Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Qupperneq 28
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 200828 Fókus
Árið 1987 breyttu Guns N´Ros-es rokksögunni með frum-burði sínum „Appetite for
Destruction“, sem er vafalítið ein
af bestu rokkplötum síðustu aldar.
Platan gerði bandið að stórstjörn-
um á einni nóttu. G N´R Lies kom 2
árum seinna og þegar hinar mögn-
uðu Use Your Illusion I og II komu
út 1991 var Guns N´Roses stærsta
rokkhljómsveit veraldar ásamt
Metallica.
Eftir þær plötur, endalausa tón-
leika og misheppnuðu útgáfuna
„The Spagetti Incident?“ árið 1993
fór að halla undan fæti. Meðlimir
hljómsveitarinnar hættu hver af öðr-
um og eftir stóð Axl Rose og hélt eft-
ir nafninu. Hann túraði áfram sem
Guns N´Roses með ýmsum tónlist-
armönnum á meðan eldri meðliðir
gengu til liðs við aðrar hljómsveitir,
meðal annars stofnaði Slash Velvet
Revolver.
Rose hefur líklega talið það
„smart move“ að hafa þetta nafn á
diskinum og fá þá athygli sem því
myndi fylgja en þegar tekið er inn í
jöfnuna að langflestir Ameríkanar
geta ekki fundið Kína á landakorti
og hvað þá upplýstir um stjórnar-
hætti landsins er það varla sterkur
leikur. Er það síðan sniðugt að svo
til útiloka sölu disksins á stærsta
markaðsvæði veraldar með inni-
haldslausri gagnrýni á hluti sem
hann virðist ekki skilja sjálfur. Og
síðan má spyrja: Hver er Axl Rose
að gagnrýna Kínverja þar sem er
bullandi hagvöxtur á meðan „Land
of the free“ er á hausnum? Kanan-
um er margt til lista lagt. Gagnrýni á
önnur lönd er ekki eitt af því.
En að sjálfum diskinum. Hann
byrjar ekki illa. Fyrsta lagið ber
nafn plötunnar og er týpískt Guns
N´ Roses-lag , tvíraddað og kröft-
ugt. Ádeilutextinn fer reyndar fyr-
ir ofan garð og neðan en ekki eins
vandræðalega slæmur eins og víð-
ar á diskinum. Í næsta lagi mætir
manni öskrandi „Nu Metal“-hljóm-
ur í anda Slipknot og lagið slepp-
ur alveg. Þriðja lagið „Better“ er vel
þolanlegt líka og sá grunur læðist að
manni að Axl Rose sé eftir allt sam-
an að sleppa sæmilega frá þessu. En
þá fór að halla undan fæti.
Ætla mætti að á 10 árum hefði
verið hægt að nurla saman nógu
mörgum lögum í góða plötu en þegar
á leið hlustun fóru að renna á mann
tvær grímur. Þetta var bara engan
veginn nógu gott. Axl Rose gerir til-
raunir til að vera reiður en það er alls
ekki sannfærandi. Hann þenur háa
röddina í tíma og ótíma og þegar líð-
ur á diskinn er gaulið farið að pirra
mann það mikið að erfitt er að hlusta
á góðum styrk eins og hlýða ber á
rokktónlist. Hugljúfar ástarjátningar
í rólegri lögum verða síðan hreinlega
pínlegar þegar Axl Rose öskrar þær
í hæstu hæðum eins og kvalið svín.
Hann reyndar syngur þorrann af
plötunni þannig. Þetta ískrandi ýlfur
í Axl á plötunni verður til þess að hlé
verður að taka á hlustun. Um tíma
upplifði ég sjálfan mig sem Steinrík
við það að slökkva á Óðríki Algaula.
Allur hljómur og spilamennska
er stórfín og fagmenn á öllum stöð-
um en allt fútt vantar í fagleikann.
Að margra mati varð ekki síst sam-
leikur gítarleikaranna Slash og Izzy
Stradlin það sem gerði Guns N´ Ros-
es að því sem hljómsveitin var. Gerð-
ar eru margar tilraunir til að apa eft-
ir þeim á plötunni en það tekst ekki
sem skyldi.
Platan er þó ekki alslæm og aðdá-
endur Guns N´ Roses, og þá meina
ég aðdáendur Axl Rose, munu vafa-
laust fagna plötunni. En eitt er víst
að ef Rose tekst að koma original
bandinu saman á túr eins og sögu-
sagnir eru uppi um mun ég freista
þess að mæta á tónleika og mun
ég þá nota tækifærið og fara á bar-
inn eða klósettið þegar lög af þessari
plötu verða leikin.
Sveinn Waage
Á f i m m t u d e g i
Hvað Heitir lagið?
„Einn dag á jólum, verða karlmenn að
strákum. Leikandi sér við sprengjur, rétt eins
og krakkar leika sér að leikföngum.“
JólagJöf til
allra lands-
manna
Jólahátíð Kimi Records fer fram á
skemmtistaðnum NASA í kvöld.
Margar af helstu hljómsveitum
landsins munu koma fram og gleðja
landann og má þar á meðal annars
nefna Múgsefjun, Retro Stefson,
Agent Fresco, Borko, Morðingj-
ana, Reykjavík! og Sudden Weather
Change. Einnig er von á leynigesti.
Aðgangsmiðinn kostar fimm hundr-
uð krónur, en tónleikagestir eiga
kost á því að kaupa plötu sem og
aðgangsmiða á 1.500 krónur. Húsið
opnað klukkan 20 og hefst tónleika-
dagskrá korteri seinna.
síðasti
upplesturinn
Síðasti upplestur haustsins í upp-
lestraröð Forlagsins, undir heitinu
„Gleymdu þér andartak“, fer fram á
Te & kaffi í kvöld. Kvöldin hafa ver-
ið haldin öll fimmtudagskvöld síð-
an í október. Höfundarnir sem lesa
eru Ólafur Gunnarsson (Dimmar
rósir), Haukur Sigurðsson (ævisaga
Benedikts Davíðssonar verkalýðs-
frömuðar), Vilhjálmur Árnason
(siðfræðiritið Farsælt líf – Réttlátt
samfélag), Silja Aðalsteinsdóttir
(Gylfi, bók um myndlistarmann-
inn Gylfa Gíslason), Sigrún Eld-
járn (Eyja Sólfuglsins) og Gunnar
Theodór Eggertsson (Steindýrin
sem hlaut Íslensku barnabóka-
verðlaunin í ár). Upplesturinn hefst
klukkan 20.
Bryndís Á domo
Í kvöld mun leik- og söngkonan,
Bryndís Ásmundsdóttir, fagna afmæli
sínu með tónleikum á DOMO. Í til-
kynningu frá Bryndísi segir að blóm
og kransar séu afþakkaðir en þess í
stað vonist hún til að sjá sem flesta á
tónleikunum. Húsið opnað klukkan
átta og miðaverð er þúsund krónur.
Ásamt Bryndísi koma fram margir
góðir leynigestir. Undanfarið hefur
Bryndís farið með hlutverk sjálfrar
Janisar Joplin í Íslensku óperunni við
góðan orðstír og hefur þar að auki
gert það gott sem Tina Turner ásamt
Siggu Beintens víða um landið.
Félag Allskonar Listamanna- og
Kvenna, eða FALK, stendur fyr-
ir tónleikum á Café Amsterdam í
kvöld. Þar koma fram raftónlist-
armennirnir Sigtryggur Berg Sig-
marsson, Klive og Arnljótur og DJ
Djammhamar leikur lög af hljóm-
plötum á milli atriða.
Sigtryggur Berg er þekktur og
dáður um allan heim sem meðlim-
ur hinnar rómuðu raftónlistarsúp-
ergrúppu, Evil Madness, en þeir
gáfu út nýja plötu fyrir skemmstu.
Einnig er hann annar helming-
ur óhljóðasveitarinnar Stillupp-
steypu sem aukið hefur hróður
lands og þjóðar um árabil.
Klive hefur vakið óskipta hrifn-
ingu allra unnenda raftónlistar frá
því hann spratt fullskapaður fram
á sjónarsviðið „líkt og höggvinn
úr höfði rafmagnsguðsins“ eins
og segir í tilkynningu. Hann gaf út
sína fyrstu plötu, Sweaty Psalms,
síðastliðið vor.
Arnljótur er sagður eitt þessara
sjaldgæfu „múltítalenta“ sem ein-
ungis örsjaldan koma fram á sjón-
arsviðið. Hann er ekki einungis eft-
irsóttur sessjónleikari á hvers kyns
hljóðfæri heldur hefur hann einn-
ig komið fram með skara hljóm-
sveita undir hinum ýmsu nöfnum.
Nýjasta útspil Arnljóts er að koma
fram undir eigin nafni en hann gaf
út hljómdiskinn Lystauka síðast-
liðið sumar.
DJ Djammhammar er svo fjöl-
hæfur lagablandari sem hyggst
draga fram úr pússi sínu fáheyrða
gullmola í bland við þekktara efni.
FALK er ársgamalt félag en
það er stofnað að undirlagi vin-
anna Baldurs Björnssonar og Að-
alsteins Jörundssonar og nýverið
bættist Einar Valur Aðalsteinsson
í hópinn. FALK miðar að því að
gefa út og koma á framfæri list í
víðustu merkingu þess orðs með
útgáfustarfsemi og uppákomum
og hefur það að leiðarljósi að gera
hefðbundna hluti á óhefðbund-
inn hátt. Nú þegar hefur komið út
bókverkið *Heimsendir er í nánd*-
*The God Bok* eftir Baldur. Í júlí
síðastliðnum var svo fyrsta FALK-
kvöldið haldið og lukkaðist framar
vonum.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21 og er frítt inn.
raftónlist á Café amsterdam
litlu skÁrra en
kínverskt lýðræði
tónlist
Chinese DemoCraCy
Flytjandi: guns N´roses
Axl Rose „allur hljómur og spila-
mennska er stórfín og fagmenn á öllum
stöðum en allt fútt vantar í fagleikann.“
Svar: SoMEday aT ChrISTMaS MEð STEvIE WoNdEr
Rafmagnað Tónlistarmað-
urinn Krakkbot spilaði á
FaLK-kvöldi síðasta sumar.