Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 24
24 | Viðtal 13.–15. maí 2011 Helgarblað Þegar blaðamann ber að garði heima hjá Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar, koma þær Jasmín 7 ára og Mia 2 ára til dyra. Þær eru systur Ellu Dís­ ar og greinilega mjög fjörugar. Þær skoppa inn í stofu og vísa blaða­ manni leiðina. Í stofunni eru þær mæðgur, Ragna og Ella Dís, ásamt aðstoðarstúlku sem er að læra að losa loft úr maganum á Ellu Dís. Það er gert með því að taka í sundur mjóa slöngu sem liggur inn í magann, og draga loftið út með stórri sprautu. Blaðamaður tekur strax eftir því að Ella Dís iðar til og frá í hjólastólnum sínum og Ragna sýnir stolt hvernig hún getur líka hreyft hægri höndina töluvert og haldið í henni spennu, en það er ekki eins mikill kraftur í þeirri vinstri. Geta talað saman með augunum „Hún er rosadugleg í fótunum líka og mjöðmunum en hún er auðvit­ að mjög tekin og rýrnuð. Mér finnst samt bara ótrúlegt að hún geti hald­ ið spennu, hún gat það aldrei fyrir meðferðirnar,” segir Ragna og á þar við tvær stofnfrumumeðferðir sem Ella Dís hefur farið í. Hún segir með­ ferðirnar hafa gert kraftaverk. Ragna heldur áfram að lýsa framförum Ellu Dísar fyrir blaðamanni. „Fyrir með­ ferðirnar náðu augun á henni aldrei fókus, hún gat til dæmis ekki horft á dvd, en nú nær hún að fókusera.“ Ragna segir að hún geti líka verið mun rólegri núna þegar hún skiptir um öndunargrímu á Ellu Dís. Hún geti verið lengur án grímunnar og bláni ekki strax líkt og hún gerði áður. Þá þarf Ella Dís ekki lengur á hósta­ vél að halda því hún getur núna los­ að sig við allt slím sjálf. Það sést greinilega á samskiptum Rögnu og dóttur hennar að þær eru mjög nánar. „Ég þekki hana rosavel. Við erum mjög tengdar og getum nærri því talað saman með augun­ um. Ég sé hvert hún horfir og hvernig hún lætur, segir Ragna. „Ég skil hana mjög vel en þarf auðvitað stundum að nota útilokunaraðferðina,“ bætir hún við. „Búnir að ákveða að þeir viti ekki hvað þetta er“ Ella Dís fæddist heilbrigð þann 2. janúar 2006 en þegar hún var eins og hálfs árs fór að bera á jafnvægis­ leysi og lömun í höndum sem ágerð­ ist hratt og að lokum hætti hún að geta andað sjálf. Hún var upphaf­ lega greind með hrörnunarsjúk­ dóminn SMA, en fljótlega eftir grein­ inguna var staðfest að ekki væri um þann sjúkdóm að ræða. Hún hefur því verið skráð með óþekktan hrörn­ unarsjúkdóm síðastliðin fjögur ár. Rögnu hefur allan þann tíma fundist að læknarnir eigi erfitt með að viður­ kenna þau mistök að hafa greint Ellu rangt í upphafi. „Þeir eru bara búnir að ákveða að þeir viti ekki hvað þetta er og þeir vilja ekki vita hvað þetta er, eða ég held það allavegana. Þeir gáfust upp á rannsóknum, þeir gáf­ ust upp á leitinni og þeir gáfust upp á Ellu. Þannig er viðhorf þeirra.“ Íslenski læknirinn ekki á leið í herferð Ragna vakti hörð viðbrögð um dag­ inn þegar hún gagnrýndi bólusetn­ ingar opinberlega. Hún er sannfærð um að veikindi Ellu Dísar megi rekja til bólusetninga þegar hún var unga­ barn og að hún þjáist af sjálfsofnæmi vegna bólusetningaróþols, en hún varð alltaf mjög veik í kjölfar þeirra bólusetninga sem hún fékk. Að sögn Rögnu fór að bera á alvarlegum löm­ unareinkennum hjá Ellu Dís eftir að hún fékk MMR­bóluefni við rauðum hundum, mislingum og hettusótt. Hún segir íslenskan heila­ og taugalækni, sem skoðað hefur mál Ellu Dísar, hafa staðfest við sig að lík­ lega væri um sjálfsofnæmi að ræða af völdum bólusetningaróþols. Þá segir hún bæði ísraelskan og þýskan lækni hafa staðfest það sama. Hún vill þó ekki gefa upp nafnið á íslenska lækn­ inum að svo stöddu enda hafi hann ekki ætlað sér að fara í herferð gegn bólusetningum. Hún er hrædd um að hann verði hrópaður niður ef hann opinberar skoðun sína. Fyrrverandi læknar valda óþægindum Ragna leitaði sjálf til umrædds lækn­ is. Hún vissi að hann hefði unnið með sjálfsofnæmissjúklinga á spítöl­ um erlendis og að hann væri mann­ legur. Henni fannst það mikilvægur þáttur. „Ég sagði honum frá minni hugmynd um sjúkdóminn og hann sagðist hafði heyrt um að fólk fengi lömunarsjúkdóma eftir bólusetn­ ingar og hann vissi að það væri efni í bóluefni sem hefði áhrif á ónæmis­ kerfið. Hann tók sér síðan sinn tíma, hringdi í fyrrverandi lækna henn­ ar Ellu og hringdi til Englands í þá lækna sem höfðu hitt hana og ég gaf honum upplýsingar og sjúkragögn og hann tók sér alveg sex til átta vik­ ur. Síðan kallaði hann mig inn á fund og sagði mér að hann héldi að þetta væri í taugaslíðrinu, einhvers konar sjálfsofnæmissjúkdómur sem hann gat þó ekki sett nafn á.“ Ragna segir lækninn vilja reyna að aðstoða Ellu Dís við að fá fjárstuðning frá ríkinu til að hún komist í fleiri stofnfrumu­ meðferðir. Hann telji þó litlar líkur á því vegna þess hve umdeildar með­ n Ragna Erlendsdóttir segist hafa fundið frið í sálinni n Mikill léttir að íslenskur læknir telji að Ella Dís þjáist af sjálfsofnæmi vegna bólu- setningaróþols n Er alfarið á móti bólusetn- ingum n Var kærð til Barnaverndarnefndar n Viðurkennir að hafa farið yfir strikið Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Ég nenni ekki að rífast lengur“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.