Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010
TUÐ EFTIR TAPLEIK Sir Alex Ferguson var allt annað en sáttur eftir snaut-
legt tap Manchester United gegn Leeds. Sir Alex hefur þann hvimleiða vana að láta
dómarana heyra það eftir tapleiki og hann sá ástæðu til að minnast á uppbótartímann
sem var fimm mínútur. „Það var móðgun við leikinn sem og leikmennina.“ Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem Sir Alex kvartar undan uppbótartímanum og væntan-
lega ekki það síðasta. Nema United verði taplaust á árinu 2010.
UMSJÓN: BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON, benni@dv.is
ENSKI BIKARINN
ASTON VILLA - BLACKBURN 3 - 1
1-0 Nathan Delfouneso (‘12), 2-0 Carlos Cuellar (‘37), 2-1 Nikola
Kalinic (‘55), 3-1 John Carew (‘90, víti),
n El Hadji Diouf (‘42)
BOLTON - LINCOLN 4 - 0
1-0 Moses Swaibu (Sjálfsmark) (‘49), 2-0 Chung Yong Lee (‘51)
3-0 Gary Cahill (‘83), 4-0 Mark Davies (‘90)
MIDDLESBROUGH - MAN. CITY 0 - 1
0-1 Benjani (‘45)
FULHAM - SWINDON 1 - 0
1-0 Bobby Zamora (‘16)
EVERTON - CARLISLE 3 - 1
1-0 James Vaugan (‘12), 1-1 Kevan Hurst (‘18)
2-1 Tim Cahill (‘82), 3-1 Leighton Baines (‘90, víti)
SUNDERLAND - BARROW 3 - 0
1-0 Steed Malbranque (‘15), 2-0 Fraizer Campbell (‘51),
3-0 Fraizer Campbell (‘58)
PORTSMOUTH - COVENTRY 1 - 1
0-1 David Bell (‘30), 1-1 Kevin Prince Boateng (‘45)
TOTTENHAM - PETERBOROUGH 4 - 0
1-0 Niko Kranjcar (‘35), 2-0 Niko Kranjcar (‘57), 3-0 Jermain Defoe
(‘70), 4-0 Robbie Keane (‘90, víti)
WIGAN - HULL 4 - 1
0-1 Geovanni (‘45), 1-1 Charles N’Zogbia (‘47), 2-1 James Mc-
Carthy (‘6), 3-1 Charles N’Zogbia (‘66), 4-1 Scott Sinclair (‘90)
STOKE - YORK 3 - 1
0-1 Neil Barrett (‘22), 1-1 Daniel Parslow (‘25) (Sjálfsmark), 2-1
Ricardo Fuller (‘28), 3-1 Matthew Etherington (‘58)
MK DONS - BURNLEY 1 - 2
0-1 Graham Alexander (‘23, víti), 0-2 Steven Fletcher (‘35), 1-2
Dean Morgan (‘89)
PLYMOUTH - NEWCASTLE 0 - 0
NOTT. FOREST - BIRMINGHAM 0 - 0
PRESTON - COLCHESTER 7 - 0
BLACKPOOL - IPSWICH TOWN 1 - 2
HUDDERSFIELD - WBA 0 - 2
LEICESTER - SWANSEA 1 - 2
MILLWALL - DERBY 1 - 1
SCUNTHORPE - BARNSLEY 1 - 0
SHEFFIELD WED - CRYSTAL PALACE 1 - 2
SOUTHAMPTON - LUTON 1 -0
TORQUAY - BRIGHTON 0 - 1
READING - LIVERPOOL 1 - 1
1-0 Simon Church (‘24), 1-1 Steven Gerrard (‘36)
MANCHESTER UNITED - LEEDS 0-1
CHELSEA - WATFORD 5-0
1-0 Daniel Sturridge (‘5), 2-0 J. Eustace (‘15, sjálfsmark), 3-0
Florent Malouda (‘22), 4-0 Frank Lampard (‘64), 5-0 Daniel
Sturridge (‘68)
NOTTS COUNTY - FOREST GREEN 0-0
SHEFFIELD UNITED - QPR 0-2
0-1 J. Simpson (‘39), 0-2 R. Cresswell (‘45)
WEST HAM - ARSENAL 1-2
1-0 Alessandro Diamanti (‘45).1-1 Aaron Ramsey (‘78), 1-2
Eduardo (‘83)
TRANMERE ROVERS - WOLVES X-X
Fjórða umferð:
n Tottenham - Leeds United
n Tranmere/Wolves - Crystal Palace
n Aston Villa - Brighton
n Preston - Chelsea
n Portsmouth/Coventry - Sunderland
n Bolton - Sheffield United/QPR
n Accrington/Gillingham - Fulham
n Everton - Nott. Forest/Birmingham
n West Brom - Plymouth/Newcastle
n Scunthorpe United - Manchester City
n Notts County/Forest Green - Wigan
n Stoke City - Arsenal
n Bristol City/Cardiff City - Leicester City
n Millwall/Derby - Brentford/Doncaster
n Reading/Liverpool - Burnley
n Southampton - Ipswich
ENSKI BIKARINN
FA CUP HETJURNAR
Hafðu samband
í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Leeds United minnti heldur betur
á sig um helgina þegar liðið nið-
urlægði Manchester United á Old
Trafford, sem oftast er kallað Leik-
hús draumanna, í enska bikarnum.
Leeds er á toppnum í þriðju efstu
deild Englands, C-deildinni, og virð-
ist vera að jafna sig á fjármálaóreið-
unni sem svipti félagið allri sinni
dýrð.
Stórveldi
Leeds var stofnað 1919 og hefur allt-
af leikið á Elland Road. Undir stjórn
Dons Revie varð Leeds að stórveldi,
bæði á Englandi og í Evrópu. Frá
1965-1974 endaði Leeds aldrei neð-
ar en í fjórða sæti og vann fjölda bik-
ara. Þegar Revie hætti féll liðið í aðra
deild árið 1982 og komst ekki aftur
upp fyrr en árið 1990 undir stjórn
Howards Wilkinson. Tveimur árum
síðar varð Leeds enskur meistari
með Eric nokkurn Cantona fremst-
an meðal jafningja.
Meistaradeildin
Leeds United skipaði George Gra-
ham sem stjóra 1996 og liðið fór á
mikið flug. Jimmy Floyd Hasselba-
ink var keyptur og ungir leikmenn
fóru að spila. Liðið komst í UEFA-
bikarinn og Graham hætti, tók við
Tottenham og David O´Leary var
ráðinn.
Leeds-arar voru reglulega við
toppinn þótt þeir næðu aldrei titlin-
um. Hins vegar komust þeir í Meist-
aradeildina og ætluðu sér stóra
hluti. Risastóra hluti.
Oliver Dacourt var keyptur fyr-
ir metfé og Rio Ferdinand skömmu
síðar fyrir 18 milljónir punda. Allt
var á blússandi ferð og liðið talið eitt
það besta í Evrópu enda komst það
alla leið í undanúrslit í Meistara-
deildinni.
Þvottakonan fékk Benz
David O´Leary hafði alltaf kom-
ist í Evrópukeppni með Leeds,
aldrei endað neðar en í fjórða sæti
og Leeds-arar veðjuðu á peninga-
lest Meistaradeildarinnar. Lán voru
tekin fyrir hinu og þessu og Robbie
Fowler og Seth Johnson voru keypt-
ir fyrir háar upphæðir, samningar
voru bættir og meira að segja fékk
konan sem þvær búningana Mer-
cedes Benz-bifreið sér til yndisauka.
En Newcastle United eyðilagði
allt. Liðið hafði fjórða sætið af Leeds
og peningarnir hurfu frá Elland
Road. Liðið þurfti að losa sig við leik-
menn, á bak við David O´Leary, sem
hætti í kjölfarið.
Rio Ferdinand, Jonathan Wood-
gate, Lee Bowyer, Nigel Martyn,
Robbie Fowler, Robbie Keane og
Harry Kewell fóru allir til annarra
liða og Leeds náði sér aldrei aftur á
flug. Eftir 14 ára veru í efstu deild féll
Leeds árið 2004.
Orðið skuldlaust
Leeds-arar ætluðu sér að taka tíma
til að byggja upp á ný en fjármála-
óreiðan var nú fyrst farin að segja
til sín. Liðið var dæmt til gjald-
þrotaskipta og féll niður í þriðju
efstu deild. Það dýpsta sem Leeds
hafði sokkið. Til að bæta gráu ofan
á svart byrjaði Leeds með 15 stig í
mínus í þriðju deildinni. Botnin-
um var náð.
Nú er Simon Grayson við stjórn-
völinn og félagið er orðið skuldlaust.
Ró er komin yfir Elland Road. Liðið
er byggt á skemmtilegum fótbolta-
mönnum sem leggja sig alla fram
fyrir félagið og fyrir Grayson. Það
er efst í C-deildinni og framtíðin er
Leeds-ara. Sannið þið til.
STÓRVELDI
NUNEATON 1 – MIDDLESBR. 1
Frá tíma Steves McClaren með Boro
sem komst áfram með því að vinna
síðari leikinn 5-2.
MAN. UNITED 0 – EXETER 0
Manchester lenti í vandræðum í
þessum leik árið 2005 en vann síðari
leikinn 2-0.
SUTTON 2 – COVENTRY 1
Tony Rains og Matthew Hanlan eru
ekki frægustu menn í heimi en þeir
tryggðu Sutton sigur á Coventry 1987.
WREXHAM 2 – ARSENAL 1
Árið 1992 komst Arsenal yfir með
marki Alans Smith og leikurinn nánast
búinn enda Wrexham í fjórðu deild-
inni. En hinn 37 ára Mickey Thomas
og Steve Watkin tryggðu Wrexham
sögulegan sigur.
HEREFORD 2 – NEWCASTLE 1
Veðrið lék stóran þátt í þessum leik
árið 1972 þar sem Newcastle komst
yfir en Ronnie Radford og Ricky
George skoruðu undir lokin og
tryggðu Hereford magnaðan sigur.
LIVERPOOL 0 – WIMBLEDON 1
Úrslitaleikurinn 1988. Ógleymanlegur.
SHREWSBURY 2 – EVERTON 1
Nigel Jemson skaust upp á stjörnu-
himininn árið 2003 með tveimur
mörkum. Þetta var eini hápunktur
Shrewsbury þetta árið því liðið féll í
utandeildina skömmu síðar.
n Deildartitlar: 1968–‘69, 1973–‘74
og 1991–‘92.
n Enski bikarinn: 1972
n Deildarbikarinn: 1968
n Góðgerðarskjöldurinn: 1969 og
1992
n UEFA-bikarinn: 1968 og 1971
Titlar Leeds United
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
MINNIR Á SIG
Nokkur óvænt úrslit í FA-bikarnum
Í þá gömlu góðu Andryi Shevchenko í leik með AC Milan gegn Leeds árið
2000 þegar Leeds var stórveldi í Evrópu.
Nú samherjar Rio Ferdinand var keyptur dýrum dómum til Leeds. Hér í
baráttunni við Michael Owen, núverandi samherja sinn.
Leeds United tróð upp í aðalkeppinaut sinn, Manchester United, með frábærri
spilamennsku í enska bikarnum. Liðið vann einn magnaðasta sigur í sögu FA-bik-
arsins og minntu Leeds-arar knattspyrnuheiminn á að þeir eru enn til.
Hetjan Jermaine Beckford
er kominn í dýrðlingatölu hjá
stuðningsmönnum Leeds.