Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 13.–15. maí 2011 Helgarblað Grásleppudeilur halda áfram á Norðurfirði: „Gaf honum færi á að taka trossurnar“ „Þessir menn hafa augljóslega aldrei lagt net áður og höfðu lagt tross- urnar sínar þvers og kruss yfir net- in mín og er þá ekki margt annað í stöðunni þegar þær koma upp hjá manni, heldur er oftast nær nauð- syn að skera á báðar trossurnar, jafnt manns eigin og hins,“ segir sjómað- urinn Jón Eiríksson um frétt í síðasta helgarblaði DV um að sjómaðurinn Ægir Thorarensen hefði uppgötvað að búið var að vinna skemmdarverk á trossum sem hann hafði lagt á grá- sleppuveiðum. Jón er allt annað en sáttur við frásögn af atburðum. Ægir var á grásleppuveiðum út af Norður- firði á dögunum og þegar hann kom til að vitja netanna voru þau hvergi sjáanleg. Í ljós kom að búið var að stinga á belgina og skera á trossurn- ar báðum megin svo hann þurfti að slæða netin upp. Þetta atvik olli um- tali í þessu litla samfélagi á Ströndum og gagnrýndi heimildamaður DV að sjómenn gætu ekki einu sinni treyst á að aðrir væru ekki að skemma fyr- ir þeim. Sjálfur gerði Ægir lítið úr at- vikinu í samtali við DV. Sagðist vita hver hefði verið þarna að verki og uppnefndi hann „jólasvein“. Hann sagðist þó ekki nenna að elta ólar við þann sem var að verki. Jón sjómaður segir ekki rétt sem fram kom að Ægir hefði verið á 5 tonna bát heldur á 25 tonna bát sem skorið hefði verið aftan úr til að kom- ast undir 15 tonna markið sem leyfi- legt er á grásleppuveiðum. Hann segist hafa reynt að vara Ægi við. „Ég gaf honum færi á að taka trossurnar ofan af mínum,“ segir hann. Ægir sagði í samtali við DV að þar sem hann væri frá Ísafirði en réri út frá Norðurfirði teldu heimamenn sig eiga miðin. Jón er hins vegar ósátt- ur við yfirgang annarra í þessu máli. „Því má einnig bæta við að áttræður maður á Norðurfirði á pínulítilli trillu getur ekki lengur lagt netin þar sem hann er vanur rétt fyrir utan bryggj- urnar á Norðurfirði vegna þess að umræddur Ægir á sínum stóra bát er búinn að leggja þar og þekja allt það svæði. Það að hann sé að spila sem fórnarlamb í þessu máli finnst mér vægast sagt furðulegt.“ valgeir@dv.is Grásleppa Veiðar á grásleppu urðu tilefni til deilna þar sem skorið var á trossur. Mynd af Vef LanGanesbyGGðar Arion banki tapaði máli gegn eignar- haldsfélaginu Hbyggð ehf. í Héraðs- dómi Reykjavíkur á miðvikudag en bankinn hafði lagt fram gjaldþrota- beiðni til héraðsdóms vegna geng- istryggðra lána sem félagið var með hjá bankanum. Eigandi Hbyggðar heitir Grettir Rúnarsson. Í úrskurði héraðsdóms var bank- inn gagnrýndur fyrir að ganga hart fram gegn Hbyggð en lánin voru í úrskurðinum einnig talin ólögmæt gengistryggð lán. „Sóknaraðili skor- aði á varnaraðila að lýsa sig fær- an um að greiða nærri tvöfalt hærri skuld en hann getur með réttu kraf- ið hann um,“ segir meðal annars í dómnum. Lækkuðu veðmat um 200 milljónir Skuldir Hbyggðar við bankann voru metnar, samkvæmt bankanum, á um 276,6 milljónir króna en lánin tengdi bankinn við gengi svissneska frankans og japanska jensins. Sam- kvæmt útreikningi Hbyggðar, þar sem tekið var mið af lægstu vöxtum Seðlabanka Íslands af óverðtryggð- um skuldum, nam skuldin við Arion banka ekki nema um 141,7 milljón- um króna. Bankinn nefndi þá ekki heldur nokkur veð sem hann hafði fyrir láninu auk þess að taka ekki til- lit til 21,3 milljóna króna greiðslu inn á lánin. Bankinn taldi einungis upp þrjár eignir en eignir félagsins sem bankinn er með til tryggingar fyrir umræddum lánum eru alls sjö. Eitt af veðunum sem Arion banki hafði fyrir lánunum var landið Svín- hagi sem bankinn mat upphaflega á 240 milljónir króna. Í gjaldþrota- beiðninni kom fram að Svínhagi væri ekki metinn á nema um 40 milljónir króna í dag. Það þýðir að bankinn hefur upp á sitt einsdæmi lækkað mat sitt á landinu um sem nemur 200 milljónum króna. reyndu að komast fram hjá vaxtalögum Dómurinn tók eindregna afstöðu með Hbyggð í málinu og sagði að Arion banki væri að reyna að kom- ast fram hjá vaxtalögum. „Þegar skil- málar bréfsins eru skoðaðir blas- ir við að hér er í raun um að ræða skuld í íslenskum krónum sem reynt er að færa í búning skuldar í erlendri mynt, til að komast fram hjá banni vaxtalaga við verðtryggingu miðað við gengi erlendra gjaldmiðla,“ seg- ir í úrskurðinum. Dómurinn kemst að sömu niðurstöðu í öllum liðum gjaldþrotabeiðninnar. Þar sem dómurinn taldi forsend- ur gjaldþrotabeiðninnar brostnar vegna ólögmætis gengistrygging- ar lánanna tók dómurinn hvorki af- stöðu til endurmats á veði bankans í Svínhaga né annarra atriða gjald- þrotabeiðninnar. segja bankann hafa komið í veg fyrir sölu eigna Í svarbréfi lögmanns Hbyggðar, Sögu Jónsdóttur, vegna greiðsluáskorunar Arion banka er því velt upp af hverju bankinn hafi ekki viljað selja eignir félagsins og þannig komið í veg fyrir að félagið gæti greitt af lánum sínum hjá bankanum. „Að sögn Kristbjörns Sigurðssonar, löggilts fasteignasala hjá Fasteignasölunni Miðbær hefur hann undanfarin tvö ár sent bank- anum nokkur kauptilboð vegna spilda í eigu H Byggðar ehf. en bank- inn hefur annað hvort ekki svarað eða neitað að aflétta veðum svo söl- ur geti farið fram,“ segir í bréfinu til Arion banka. „Ljóst er því að með því að heimila ekki fyrrgreindar söl- ur, kom bankinn í veg fyrir að félagið fengi fjármuni í reksturinn og gæti með því greitt afborganir af lánum sínum til bankans.“ Þessari athuga- semd svaraði bankinn ekki. Málinu líklega áfrýjað Þrátt fyrir að Arion banki hafi tapað málinu fyrir héraðsdómi er ekki úti- lokað að bankinn vinni málið á end- anum. Bankinn hefur nú nokkurra vikna frest til þess að áfrýja mál- inu til Hæstaréttar sem gæti dæmt í málinu Arion í hag. Saga segir bank- ann að öllum líkindum áfrýja mál- inu. „Ég geri nú fastlega ráð fyrir því,“ segir hún. Hún bendir á að Ar- ion banki hafi áfrýjað svipuðu máli áður. n arion banki vildi fá 280 milljónir en átti rétt á 120 milljónum n Héraðsdómur segir bankann hafa reynt að færa lánið í „búning skuldar í erlendri mynt“ n bankinn vildi ekki leyfa félaginu að selja eignir til að geta borgað skuldir sínar við bankann Reyndi að rukka tvöfalt fyrir skuld Leiðrétting DV greindi frá því á miðvikudag að Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hefði lent í orða- skaki og verið „ónáðaður“ af ölv- uðum gest á lokahófi blakmóts öldunga sem haldið var í Vest- mannaeyjum síðastliðið laugar- dagskvöld. Hið rétta er að atvikið átti sér stað á föstudagskvöld í Höllinni, veislu- og ráðstefnu- húsi, sama húsi og lokahófið var haldið í kvöldið eftir. Eins og DV greindi frá lét Steingrímur þessa uppákomu ekkert á sig fá og skemmti sér konunglega, sam- kvæmt heimildum DV. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Sóknaraðili skoraði á varnar- aðila að lýsa sig færan um að greiða nærri tvöfalt hærri skuld en hann getur með réttu krafið hann um. Gerðu nýtt veðmat Arion banki lækkaði veðmat á stærstu eign Hbyggðar um 200 milljónir. Mynd braGi Þór Jósefsson banna ekki neftóbak Ekki stendur til að banna nef- tóbak, að sögn Þuríðar Back- man, þingmanns Vinstri grænna. „Þarna erum við að tala um skro- og munntóbak og á meðan að neftóbak er markaðssett sem nef- tóbak þá á þetta ekki við um það,“ segir Þuríður í samtali við Morg- unblaðið. Í umsögn ÁTVR um nýtt frum- varp um tóbaksvarnir segir að verði frumvarpið samþykkt óbreytt muni fyrirtækið hætta framleiðslu og sölu á íslensku neftóbaki. Það er eina löglega reyklausa tóbakið sem selt er á Ís- landi en það hefur verið framleitt í marga áratugi. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að- stoðarforstjóri ÁTVR, sagði í sam- tali við blaðið að hún teldi orða- lag frumvarpsins vera of óskýrt en talað er um í frumvarpinu að banna eigi bragð- og lyktarbland- að reyklaust tóbak. Telur hún að skilgreina þurfi þetta frekar. Áttu 300 milljónir? domino‘s til sölu Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans mun annast sölu á öllu hlutafé í pítsustaðnum Domino‘s sem er í dag í eigu Hamla ehf., dótturfélags Landsbankans. Samkvæmt til- kynningu frá bankanum er sölu- ferlið opið öllum áhugasömum fjárfestum sem sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 300 millj- ónir króna og hafa þekkingu og reynslu til að takast á við fjárfest- ingu af þessari stærð og í þessari atvinnugrein. Stefnt er að því að ljúka sölunni í júlí. Áhugasamir geta nálgast upplýsingar á heima- síðu bankans. Eins og DV greindi frá í nóvem- ber skildi Magnús Kristinsson, fjár- festir og útgerðarmaður, eftir nærri tveggja milljarða króna skuldir í félaginu þegar Landsbankinn tók það yfir. Skuldirnar voru hins vegar tilkomnar áður en Magnús keypti pítsustaðinn árið 2007. Hann end- urfjármagnaði einungis lánin eftir að hann keypti staðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.