttur Jo-
hannessen, f. 28.11. 1929, d. 25.4.
2009, húsmóður og hárgreiðslu-
meistara. Hún var dóttir Ingólfs
Kristjánssonar, f. 10.9. 1989, d. 9.1.
1954, bónda á Víðihóli á Hólsvöll-
um, og k.h., Katrínar Maríu Magn-
úsdóttur, f. 10.10. 1895, d. 17.3.
1978, húsfreyju.
Synir Matthíasar og Jóhönnu
eru Haraldur Johannessen, f. 25.6.
1954, lögfræðingur og ríkislög-
reglustjóri, kvæntur Brynhildi Ingi-
mundardóttur hjúkrunarfræð-
ingi en börn þeirra eru Matthías,
Kristján, Anna og Svava; Ingólfur
Johannessen, f. 17.2. 1964, doktor
í veirufræði frá Lundúnaháskóla
og Edinborgarháskóla, lektor við
læknadeild Edinborgarháskóla og
sérfræðingur í veirufræði við Há-
skólasjúkrahúsið í Edinborg.
Systkini Matthíasar eru Jósef-
ína Norland, f. 16.5. 1925, húsmóð-
ir í Reykjavík; Jóhannes Johannes-
sen, f. 10.11. 1937, lögfræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Matthíasar: Haraldur
Johannessen, f. 5.4. 1897, d. 13.12.
1970, aðalgjaldkeri Landsbanka Ís-
lands, og k.h., Anna Jóhannesdóttir
Johannessen, f. 2.11. 1900, d. 15.6.
1983, húsmóðir.
Ætt
Systir Haraldar var Ellen, móðir
Louisu Matthíasdóttur listmálara.
Haraldur var sonur Matthíasar Jo-
hannessen, kaupmanns frá Bergen
í Noregi. Móðir Haraldar var Helga
Norðfjörð, Jónsdóttir Norðfjörð
verslunarmanns í Reykjavík, bróð-
ur Sigríðar, ömmu Jakobs Möller
ráðherra, föður Baldurs, fyrrv. ráðu-
neytisstjóra og skákmeistara, föður
Markúsar hagfræðings. Önnur syst-
ir Jóns var Helga, langamma Hans
G. Andersen, föður Gunnars And-
ersen, forstjóra fjármálaeftirlitsins.
Jón var sonur Magnúsar Norðfjörð,
beykis í Reykjavík Jónssonar, beyk-
is í Reykjafirði, bróður Guðbjargar,
langömmu Sigríðar, ömmu Frið-
riks Ólafssonar stórmeistara, og
langömmu Jóhanns, afa Jóhanns
Hjálmarssonar skálds. Önnur syst-
ir Jóns var Hallgerður, langamma
Ágústs H. Bjarnasonar, heimspek-
ings og háskólarektors. Móðir Jóns
verslunarmanns var Helga Ingi-
mundardóttir, systir Ingigerðar,
langömmu Bjargar, ömmu Garð-
ars Cortes óperusöngvara, föður
Garðars Thórs Cortes óperusöngv-
ara. Bróðir Helgu var Ólafur, langafi
Valgerðar, ömmu Einars Benedikts-
sonar sendiherra.
Móðursystkini Matthíasar: Lár-
us, alþm. og hæstaréttardómari,
og Elín, húsmóðir. Faðir Önnu var
Jóhannes, bæjarfógeti í Reykjavík
Jóhannesson, sýslumanns Guð-
mundssonar, b. á Miklahóli í Við-
víkursveit, bróður Halls, föður Sig-
urðar, langafa Páls á Höllustöðum,
fyrrv. ráðherra. Annar bróðir Guð-
mundar var Jóhannes, hreppstjóri í
Hofsstaðaseli, afi Vilhjálms Stefáns-
sonar landkönnuðar. Guðmund-
ur var sonur Jóns, b. á Bjarnastöð-
um Jónssonar, fjórðungslæknis í
Viðvík Péturssonar. Móðir Jóns á
Bjarnastöðum var Guðrún Hall-
grímsdóttir (Djákna-Gunna), sú er
Myrkárdjákninn glettist við. Móðir
Jóhannesar bæjarfógeta var Maren
Ragnheiður Friðrika Lárusdóttir,
sýslumanns að Enni Thorarensen,
Stefánssonar, amtmanns á Möðru-
völlum Þórarinssonar, sýslumanns
að Grund og ættföður Thoraren-
senættar Jónssonar. Móðir Lár-
usar var Ragnheiður Vigfúsdóttir,
sýslumanns á Víðivöllum Scheving.
Móðir Marenar var Elín Jakobsdótt-
ir Hafstein, systir Péturs Hafstein
amtmanns, föður Hannesar ráð-
herra.
Móðir Önnu var Jósefína Ant-
ónína, systir Haraldar Blöndal ljós-
myndara, afa Benedikts hæsta-
réttardómara, Halldórs alþm. og
Haraldar hrl. Jósefína var dótt-
ir Lárusar Blöndal, amtmanns á
Kornsá, bróður Gunnlaugs sýslu-
manns, Magnúsar sýslumanns og
Jóns Auðuns alþm. Lárus var son-
ur Björns Blöndal, sýslumanns
í Hvammi í Vatnsdal, ættföður
Blöndalsættar Auðunssonar.
Móðir Jósefínu var Kristín, dótt-
ir Ásgeirs, dbrm og bókbindara á
Lambastöðum á Álftanesi, bróður
Jakobs, pr. í Steinnesi, langafa Vig-
dísar Finnbogadóttur, en móðir
Kristínar, Sigríður, var systir Þuríð-
ar, langömmu Vigdísar. Sigríður var
dóttir Þorvalds, pr. og skálds í Holti
Böðvarssonar, pr. í Holtaþingum
Högnasonar, prestaföður á Breiða-
bólstað Sigurðssonar.
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR
30 ÁRA
n Tomasz Grzegorz Makowski Furugrund 75,
Kópavogi
n Marek Santocki Flatahrauni 7, Hafnarfirði
n Cecilia Elizabeth Garate Ojeda Pollgötu 4, Ísafirði
n Örvar Omrí Ólafsson Lautasmára 33, Kópavogi
n Kristbjörn Guðmundsson Kögurseli 44, Reykjavík
n Gunnar Agnar Vilhjálmsson Grenilundi 2, Akureyri
n Steinunn Margrét Gylfadóttir Barmahlíð 8,
Reykjavík
n Daði Lange Friðriksson Skútahrauni 15, Mývatni
n Sigrún Birna Gunnarsdóttir Bergsstöðum,
Hvammstanga
n Íris Huld Heiðarsdóttir Smárahlíð 1h, Akureyri
n Ingvar Hjálmarsson Suðurholti 11, Hafnarfirði
40 ÁRA
n Maria Eugenia Cauhépé Gnoðarvogi 54, Reykjavík
n Aralyn Q. Kristjánsson Strýtuseli 7, Reykjavík
n Hjalti Styrmisson Fossheiði 30, Selfossi
n Árni Þorsteinsson Skógarbraut 931, Reykjanesbæ
n Ásta Birna Ingólfsdóttir Hverfisgötu 38b,
Hafnarfirði
n Andri Kristinn Karlsson Smáraflöt 15, Garðabæ
n Jóhanna Steinunn Snorradóttir Hólmatúni 50,
Álftanesi
n Þorbjörn Valur Jóhannsson Brautarholti 2,
Reykjavík
n Íris Bettý Alfreðsdóttir Mýrargötu 5, Vogum
n María Edith Magnúsdóttir Lómasölum 37,
Kópavogi
n Hlynur Hreinsson Ásbúð 67, Garðabæ
n Birna Dögg Granz Hábergi 5, Reykjavík
n Líney Björk Arnardóttir Helgamagrastræti 47a,
Akureyri
n Páll Jakob Malmberg Furuhlíð 25, Hafnarfirði
n Thor Aspelund Ystaseli 24, Reykjavík
50 ÁRA
n Ragnheiður Halldórsdóttir Pólgötu 10, Ísafirði
n Árni Valdimar Kristjánsson Maríubaugi 53,
Reykjavík
n Valgerður Jónsdóttir Hverafold 88, Reykjavík
n Gunnar Árni Vigfússon Miðtúni 6, Seyðisfirði
n Stefán Haukur Jóhannesson Sendiráði Brussel,
Reykjavík
n Sigurður Hans Jónsson Högnastíg 3, Flúðum
n Minh Quang Vu Snorrabraut 35, Reykjavík
n Malgorzata Krystyna Negowska Ásakór 3,
Kópavogi
n Ólöf Bjarnadóttir Bláskógum 6, Hveragerði
n Björg Jónsdóttir Björtuhlíð 13, Mosfellsbæ
n Hallfríður Jónsdóttir Breiðuvík 18, Reykjavík
n Marteinn Ólafsson Hólagötu 6, Sandgerði
n Björg Björnsdóttir Trönuhólum 14, Reykjavík
60 ÁRA
n Helgi Gestsson Möðruvallastræti 2, Akureyri
n Lovísa Jónsdóttir Austurbrún 21, Reykjavík
n Heiður Þorsteinsdóttir Fjallalind 83, Kópavogi
n Ólafur Guðbjartsson Mánagötu 27, Grindavík
n Emil Brynjar Karlsson Tröllateigi 20, Mosfellsbæ
n Kristján L. Guðlaugsson Vífilsgötu 16, Reykjavík
n Baldur Jónasson Langagerði 80, Reykjavík
n Þorbjörn Jónsson Fellahvarfi 1, Kópavogi
n Vilhjálmur Baldvinsson Heiðarlundi 8d, Akureyri
n Sigurður J. Jónsson Naustabryggju 29, Reykjavík
70 ÁRA
n Erla Helgadóttir Hlíðargötu 62b, Fáskrúðsfirði
n Sverrir Björnsson Laugarvegi 44, Siglufirði
n Alda Sigurrós Joensen Selvogsbraut 33,
Þorlákshöfn
n Elís Rósant Helgason Vesturbergi 21, Reykjavík
75 ÁRA
n Lilja Eyjólfsdóttir Frostafold 14, Reykjavík
n Ástvaldur Jónsson Brekkugötu 38, Þingeyri
n Margrét Andersdóttir Ásbúð 77, Garðabæ
n Snorri Gíslason Skeljagranda 7, Reykjavík
n Svanhildur Eyjólfsdóttir Rituhólum 4, Reykjavík
n Karen Vilhjálmsdóttir Hellulandi 20, Reykjavík
80 ÁRA
n Jóhann Guðmundsson Bröttugötu 1, Hólmavík
n Guðrún Steingrímsdóttir Grandavegi 45, Reykjavík
n Lea Rakel Möller Háulind 25, Kópavogi
n Bjarni S. Jónasson Álandi 3, Reykjavík
85 ÁRA
n Guðlaug Hinriksdóttir Höfðagrund 2, Akranesi
n Ásta Kristinsdóttir Vallarbraut 6, Reykjanesbæ
TIL
HAMINGJU
MEÐ
AFMÆLIÐ!
80 ÁRA Í GÆR
20 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 ÆTTFRÆÐI
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR
30 ÁRA
n Robert Janik Sandgerðisvegi 7, Garði
n Iveta Siraka Hringbraut 113, Reykjavík
n Vigfús Jón Dagbjartsson Norðurgarði 11, Hvolsvelli
n Ottó Ólafsson Rauðavaði 9, Reykjavík
n Helgi Reynir Árnason Valagili 6, Akureyri
n Monika Kornas Auðbrekku 21, Kópavogi
n Einar Birgir Baldursson Engihjalla 3, Kópavogi
n Atli Þór Jakobsson Ásgarði 153, Reykjavík
n Erla Kristín Sverrisdóttir Drápuhlíð 30, Reykjavík
n Ingvar Rafn Gunnarsson Bárugranda 5, Reykjavík
40 ÁRA
n Tómas Björnsson Brekkugerði 9, Reykjavík
n Hörður Harðarson Bakkaseli 13, Reykjavík
n Þórður Hermann Kolbeinsson Básbryggju 15,
Reykjavík
n Ásta Hallfríður Valsdóttir Hólavegi 38, Sauðárkróki
n Sigurvin Bjarnason Sörlaskjóli 58, Reykjavík
n Sigríður Pálrún Stefánsdóttir Melgötu 12, Grenivík
n Signý Yrsa Pétursdóttir Heiðarhjalla 47, Kópavogi
n Gestur Arnar Gylfason Heiðarhvammi 1f,
Reykjanesbæ
n Sigurbjörn S. Kjartansson Lambhaga 50, Selfossi
n Guðmundur Jóhann Óskarsson Skipholti 54,
Reykjavík
n Sverrir Berg Steinarsson Austurbrún 28, Reykjavík
n Guðni Ágúst Gíslason Suðurgötu 18, Sandgerði
50 ÁRA
n Jónas Yamak Björtusölum 23, Kópavogi
n Jón Grétar Sigurðsson Fögrubrekku 10, Kópavogi
n Sigríður Hallgrímsdóttir Sæbólsbraut 26, Kópavogi
n Oddur Halldórsson Ölduslóð 11, Hafnarfirði
n Lúðvík Hjalti Jónsson Lindarflöt 50, Garðabæ
n Sigurður Sveinsson Fellahvarfi 27, Kópavogi
n Torfi Guðmundsson Presthúsabraut 27, Akranesi
n Sindri Már Björnsson Mávatjörn 20, Reykjanesbæ
n Sigurður Jóhann Hafberg Ólafstúni 7, Flateyri
n Sigurbjörg J Jóhannesdóttir Suðurgötu 104,
Hafnarfirði
n Jóhanna Þ Jóhannesdóttir Víkurbraut 29,
Grindavík
n Soffía Svava Adolfsdóttir Klettahlíð 10, Hveragerði
n Hákon Jón Kristmundsson Lyngbergi 7, Hafnarfirði
n Ásdís Elva Aðalsteinsdóttir Akurgerði 38, Reykjavík
60 ÁRA
n Hilmir Hrafn Jóhannsson Mýrarvegi 117, Akureyri
n Kristín Svanhildur Pétursdóttir Hjallabraut 13,
Hafnarfirði
n Edda Kolbrún Metúsalemsdóttir Frostaþingi 12,
Kópavogi
n Kristján Sigurður Birgisson Hrauntungu 41,
Kópavogi
n Jón Bjargmundsson Rjúpnasölum 14, Kópavogi
n Kristín Aðalsteinsdóttir Snælandi 4, Reykjavík
n Jenný Hlín Kristinsdóttir Heiðmörk 7, Stöðvarfirði
n Anna Pálsdóttir Túngötu 26, Siglufirði
n Björn S. Pálsson Granaskjóli 23, Reykjavík
n Hreiðar S. Albertsson Reyrengi 4, Reykjavík
n Birna Dís Benediktsdóttir Torfufelli 34, Reykjavík
n Erla Haraldsdóttir Marklandi 2, Reykjavík
70 ÁRA
n Sigurður Grétar Jónsson Stekkjarbergi 4,
Hafnarfirði
n Skjöldur Sigurðsson Goðaborgum 3, Reykjavík
n Jónas B. Erlendsson Hjallabrekku 26, Kópavogi
n Guðrún Guðmundsdóttir Miklholtshelli, Selfossi
n Júlíus Oddsson Mörk, Kirkjubæjarklaustri
n Sigurrós Sigurðardóttir Frostafold 4, Reykjavík
n Guðbjörg R. Þorgilsdóttir Skarðshlíð 13e, Akureyri
n Eygló Jónasdóttir Hraunbæ 66, Reykjavík
75 ÁRA
n Einar Ásgeirsson Hörðukór 5, Kópavogi
85 ÁRA
n Helgi Sigurður Haraldsson Sléttuvegi 19, Reykjavík
90 ÁRA
n Helga Guðjónsdóttir Litlu-Háeyri, Eyrarbakka
n Þórey Una Jónsdóttir Lækjargötu 10b, Hafnarfirði
TIL
HAMINGJU
MEÐ
AFMÆLIÐ!