Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Page 6
Vilja Davíð aftur
á nefndarfund
Ágúst Ólafur Ágústsson, formað-
ur viðskiptanefndar Alþingis, var
hvattur til þess á Alþingi í gær
að kalla Davíð Oddsson Seðla-
bankastjóra aftur fyrir nefnd-
ina. Hvorki forsætisráðherra né
utanríkisráðherra kannast við að
Davíð hafi sagt í júní að 0 pró-
sent líkur væru á því að bank-
arnir lifðu. Davíð sagði á fundi
viðskiptanefndar að viss símtöl
væru til hljóðrituð í bankanum.
Þingmenn telja að annað-
hvort segi Davíð eða oddvitar
ríkisstjórnarinnar ósatt um þetta
atriði.
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
GLEÐILEG
JÓL
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Kynferðisbrotadeild lögreglu rannsakar ljótt nauðgunarmál í Reykjavík. Maður af
erlendu bergi brotinn, sem talinn er tengjast málinu, er flúinn af landi brott. Óvíst
hvort fleiri menn komi við sögu í málinu, segir Björgvin Björgvinsson hjá kynferð-
isbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn er á frumstigi og margt
enn óljóst. Því miður ekki einsdæmi, segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.
Þrettán ára stúlku
nauðgað á hóteli
Meira samstarf
við grænland
„Ég hef verið þeirrar skoðunar
lengi að Grænlendingar, Fær-
eyjingar, Norðmenn og Íslend-
ingar eigi að efla samstarf sitt á
norðurhluta Atlantshafsins og
vinna meira saman varðandi
ýmis málefni, veiðar, vinnslu,
markaðssetningu, nýtingu auð-
linda og annað,“ segir Guðjón
A. Kristjánsson þingmaður og
einn af flutningsmönnum tillögu
um að gert verði samkomulag
við landsstjórn Grænlands um
að löndin skiptist á útsendum
sendifulltrúum. Í tillögunni eru
Færeyjar og Grænland jafnframt
hvött til að skiptast á opinberum
sendifulltrúum.
sendifulltrúa
á grænlandi
Tillaga til þingsályktunar um
samkomulag milli Íslands og
Grænlands um skipti á útsend-
um sendifulltrúum og milli Fær-
eyja og Grænlands hefur verið
lögð fyrir Alþingi. Tillagan er
sett fram á grundvelli ályktun-
ar Vestnorræna ráðsins frá því í
ágúst. Í ályktuninni kemur þetta
meðal annars fram: „Löng hefð
er fyrir jákvæðu og víðtæku sam-
starfi vestnorrænna þjóða. Þær
eru nánustu nágrannar og hafa
öldum saman átt með sér góð
vináttu- og nágrannatengsl.“
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál veitir Seðlabankanum framlengdan frest:
Leynd ríkir um minnisblöð davíðs
Seðlabankinn hefur ekki haft tök á
því að verða við erindi blaðamanns
DV um hvort hann fær afhent afrit
af minnismiðum Davíðs Oddsson-
ar seðlabankastjóra, að því er kem-
ur fram í svari bankans til úrskurð-
arnefndar upplýsingamála, og hefur
því fengið framlengdan frest til 17.
desember.
Í októberlok óskaði DV eftir
minnismiðum Davíðs sem hann
sagði í viðtali að sönnuðu að hann
hefði varað forsvarsmenn við-
skiptabankanna við útrásinni. Þrátt
fyrir ítrekanir DV á fyrirspurninni
svaraði Seðlabankinn aldrei er-
indinu og því kærði blaðamaður
sinnuleysið til úrskurðarnefndar-
innar, sem heyrir undir forsætis-
ráðuneytið.
Bankanum var gert að svara
í síðasta lagi 8. desember. Í gær,
tveimur dögum eftir lokafrest, ósk-
aði Seðlabankinn eftir því við úr-
skurðarnefndina að fá framlengd-
an frest og var hann veittur.
Arna Schram, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, segir að þeg-
ar upplýsingalögin voru sett hafi BÍ
lagt áherslu á að frestur til að svara
upplýsingabeiðnum væri sem
skemmstur. „Markmið upplýsinga-
laganna er að viðkomandi aðilar
svari sem fyrst eða gefi skýringar á
því að svarið dregst,“ segir Arna.
Fimmtán dagar eru síðan DV
kærði sinnuleysi bankans til úr-
skurðarnefndarinnar. Alls hefur
blaðið því beðið í tæpar sjö vikur
eftir svari bankans. Ef Seðlabank-
inn hafnar beiðni DV þegar fram-
lengdi fresturinn rennur út 17.
desember kærir blaðið þá niður-
stöðu og fær bankinn þá nýjan frest
til að rökstyðja ákvörðun sína. Mið-
að við þetta fordæmi getur hann
einnig sótt um aukfrest til þess.
Blaðamaður DV er hins vegar
ekki sá eini sem bíður eftir upp-
lýsingum frá Seðlabankanum því
Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður
viðskiptanefndar Alþingis, hefur
óskað eftir hljóðritunum af símtöl-
um Davíðs en á fundi viðskipta-
nefndar Alþingis nýverið sagðist
Davíð hafa varað ráðherra ríkis-
stjórnarinnar við því í júní að núll
prósent líkur væru á að viðskipta-
bankarnir lifðu af aðsteðjandi erf-
iðleika. Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra kannast ekki við þessi orð
Davíðs.
erla@dv.is
Sjö vikna bið Sjö vikur eru síðan dV
óskaði eftir minnismiðum davíðs
Oddssonar seðlabankanstjóra sem hann
segir sanna að hann hafi varað forsvars-
menn viðskiptabankanna við útrásinni.
SiGurður Mikael JónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Þrettán ára stúlka varð fórnar-
lamb nauðgunar á hótelherbergi í
Reykjavík í fyrradag, en þetta stað-
festir Björgvin Björgvinsson, yfir-
maður kynferðisbrotadeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Maður af erlendu bergi brotinn
tengist málinu en að sögn Björg-
vins er margt enn óljóst varðandi
atvikið. Rannsókn málsins er á
frumstigi.
Farinn af landi brott
Meðal þess sem óljóst er í málinu
er hvort maðurinn sem talinn er
tengjast málinu sé gerandi í því, en
hann er að sögn Björgvins farinn af
landi brott. „Málið er á byrjunar-
stigi en það er ekki ólíklegt að fleiri
komi við sögu í þessu máli,“ seg-
ir Björgvin. „Við teljum okkur vita
hver aðilinn er, en hann er farinn
af landi brott,“ bætir Björgvin við.
Lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu var tilkynnt um málið
seinnipartinn á þriðjudag og hófst
frumrannsókn kynferðisbrota-
deildar þá.
Ekki fékkst staðfest á hvaða hót-
eli stúlkunni var nauðgað.
Þekktust í gegnum
son mannsins
Ekki fékkst heldur upp gefið hjá
lögreglu hverrar þjóðar maðurinn
er, sem að sögn lögreglu kemur við
sögu í málinu. Heimildir DV herma
hins vegar að hann sé pólskur.
Sömu heimildir herma að sonur
mannsins þekki stúlkuna sem var
nauðgað og maðurinn tengist hinu
þrettán ára fórnarlambi þannig.
Björgvin segir að farið hafi verið
með stúlkuna á bráðamóttöku þar
sem hún fékk aðhlynningu og var
skoðuð. Hún er nú hjá fjölskyldu
sinni að jafna sig. Engar niður-
stöður liggja fyrir úr skoðun bráða-
móttökunnar að sögn Björgvins en
rannsókn verður haldið áfram og
er málið allt á byrjunarstigi eins og
áður segir.
Því miður ekki einsdæmi
Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segir því miður að at-
vik sem þessi séu ekki einsdæmi.
Nauðganir eigi sér stað gagnvart
fólki á öllum aldri. „Nærri helm-
ingur þeirra kynferðisbrotamála
sem við fáumst við hjá Stígamót-
um hefjast á aldrinum fimm til
tíu ára. Og það er allt frá áreitni
yfir í grófar nauðganir,“ segir
Guðrún og bætir við að fæstir
leiti sér þó aðstoðar fyrr en mörg-
um árum seinna. „Auðvitað eru
öll mál ljót en það er skelfilegt að
vita til þess að þrettán ára stúlku
hafi verið nauðgað.“
nauðgað Þrettán ára stúlka varð fórnarlamb
nauðgunar á hótelherbergi ónefnds hótels í
reykjavík í upphafi vikunnar. Pólskur
karlmaður sem talinn er tengjast málinu er
flúinn af landi brott en ekki er óvíst að fleiri
tengist málinu.
Myndin er SviðSett
„Við teljum okkur
vita hver aðilinn er,
en hann er farinn af
landi brott.“