Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 38
38 Eurovísir13.–15. maí 2011
G
ísli Marteinn hefur kynnst flestu sem viðkemur Euro-
vision en hann var kynnir keppninnar í sex ár. Hann
segist ekki fylgjast með keppninni af sama kappi og
áður enda sé það tvennt ólíkt að starfa sem kynnir fyrir
keppnina eða vera heima í stofu.
„Ég kaus ekkert lag í undanúrslitunum á þriðjudaginn en
stelpurnar mínar kusu Noreg, Finnland og Sviss. Ætli það megi
ekki segja að öll fjölskyldan hafi verið sammála um að þessi lög
ættu atkvæðin skilið,“ segir Gísli sem ekki hefur planað stórt
partí á laugardaginn. „Það kíkir eflaust eitthvað fólk hérna við
en við höfum ekki gert neinar áætlanir.“
Ekki taka þessu of alvarlega
Hann segist hafa gaman af keppninni en að það sé mikilvægt
að taka hana alls ekki of alvarlega. Fyrst og fremst sé um fjöl-
skylduskemmtun að ræða sem allir ættu að geta haft gaman af.
Á tímabili föttuðu Íslendingar ekki að maður á að taka þessu
passlega hátíðlega. Það á að gera smá grín að keppninni til að
hafa gaman af henni. Við gerðum of mikið mál úr þessu. Urð-
um alveg brjáluð ef við komumst ekki áfram og svo alveg fárán-
lega glöð ef vel gekk.“
Fúlasta alvara
En það eru ekki bara Íslendingar sem hafa tekið þessa söngva-
keppni í fúlustu alvöru. Austur-Evrópubúar með Hvít-Rússa í far-
arbroddi líta á Eurovision sem möguleika til að slá í gegn í Evrópu
og kosta öllu til, bjóða jafnvel peninga til að koma sínu fólki að.
Gísli lenti eitt sinn í því að vera boðin vegleg upphæð fyrir
að gera keppanda frá Hvíta-Rússlandi góð skil.
Í kjölfar þess að Ruslana fór í tónleikaferð um Evrópu til
að hita upp fyrir söngvakeppnina vildu fleiri keppendur frá
Austur-Evrópu kynna sig með sama hætti. Hingað til lands kom
keppandi frá Hvíta-Rússlandi og með henni kom mjög frægur
rússneskur poppari sem átti að vera eins konar umboðsmað-
ur söngkonunnar. Daman hélt tónleika á Astró en fyrir þá fór
hópur fólks sem tengdist keppninni saman út að borða. „Mig
minnir að Selma hafi verið með ásamt fleirum. Eftir matinn
göngum við í rólegheitunum yfir Austurvöll og þar á
miðjum Austurvelli stoppar þessi maður mig og segir
niðurlútur: „Ég var að heyra að þú værir kynnir
í Eurovision?“ Ég játti því og þá segir hann
grafalvarlegur: „Ókei, við höfum þetta bara
svona. Þú gefur mér upp reikningsnúmer
og ef Hvíta-Rússland fær 12 stig frá Íslandi
þá koma 10.000 dollarar inn á reikning-
inn.“ Ég ætlaði raunverulega ekki að trúa
þessu. Þarna stóð ég, einhver þulur hjá
RÚV, í blíðunni á Austurvelli og það er
verið að múta mér, út af Eurovision!“
segir Gísli og skellir upp úr. Óþarft er að
taka fram að Gísli Marteinn afþakkaði
boðið og Íslendingar gáfu Hvíta-Rúss-
landi ekki eitt einasta atkvæði.
boðnar mútur
á austurvelli
n Gísli marteinn baldursson lýsti eurovision frá 1999 til 2006
rósa Guðbjartsdóttir er dugleg að prófa sig áfram með hamborg-
aragerð en hún segir fátt
vinsælla á sínu heimili en
góðan, heimagerðan ham-
borgara.
„Hamborgari getur verið
algjört lostæti og holl og góð
máltíð, hafi verið nostr-
að aðeins við hráefnið. Þá
skiptir sköpum að hafa valið
sjálfur kjöt með hæfilegu
fituinnihaldi og svo fram-
vegis. Enda eru það ekki
einungis svokallaðir skyndi-
bitastaðir sem bjóða upp á
hamborgara heldur leggja
margir aðrir veitingastaðir
metnað sinn í að bjóða upp
á girnilegar og ólíkar ham-
borgaramáltíðir með salati
og grænmeti,“ segir Rósa.
„Eins og nafnið gefur til
kynna er pepperóníborgar-
inn undir ítölskum áhrifum
hvað bragðið varðar, en auk
kryddjurtanna blanda ég
pepperóníbitum og pítsu-
sósu við hakkið. Þetta kemur
mjög vel út og er skemmtileg
tilbreyting,“ segir Rósa sem
ætlar auðvitað að vera með
Eurovision-partí á laugar-
daginn og skella einhverju
á grillið.
„Fyrst Ísland komst
áfram þá er það auðvitað
ekki spurning.”
ertu með eurovision-
partíið á hreinu?
n svaðalega djúsí hamborgarar af grillinu hjá rósu Guðbjartsdóttur
Dómstóll götunnar
Girnilegur grillmatur Rósa heldur partí og grillar þessa girnilegu borgara.
Pepperóní-
borgarar
Uppskrift fyrir fjóra hamborgara:
n 500 g nautahakk
n 50-60 g pepperóní, saxað smátt
n 1 dl pítsusósa
n Handfylli ferskar kryddjurtir, svo
sem basilíka og/eða steinselja, skorið
smátt
(notið annars 1-2 msk þurrkaðar
kryddjurtir ef þær fersku eru ekki við
höndina)
n ½ dl graslaukur eða skalotlaukur,
smátt saxaður
n Salt, grófmalaður pipar, pítsukrydd
eða ítölsk kryddblanda að smekk
n Ferskur mozzarellaostur, sneiddur
Blandið öllu mjög vel saman og mótið
þykka og fína hamborgara. Grillið í
tvær til þrjár mínútur á hvorri hlið,
fer eftir stærð og þykkt borgaranna.
Setjið ostsneið ofan á borgarana í lok
eldunartímans og látið ostinn byrja
að bráðna. Hitið hamborgarabrauðin,
smyrjið þau með pítsusósu, setjið
grænt salat og síðan hamborgarann.
Mjög gott er að setja rauðlaukssneið-
ar ofan á og skreyta með basilíku.
Grillaðir, stökkir kartöflubátar
Sjóðið kartöflur í átta til tíu mínútur
(eftir stærð). Látið mesta hitann
rjúka úr þeim og skerið í báta. Setjið
í eldfast mót eða ofnskúffu sem
þakin hefur verið með bökunarpappír.
Dreypið ólífuolíu yfir kartöflubátana
og kryddið með grófu salti og nýmöl-
uðum pipar. Einnig er gott að nota
hvítlaukskrydd. Bakið við 225 gráður í
um 25 mínútur eða þar til bátarnir eru
orðnir fallega ljósbrúnir og stökkir.
Hver vinnur
eurovision?
blaðamaður og ljós-myndari tóku púls-inn á gangandi veg-
farendum í miðborginni
og spurðu hverjir teldust
líklegir til að vinna keppn-
ina í ár. Ekki voru allir
með á nótunum og einn
var með óþol fyrir keppn-
inni.
„Vægt til orða tekið er ég með
Eurovision-óþol.“
Bjarni Sveinbjörnsson
„Verður það blökkumaður?“
Maggi Lego
„Sviss.“
Ingibjörg Pétursdóttir
„Þýskaland af því að ég fíla
metnaðinn að vilja vinna tvö
ár í röð.“
Helga Óskarsdóttir
„Ég veðja á Georgíu og Sviss.“
Telma Hafþórsdóttir
Reynt að múta Gísla
Marteini Óþarft er
að taka fram að hann
afþakkaði boðið.