Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 2
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 20082 Fréttir
„Mér finnst alltaf jafnerfitt að koma
hingað og þiggja mat,“ sagði 57 ára
kona eftir að hún fékk mat og aðr-
ar nauðsynjavörur hjá Fjölskyldu-
hjálp Íslands í gær. Hún hefur í þrjú
ár þurft að leita sér aðstoðar til að
komast af.
Yfir þrjú hundrað manns leituðu
til Fjölskylduhjálparinnar í gær til
að fá mat og aðrar nauðsynjavörur.
Það er svipaður fjöldi og aðra mið-
vikudaga. Andrúmsloftið var þrung-
ið spennu og harmi. Fyrir utan var
rigning og kuldi sem hefur vart
bætt á bágt sálarlíf margra sem stig-
ið höfðu þau erfiðu skref að mæta
í hús Fjölskylduhjálpar til að biðja
um hjálp. Þrátt fyrir góðan vilja tókst
ekki að veita öllum aðstoð sem leit-
uðu eftir henni. Sumir þurftu að
snúa tómhentir frá.
Átök í biðröðinni
Vegna þess hversu margir komu
og báðu um aðstoð þurftu öryggis-
verðir að sjá til þess að fólk træðist
ekki undir. Skömmu áður en blaða-
mann og ljósmyndara bar að garði
þurfti að kalla til lögreglu. Þá hafði
ein kona ráðist á aðra á meðan þær
biðu í röðinni eftir að fá aðstoð. Þeir
starfsmenn Fjölskylduhjálpar sem
rætt var við vissu ekki hvers vegna
konan hafði gert þetta. Öryggisvörð-
um tókst að stía konunum í sund-
ur og sú sem réðst á hina var flutt á
brott í lögreglubíl. Ekki fengust upp-
lýsingar hjá lögreglu um hvernig
mál konunnar var leyst eftir að hún
hvarf á braut.
„Ég á ekkert eftir“
„Ég sé fram á að ég þufi að leita
hingað lengi, ég er með 120 þúsund
krónur á mánuði í örorkubætur. Ég
varð að kaupa mér bíl og lánin hafa
hækkað úr fjórtan þúsund í þrjátíu
tvö þúsund á stuttum tíma,“ sagði
konan sem rætt var við í upphafi
fréttarinnar. Þegar hún var búin að
borga af húsnæði og bíl sínum, auk
annars fastakostnaðar var fé henn-
ar á þrotum. „Ég á ekkert eftir, ég gat
ekki einu sinni borgað símreikning-
inn um síðustu mánaðamót. Ef ég
borga alla reikninga og allan kostn-
að verð ég að sleppa því að borða.“
Hún segir að það hafi verið afar erf-
itt að leita sér aðstoðar með þessum
hætti. „Það er mikil niðurlæging að
þurfa að koma og fá mat hérna. Ég
veit um fólk sem hefur einfaldlega
ekki þorað að koma hingað, en núna
er ástandið þannig að það verður
bara að koma. Það tók mig tvö ár að
mana mig upp í að koma hingað.“
Atvinnulaus með veikt barn
Tuttugu og fimm ára kona með ung-
an langveikan dreng hefur komið í
Fjölskylduhjálpina í nokkra mánuði.
„Mér var sagt upp nýlega og er ekki
með neinar tekjur, ég á ekki einu
sinni nóg til að dekka leiguna og er
með strákinn minn á leikskóla. Ég á
kannski tíu þúsund krónur eftir þeg-
ar ég er búin að borga leiguna, ef ég
er heppin.“ segir stúlkan sem brotn-
aði niður í samtali við blaðamann.
„Ég kvíði jólunum svo mikið, ég á
ekki peninga til að kaupa jólagjafir.
Framtíðin er ekki björt hjá mér, en
það er gott að vita að það er einhver
sem vill hjálpa mér,“ segir stúlkan að
lokum.
Þyrfti annars að brjótast inn
Ungur maður sem býr í ónýtu húsi
við mjög lélegar aðstæður segir að
án Fjölskylduhjálparinnar væri útlit-
ið svart. „Ef ég gæti ekki komið hing-
að og fengið mat þyrfti maður að
brjótast inn og ræna mat, og ég hef
gert það bara til að bjarga mér. Mér
finnst alltaf jafnerfitt að koma hing-
að og láta sjá mig í kringum aðra, ég
þarf hreinlega að mana mig upp í
það,“ segir ungi maðurinn og bendir
á að hann eigi ekki annan kost en að
leita aðstoðar eftir mat. Hann segist
taka eftir því að það séu miklu fleiri
sem þiggi hjálp núna en fyrir ári og
margir hverjir séu að koma í fyrsta
skiptið.
Óvissa um næstu úthlutun
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður
Fjölskylduhjálparinnar, segir að eft-
irspurnin hafi aldrei verið meiri en
í gær. „Það komu yfir þrjú hundruð
fjölskyldur til okkar í dag (gær) en
Boði logAson
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
maturinn dugði
ekki handa öllum
„Ég kvíði jólunum svo
mikið, ég á ekki pen-
inga til að kaupa jóla-
gjafir.“
Rúmlega þrjú hundruð manns báðu um aðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands í gær en
birgðirnar kláruðust áður en hægt var að hjálpa öllum. Ein kona réðst á aðra þar sem
þær biðu í röðinni og þurfti að kalla á lögreglu til að koma henni á brott. Ungur maður
sem leitaði sér hjálpar lofaði aðstoðina sem hann fær þarna og segir að ella þyrfti hann
hreinlega að stela sér til matar.
Margir fá aðstoð Forsvarsmenn
Fjölskylduhjálpar hafa safnað miklu til að
styrkja fólk, það dugar þó ekki alltaf til.