Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Page 4
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 20084 Fréttir
Jón BJarki magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Lilja Helgadóttir er 73 ára ellilífeyr-
isþegi sem keypti hluti í Símanum
þegar ríkið hóf að selja bréf í fé-
laginu. Henni finnst því næst sem
Bakkavararbræðurnir Ágúst Guð-
mundsson og Lýð Guðmundsson
hafa stolið bréfum hennar þegar
þeir yfirtóku félagið og tilkynntu
hluthöfum eins og henni að bréf-
unum í Símanum hefði verið skipt
út fyrir hluti í Exista. Lilja bjó lengi
úti í Noregi og hún segir við vini
sína þar að íslensku þjóðinni líði
eins og hún hafi verið rænd.
Bréf í símanum
urðu að skiptum
Lilja keypti hlutabréf í Símanum í
aðdraganda einkavæðingar fyrir-
tækisins og almenningi var gefinn
kostur á að kaupa. Þegar Bakka-
vararbræður keyptu svo Símann
tóku þeir félagið af markaði. Lilju
var í byrjun árs 2007 tilkynnt að
samkvæmt yfirtökutilboði gæti
hún fengið bréf í Exista fyrir bréf
sín í Símanum.
„Í mars í vetur fékk ég svo bréf
þar sem þeir buðu mér að kaupa
bréfin mín í Skiptum með því að
setja það inn í Exista. Þeir léku
sér að hluthöfum,“ segir Lilja.
Hún segir stjórnendurna á þess-
um tíma hafa vitað hvernig myndi
fara með Exista og þess vegna hafi
henni verið gefin bréf sem nokkr-
um mánuðum seinna voru alveg
verðlaus.
gömlu Bakkabræður komu
með sólina inn
„Ég ætlaði bara að eiga bréfin í
Símanum og þess vegna keypti ég
þar. Þeir settu þetta svo bara yfir í
Skipti og án þess að ég hafi valið
það var ég allt í einu orðin eigandi
í Skiptum,“ segir Lilja sem aldrei
hefur viljað trúa neinu misjöfnu
um nokkurn mann, en veit nú að
eigin sögn betur.
„Mér finnst að Bakkabræður
hafi sett blett á hina gömlu góðu
Bakkabræður sem báru sólina inn
í húfunum sínum. Þessir komu
með allt annað í sínum fórum til
þjóðarinnar,“ segir Lilja og tekur
fram að hún hafi verið alin upp
þannig að fólk hafi þurft að vera
heiðarlegt hvert við annað.
Þjófnaður
„Ég hefði alveg getað notað þessa
peninga fyrir afkomendur mína,
eða brugðið mér til útlanda,“ seg-
ir Lilja sem tekur fram að hún hafi
ekki átt háar upphæðir í bréfum
og margir hafi eflaust tapað mun
hærri fjárhæðum. Henni þykir það
þó litlu máli skipta hversu háar
fjárhæðirnar eru, það vilji enginn
láta stela af sér peningum.
„Ég er bara heimsk kerling
sem keypti þarna bréf. En ég kalla
þetta bara þjófnað, þeir vissu al-
veg hvað þeir voru að gera með
öllum þessum krosseignatengsl-
um. Stofnandi félög um hitt og
þetta og látandi þau heita ýmsum
nöfnum,“ segir Lilja sem að eigin
sögn hefur lært það að innan fjár-
málageirans sé engum treystandi
nema manni sjálfum. Ekki náðist í
talsmenn Exista við vinnslu þess-
arar fréttar.
„Mér finnst að Bakka-
bræður hafi sett
blett á hina gömlu
góðu Bakkabræður
sem báru sólina inn í
húfunum sínum. Þessir
komu með allt annað
í sínum fórum til þjóð-
arinnar.“
ILLA SVIKIN AF
BAKKABRÆÐRUM
Lilja Helgadóttir er 73 ára ellilífeyrisþegi sem keypti hlutabréf í Símanum þegar
hann var einkavæddur. Þá hvarflaði ekki að henni að hlutabréfum hennar yrði síðar
skipt út fyrir bréf í Exista sem yrðu lítils sem einskis virði. Það gerðist þó eftir að
Bakkavararbræður keyptu Símann. Henni finnst eins og þjóðin hafi verið rænd í
bankahruninu og segir ljóst að ansi mörgum viðskiptaforkólfum sé ekki treystandi.
Þjóðinni var nauðgað Lilja Helgadóttir
segist loks hafa lært það að engum sé
treystandi. Hún segir að illa hafi verið
komið fram við þjóðina á seinustu árum.
mynd róBert
Sýknaður
af kynferðisbroti
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði í gær þrítugan karlmann af
ákæru um kynferðisbrot gegn
fjögurra ára stúlku. Maðurinn var
ákærður fyrir að káfa á kynfær-
um stúlkunar í október á síðasta
ári. Maðurinn sagði fyrir dómi
að hann hefði verið gestkomandi
í íbúðinni þegar meint atvik átti
sér stað. Hann hafi heyrt barns-
grát og farið inn í herbergi og
lagað til sokkabuxur stúlkunnar
sem lá í rúmi sínu. Stúlkan sagði
daginn eftir að ókunnugur mað-
ur hefði komið inn í herbergið
og káfað á kynfærum sínum. Var
það mat dómara að ekki væri
hægt að leggja frásögn stúlkunn-
ar til grundvallar refsingu.
Ákærður fyrir
brot gegn syni
32 ára gamall karlmaður hefur
verið ákærður fyrir kynferðis-
brot gegn syni sínum. Meint
atvik átti sér stað árið 2003
en maðurinn er ákærður fyrir
að hafa farið höndum um og
sogið kynfæri sonar síns. Son-
ur mannsins var sjö ára þegar
hið meinta kynferðisbrot átti
sér stað. Aðalmeðferð í máli
mannsins fer fram í Héraðs-
dómi Reykjaness í dag.
Davíð og Árni
rúnir trausti
Fæstir bera traust til Davíðs Odds-
sonar, Árna M. Mathiesen og
Björns Bjarnasonar samkvæmt
könnun Markaðs- og miðlarann-
sókna (MMR).
78 prósent sögðust bera lítið
traust til Davíðs Oddssonar seðla-
bankastjóra og Árna M. Mathie-
sen fjármálaráðherra. 68 prósent
sögðust bera lítið traust til Björns
Bjarnasonar og 67 prósent til Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, eiganda
Baugs. Flestir, eða 64 prósent,
sögðust bera mikið traust til Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra. Þar á eftir koma Ólafur
Ragnar Grímsson forseti sem 44
prósent sögðust bera mikið traust
til og þá Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, sem 40 prósent sögðust
bera mikið traust til.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Skattrannsóknarstjóri segir aldrei mikilvægara en nú að opna fyrir bankaupplýsingar:
Látið reyna á bankalög
„Það er sjálfsagt að láta á það reyna
tafarlaust hvaða upplýsingar er hægt
að fá með þessum hætti. Aðalatrið-
ið er að salan sé sett í bið á meðan
fæst á hreint hvort umbeðin gögn
fáist,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs.
Greint var frá því í fréttum Ríkis-
útvarpsins í gær að fjármálaeftirlitið
í Lúxemborg er reiðubúið að veita ís-
lenskum yfirvöldum upplýsingar um
Kaupþing þar ef það er í samræmi
við lög og reglur.
Hins vegar er ljóst að vandamálið
við að fá upplýsingar um bankana frá
Lúxemborg er einmitt hversu strang-
ar reglur gilda þar um bankana og því
enn ekki vitað hvort þessi orð tals-
manns fjármálaeftirlitsins þar ytra
breyti nokkru fyrir stöðu íslenskra yf-
irvalda til að fá upplýsingar.
Steingrímur fagnar þó að Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
ætli að beita sér í þessa veru.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri fagnar einnig aðgerð-
um Björgvins en hann hefur gefið
út að útibú bankanna erlendis verði
ekki selt nema íslenskar rannsókn-
arnefndir fái aðgang að umbeðnum
upplýsingum þaðan.
DV fjallaði í gær um að skila-
nefndir tveggja viðskiptabankanna
hefðu sent skattayfirvöldum bréf þar
sem þær báru fyrir sig að dótturfélög
bankanna væru í öðrum löndum og
því næði lögsaga íslenskra skattayfir-
valda ekki til þeirra. Lögfróðir menn
sem DV hefur rætt við segja að ef
þetta sé raunin hafi opnast flóðgátt
fyrir spillingu hér á landi og Lúxem-
borg yrði því höfuðborg íslenskrar
spillingar.
Bryndís bendir á að
það hafi lengi valdið
skattayfirvöldum hérlend-
is vandræðum að fá ekki
bankaupplýsingar frá Lúx-
emborg. „Það er ekki hægt
að stemma af neinar upp-
lýsingar ef ekki fást gögn
um bankaviðskiptin og
þetta hamlar því starfsemi
skattayfirvalda. Nú, frekar
en nokkru sinni fyrr, er mik-
ilvægt að leita allra leiða til
að opna upplýsingaflæðið
eins og hægt er,“ segir hún.
erla@dv.is
F r j á l s t
, ó h á ð d
a g b l a ð
dv.is
besta rannsók
narblaðamenn
ska ársinsmánudagur 10. nóvember 2008 dagbl
aðið vísir 209. t
bl. – 98. árg. – v
erð kr. 295
skaut upp bónusfána
og slapp undan lögr
eglu:
F r j á l s t
, ó h á ð d
a g b l a ð Ætlar að slá
út Jordan
Kristrún Ösp stæk
kar brjóstin
og fer í víking til E
nglands
fólK
fréttir
fréttir
MEira lýðrÆði
í ÚKraínu rá
ðhErrarÆði á
íslandi
„Múgurinn
hjálpaði
Mér“
Þjóðin er á
barmi uppþots
Þúsundir mótmæ
ltu
á austurvelli
„ég hrópaði hönd
,
og þeir réttu mér
hjálparhönd“
Valdalaust alÞ
ingi í
gíslingu stJórn
arinnar
sViptir
rafMagni
fyrir JólalJós
húsbílamönnum
fórnað
fyrir jólastemning
u
lÆKKaði
laun
og fór
á lEiK
stjórnendur
í 365 á
Emirates
lÖgguhundur
bEit platÞJóf
lífVErðir
daVíðs Eru
ríKislEyndarMá
l
björn bjarnason
neitar að upplýsa
almennir borgara
r
borga brúsann
m
yn
d
ir
J
ó
h
a
n
n
Þ
rö
st
u
r
Pá
lm
a
so
n
hollEndingar
spariféð
handruKKa
reglurnar
vandamálið
Steingrímur J.
segir sjálfsagt
að láta á það
reyna hvaða
upplýsingar
fáist .dV 10. desember 2008
Baldur sagði
Björgvini ekki frá
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra sagði í umræð-
um á Alþingi í gær að Baldur
Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, hefði ekki
upplýst sig um að hann ætti hlut
í Landsbankanum áður en hann
og fleiri settust að fundarborði
með Alasdair Darling, fjármála-
ráðherra Breta, 2. september síð-
astliðinn.
Fram hefur komið að Bald-
ur seldi eignarhlut sinn í Lands-
bankanum eftir umræddan fund
en fyrir hrun bankakerfisins.
Þetta hefur sætt gagnrýni en fjár-
málaráðherra styður Baldur.