Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 22
Svarthöfði hefur ákveðið að koma sér upp sínum eigin jólasveinum. Að vísu er ekki meiningin að ýta neinum til
hliðar enda slíkt ekki lenska hér. Jóla-
sveinar Svarthöfða eru þeir sem sitja
sem fastast í störfum sínum og iðrast
einskis. Þeir eru til staðar allt árið.
Rústasleikir situr í Seðlabank-anum og leitar uppi verð-mæti í rústunum sem hann sjálfur átti stærstan þátt í að
skapa. Rústasleikir er yfirjólaveinn og
hann fer gjarnan í viðtöl í jólasveina-
miðlunum þar sem hann gefur fólki
loðnar vísbendingar um afglöp ann-
arra jólasveina. Sjálfur er hann vamm-
laus. Bestu viðtölin við hann eru
gjarnan í erlendum jólasveinamiðl-
um. En döpur tungumálakunnátta
bjargar honum gjarnan eftir á þegar
allt er komið í bál og brand. Í upphafi
aðventu ræddi hann við danskt jóla-
sveinablað um að hann ætlaði að fara
í kynskiptaaðgerð og verða Grýla. En
hann dró það síðan til baka þar sem
orðið kynskiptaaðgerð var rangtúlkað.
Hann vill samt verða Grýla.
Eftirlitsleysir situr í Fjármála-eftirlitinu og gætir þess vandlega að láta ekki eftirlit sliga vinnustað sinn. Í stórri
kommóðu geymir hann viðkvæm,
flókin mál. Hann hefur í gegnum
tíðina farið reglulega til útlanda til að
láta varnaðarorð fram hjá sér fara. Því
kom bankahrunið honum gríðar-
lega á óvart og auðvitað þvær hann
hendur sínar af þeim ósköpum. Hann
skipar gjarnan gamla jólasveina til
starfa í skilanefndunum. Best er
að þeir hafi áður verið víttir af
Fjármálaeftirlitnu. Brenndur
jólasveinn forðast nefnilega
eldinn.
Stéttastaur situr í Verslunar-mannafélaginu og gætir þess fyrst og fremst að hafa nóg að bíta og brenna. Hann krækir
í hluta af launum afgreiðslufólksins
og fær inni í sem flestum nefnd-
um og ráðum. Hann er jólasveinn
hinna vinnandi stétta en við það að
Kaupþing fór á hausinn missti hann
spón úr aski sínum og er alveg staur.
Stéttastaur er eini jólasveinninn sem
reglulega býður upp á jólahlaðborð.
Gestabókin þar er jafnframt stuðn-
ingsyfirlýsing við hann sjálfan.
Lánakrækir situr í forsætisráðu-neytinu á milli þess sem hann heldur blaðamannafundi um ekki neitt. Hann er stöðugt
skotspónn Rústasleikis sem lúskrar á
honum með hrísvendi, bak og fyrir.
Hann er fórnarlamb eineltis. Helsta
iðja Lánakrækis er að fylla út lánaum-
sóknir og telja fólki trú um að botn-
inum sé náð. Lánakrækir er með þá
áráttu að geta helst ekki sagt satt orð.
Dýrahrellir er á stóli fjár-málaráðherra. Hann er jóla-sveinninn sem fer illa með fé, sérstaklega sparifé.
Hans helsta áhugamál
var til skamms tíma að
gera at í útlendingum.
Svo er hann fjallkóng-
ur þeirra sem smala
sparifé saman um víða
veröld. þegar af fjalli
er komið með safnið
neitar hann að draga
það í dilka en eignar sér
allt féð fyrir hönd allra í
Jólasveinalandi.
Óþefur situr á bankastjóra-stóli í bankanum Glitni. Nafn sitt hlýtur þessi jóla-sveinn ekki af eiginlegum
fnyki, enda viðkomandi hinn mesti
snyrtipinni. Þessi eini kvenjólasveinn
Íslands, hefur fengist við hlutabréfa-
kaup í eigin banka upp á krít en
gleymt að borga. Talsverður fnykur er
af þessum viðskiptum en Eftirlitsleys-
ir hefur þó hvítþvegið systur sína af
öllum ásökunum um um misferli. Og
Óþefur situr sem fastast og aðstoðar
Rústasleiki við að vinna gull í grjót-
námu hrunsins.
Bankagægir situr á stóli ráðu-neytisstjóra fjármála. Hann er haldinn gægjuþörf af praktískum ástæðum. Um-
svifamikil hlutabréfaeign víða í Jóla-
sveinalandi kallar á að hann gægist í
sem flesta koppa og kirnur. Hann vissi
því af hruni jólasveinabankans fyrir-
fram og náði að selja bréfin sín áður
en þau urðu verðlaus. Hann er líka í
náðinni hjá Rústasleiki.
Hinir nýju jólasvein-ar skera sig úr í samfélaginu og enginn vill neitt
með þá hafa, nema þeir
sjálfir. Á meðan gömlu
góðu jólasveinarnir setja
í skóinn hjá fólki eru þeir
í því að stela úr skónum.
Og þannig eru jóla-
sveinar kreppunnar.
Allir eiga þessir jólasveinar
kreppunnar það sameig-
inlegt að neita að fara þótt
jólin verði að baki. Og ef
þeir eru spurðir koma þeir
af fjöllum.
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 200822 Umræða
Nýju jólasveiNarNir
svarthöfði
spurningin
„Nei, nei, ekki um jólin
…” segir Haukur
Már Helgason,
ritstjóri Nei -
dagblaðs í ríki
sjoppunnar.
dagblaðið er nú
komið í jólafrí og
kemur næst út 7.
janúar 2009.
eNgiN Nei-kvæðNi
um jóliN?
sandkorn
n Aukinnar óánægju gætir orðið
með Silfur Egils, bæði þáttinn á
sunnudög-
um á RÚV
og einnig
Eyju-blogg-
ið. Þeim
fjölgar sem
tjá sig um
neikvæðni
og nöldur í
Agli Helga-
syni. Hann er sjálfur farinn að
láta meira bera á sínum eigin
skoðunum en áður. Hann þykir
hrapa að einfeldningslegum nið-
urstöðum og vera haldinn mikilli
refsigleði án þess að athugun eða
þekking búi þar að baki. Hvers
kyns grillufangarar og nafnlaus-
ir rugludallar hengja sig í blogg
hans . Þá er augljóst mál að
málsmetandi menn eru farnir að
forðast að vera meðal kverúlanta
í þáttum hans. Manna á meðal er
rætt um að fallið hafi á silfur Egils
sem árum saman hefur glansað.
n Ritstjórar Fréttablaðsins, Jón
Kaldal og Þorsteinn Pálsson, eru
ofurviðkvæmir fyrir umræðum
um meinta þjónkun við aðal-
eigandann, Jón Ásgeir Jóhann-
esson. Einfarinn Kristinn H.
Gunnarsson
alþingis-
maður talaði
um þann
forgang sem
Jón Ásgeir
hefði fengið
í eigin blaði
með því að
fá birta svar-
grein í sunnudagsblaði við ásök-
unum Agnesar Bragadóttur í
sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins vegna leynifélagsins Stíms.
Ritstjórarnir tveir gera vel við
Kristin og birta í fyrstu opnu frí-
blaðsins einu stærstu athuga-
semd allra tíma og sverja þar af
sér dekur við eigandann.
n Sjálfstæðisflokkurinn er bók-
staflega á suðupunkti vegna
þrásetu Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra í embætti.
Þingflokkurinn er nánast á einu
máli um að Davíð verði að víkja
en það er aðeins Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra sem
stendur með sínum manni.
Davíð er fullkunnugt um þessa
afstöðu flokksmanna sinna en
þó í afneitun. Mun hann hafa
heimtað að sjá lista með nöfnum
þeirra þingmanna sem vilja að
hann víki.
n Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra er hvergi af baki dottinn
þótt um 70 prósent kjósenda vilji
hann í burtu, samkvæmt könnun
Capacent. Nú hefur ráðherrann
stúderað
hóp mót-
mælenda
og kemst
að þeirri
niðurstöðu
að vinstri-
grænir séu
þar gjarn-
an að baki.
Nefnir hann Drífu Snædal, fram-
kvæmdastjóra VG, og Björgu Evu
Erlendsdóttur, sem ritstýrir vef-
miðlinum smugan.is. Bendir ráð-
herrann á að vinstri-grænir séu
„kjölfestufjárfestir“ í smugan.is.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á NETINU: dv.IS
aðalNúMEr: 512 7000, rITSTjórN: 512 7010,
áSkrIFTarSíMI: 512 7080, aUglýSINgar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Sjá aðstoðarþjálfar-
ann, það er eins
og hann sé að
kúka þarna bara.
Alveg glórulaus.“
n Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður Stöðvar
2 Sport, í leik Chelsea og Cluj í Meistaradeild
Evrópu.
„Þeirra hugmynd væri að
ég kæmi vestur og stæði
mína plikt.“
n Gunni Þórðar úr Hljómum í
ævisögu sinni um þegar hann
barnaði stelpu ungur að árum.
Foreldrar hennar voru úr
Búðardal og höfðu mjög ákveðnar
hugmyndir um framhaldið. – DV.
„Maður lifir
aðeins einu
sinni.“
n Aron Pálmi sem hefur skráð
þátttöku sína í Idolinu og ætlar alla leið. – DV.
„Félagi minn vill gefa
rjúpur í staðinn
fyrir veiðistyrk.“
n Orðalag veiðimanna sem
selja rjúpur en það er ólöglegt.
Þær eru seldar dýrum dómi á
svörtum markaði. – DV.
„Þetta er einhver harðvít-
ugasti slagur sem við
höfum orðið vitni að um
íslenska bók.“
n Jóhann Páll Valdimarsson um uppboðsslag
þýskra útgefanda um bókina Skapari eftir
Guðrúnu Evu. – Fréttablaðið.
Þegar heimilið hrynur
Leiðari
Ef ríkisstjórnin var einhvern tímann í björgunarleiðangri er þeim leið-angri nú lokið. Hún kom aftur heim með lík á börunum. Nú er hins veg-
ar óumdeilanlega runninn upp tíminn til
að leggja grunninn að Nýja-Íslandi. Stóra
spurningin sem landsmenn standa frammi
fyrir nú er hvort ríkisstjórninni sé treystandi
til að reisa nýja Ísland.
Ef heimili þitt hrynur yfir þig leitarðu ekki til
sama verktakans til að reisa nýja heimilið. En
segjum svo að staðan sé þannig, eins og hún
er á Íslandi í dag, að þú hafir engan annan
valkost. Að þú hafir ekki heimild til að kjósa
þér annan verktaka, því sá sem bar ábyrgð á
því að húsið þitt hrundi hefur tímabundið al-
ræðisvald yfir húsbyggingum.
Þegar lagður er grunnur þarf að grafa, en
það getur ríkisstjórnin illa gert. Hún hefur of
mörg leyndarmál grafin til þess að geta það.
Sannleikurinn um aðdraganda hrunsins er
nauðsynleg forsenda uppbyggingar á réttum
grunni, en sami sannleikur fellir ríkisstjórn-
ina.
Þjóðin var svikin. Hún treysti yfirvöldum og
fjölmiðlum fyrir mikilvægustu hagsmunum
sínum. Það traust var misnotað. Valdafólkið
vissi í hvað stefndi en faldi það. Aðeins hin-
ir útvöldu gátu nýtt sér upplýsingarnar til
að flýja og undirbúa yfirtökuna á rústunum.
Líklega er þjóðin ófær um að treysta núver-
andi ríkisstjórn af því að þjóðin er ekki vit-
laus. Tilraunir stjórnarinnar til að viðhalda
þeirri blekkingu, með hjálp ákveðinna fjöl-
miðla, að hún beri enga ábyrgð eru dæmdar
til að mistakast.
Lögreglan hefur verið staðin að því að klípa
friðsama mótmælendur, kýla í þá og reyna
að espa þá upp, að því er virðist. Fjölmiðla-
menn hafa fjallað um mótmælin út frá því
hve fáir mæti og að mótmælendurnir hafi
engar lausnir. En það er ekki mótmælenda
að leysa efnahagsvandann, þeir eru ekki í
framboði. Morgunblaðið gengur svo langt
að kalla mótmælendur „vitleysinga“. Sterk
öfl vinna gegn því að Nýja-Ísland verði reist
á bjargi en ekki á sandi.
Ef heimili þitt hrynur yfir þig og fjölskylduna
færðu einhvern allt annan aðila til að end-
urreisa það. Þú grandskoðar feril hans, yf-
irheyrir hann og krefst þess að fá að fylgjast
náið með endurreisninni til að lenda aldrei
aftur í því að treysta þeim sem blekkir og set-
ur þig í hættu. Því í annað skiptið er það þér
að kenna. Það er þess vegna sem mótmæl-
endur láta ekki stoppa sig. Þeir bera ábyrgð
á kjörnum fulltrúum. Hin leiðin til að upp-
fylla skyldur sínar gagnvart sjálfum sér og
fjölskyldunni er að gefa eftir móðurlandið og
leita sér að traustara landi undir fætur.
jóN TrausTi reyNissoN riTsTjóri skrifar. Ef heimili þitt hrynur yfir þig leitarðu ekki til sama verktakans til að reisa nýja heimilið.
bókstafLega