Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 20
„Plógurinn er af gerðinni Föcker- sperger FSP 18 spiderplow. Hann var keyptur árið 2007 í verkefni fyrir Landsnet þar sem ljósleið- ari var lagður milli Akureyrar og Fljótsdalsvirkjunar, alls um 231 km vegalengd. Hann var notaður á erf- iðustu svæðunum þar sem þörf var á miklu dráttarátaki og þar sem þurfti að leggja ljósleiðarann í vegkanta og meðfram eldri lögnum með mikilli nákvæmni,“ segir Ingileifur Jóns- son. Plógurinn sem kallaður er köngulóin hefur fjögur hjól sem öll eru á sjálfstæðum örmum og er því hægt að stilla honum upp í hinum ólíklegustu aðstæðum, til dæmis í hliðarhalla og miklum ójöfn- um, án þess þó að það hafi áhrif á legu strengsins. „Dráttartækið er í grunninn Man 4x4 trukkur sem hefur verið breytt mikið og er hann útbúinn spili sem hefur dráttargetu til að draga plóginn með allt að 140 tonna átaki og stórum spaða að aftan til viðspyrnu við drátt. Helstu eigin- leikar þessa búnaðar eru hin mikla dráttargeta sem samsvarar yfir 200 tonna jarðýtu og stöðugleiki plógs- ins sem fæst með þessum sjálfstæða hjólabúnaði,“ útskýrir Ingileifur. Plógurinn er nokkuð sérhæfð- ur og hefur því ekki sinnt mörgum verkefnum en hefur komið að afar góðum notum þar sem við á. Síðast- liðið sumar var hann til dæmis not- aður við verkið „Selfosslínu 3“. Þar var lagður 66 kW háspennustrengur en hann samanstendur af þrem ein- leiðurum sem hver um sig er 54 mm í þvermál og einu 20 mm fjarskipta- röri. „Upp kom vandamál þegar menn urðu varir við mikið jarðvatn á söndunum þar sem strengleiðin er og þurfti að leysa það mál á annan hátt en verkgögn sögðu til um, en reikn- að var með að grafa fyrir öllum köpl- um í verkinu. Lausnin fólst í því að fá köngulóna til verksins þar sem hún gæti lagt alla strengi og fjarskipta- rörið í einni samfellu og af mikilli nákvæmni og öryggi,“ segir Ingi- leifur og bendir á að slíkt hafi einn- ig verið gert í Landeyjum 2013 þegar upp kom svipað vandamál þegar strengir voru lagðir frá spennivirki að landtöku á sæstreng milli Landey- jasands og Vestmannaeyja. Ingileifur segir helsta kost plógs- ins vera þann að jarðrask eftir hann sé lítið. Því henti hann til dæmis mjög vel þegar fara þurfi yfir við- kvæmt land. „Það er alltaf gott að nota umhverfisvænar vinnuaðferð- ir þegar verið er að leggja hvort heldur sem er ljósleiðara eða há- spennustrengi í jörðu,“ segir hann. solveig@365.is Þarna er unnið við verkið „Selfosslínu 3“ síðastliðið sumar. Þarna má sjá hvar spil- bíllinn dregur köngulóna en hún dregur alla strengina og fjarskiptarörið ásamt við- vörunarborðum niður í jörð. Aftan við hana er jarðýta sem dregur þrjá keflavagna sem hver um sig ber kefli með einleiðarastreng en hvert kefli vegur um 8-8,5 tonn. Köngulóin fer yfir Brúará og plægir í móbergsbotn. Verkefnið var unnið fyrir RARIK en engir aðrir plógar eða vinnuvélar gátu unnið verkið. Köngulóin Ingileifur Jónsson ehf. flutti árið 2007 inn áhugaverðan plóg sem í daglegu tali er kallaður köngulóin. Vélin er sú eina sinnar tegundar á landinu og í Skandinavíu. Plógurinn getur plægt og lagt marga strengi í einu af mikilli nákvæmni. Á þessari mynd sést hvernig allir strengirnir renna yfir jarðýtuna í jöfnu átaki og ofan í rennuna aftan á köngulónni en fjarskiptarörið er þarna framan á ýtunni og fer sömu leið og strengirnir. Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Landsbankinn býður fyrirtækjum hagkvæma fjármögnun á bifreiðum, atvinnutækjum, vélum og ýmsum rekstrartækjum. VöRuBílAR og VInnuVélAR Kynningarblað 26. janúar 20164 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 4 3 -E C B 8 1 8 4 3 -E B 7 C 1 8 4 3 -E A 4 0 1 8 4 3 -E 9 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.