Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 27
 Sala á Volvo rútum gekk vel á síðasta ári og voru 9 nýskráðar Volvo rútur sem taka yfir 41 far- þega. Volvo Bus var því markaðsleiðandi með 29% markaðshlutdeild. Kynningarblað VöruBílar og VinnuVélaer 26. janúar 2016 11 Volvo l350F hjólaskófla afhent lnS Saga. Myndir/HaFþór HreiðarSSon Volvo eC700C l beltagrafa afhent lnS Saga. Jökullfell FH16 – Volvo FH16 750 hestafla 6x4T Tandem dráttarbíll afhentur Jökulfelli ehf. Á mynd frá vinstri Marinó Haukur, Haukur gíslason og alexander atli. Kristinn Már Emilsson, fram­ kvæmdastjóri atvinnutækjasviðs í Brimborg, segir að öll framleiðsla Volvo atvinnutækja sé undir ströng­ um gæðakröfum þar sem megingild­ in í hönnun og framleiðslu séu „qual­ ity, safety and environmental care“, eða gæði, öryggi og umhyggja fyrir umhverfinu. „Óhætt er að segja að árið 2015 hafi verið það langbesta frá árinu 2008 og endurnýjun á atvinnutækj­ um sé því að færast í nokkuð eðli­ legt horf ef horft er einhver ár aftur í tímann,“ segir Kristinn Már. Hvað vörubifreiðar varðar þá var fjöldi nýskráðra vörubíla yfir 12 tonn að heildarþyngd 127 bílar og innflutningur notaðra vörubíla yfir 12 tonn var 139 bílar. Inni í þessum skráningartölum vörubifreiða eru einnig námubifreiðar auk stærri kranabifreiða. Til að mynda voru nýskráðir 37 nýir Volvo vörubílar á síðasta ári og voru því Volvo vöru­ bifreiðar með nálægt 30% markaðs­ hlutdeild. Sala á Volvo rútum gekk vel á síð­ asta ári og voru 9 nýskráðar Volvo rútur sem taka yfir 41 farþega. Volvo Bus var því markaðsleiðandi með 29% markaðshlutdeild. Bættust til að mynda þrír nýir rekstraraðilar hópferðabifreiða í Volvo fjölskyld­ una en það voru fyrirtækin Hópferð­ ir Sævars ehf. í Reykjanesbæ, Hóp­ bílar hf. í Hafnarfirði og Snæland Grímsson ehf. Í vinnuvélum hefur fjöldi ný­ skráninga aukist mikið frá síðustu árum og líkt og í nýskráningu vöru­ bifreiða er endurnýjunarþörfin tals­ verð samhliða því að verkefnastaða verktakafyrirtækja og flutnings­ aðila hefur batnað mikið. Árið byrjar vel hjá Volvo atvinnutækjum Föstudagurinn 15. janúar var einn sá stærsti í sögu Volvo atvinnutækja hvað varðar fjölda afhendinga á Volvo atvinnutækjum, verðmæti tækjanna og þyngd. LNS Saga fékk formlega afhentar tvær Volvo vinnu­ vélar, annars vegar Volvo EC700C L beltagröfu sem er nærri 75 tonn að þyngd og Volvo L350F hjólaskóflu sem er nálægt 55 tonnum að þyngd. Síðan voru afhentir þrír mjög vel útbúnir og glæsilegir Volvo FH16 6x4T dráttarbílar frá 550 hestöfl­ um upp í 750 hestöfl. Eftirtalin fyr­ irtæki fengu afhenta nýja dráttarbíla þennan dag: Dráttarbílar í Garðabæ, Jökul fell ehf. og Fljótavík ehf. Upp­ talningunni er ekki lokið því Gray Line Iceland fékk afhentar 2 nýjar Volvo 9900 VIP 52 sæta hópferðabif­ reiðar með nokkurra mánaða milli­ bili en þessar Volvo 9900 rútur eru flaggskipin í framleiðslu Volvo Bus og eru því án efa meðal glæsilegustu hópferðabifreiða landsins. Þegar þetta er skrifað er til á lager ein vel útbúin Volvo 9500 4x2 59 sæta hópferðabifreið. Volvo vörubifreiðar fá frábærar móttökur hjá viðskiptavinum Volvo FH vörubifreiðin hefur feng­ ið frábærar móttökur hér á landi og af þeim 37 vörubílum sem afhent­ ir hafa verið á árinu eru 28 undir merkjum Volvo FH, þar af 24 Volvo FH16. Flaggskip Volvo Trucks er Volvo FH16, en hann kemur með 16 lítra vél sem hægt er að fá allt frá 550 hestöflum sem toga 2900 Nm og upp í 750 hestöfl sem skila 3550 Nm togi. FH16 bíllinn er í grunninn með aðeins betur útbúið ökumannshús heldur en Volvo FH sem kemur með Volvo D13K 13 lítra vél. Hægt er að segja að Volvo Trucks sé leiðandi þegar kemur að tækninýj­ ungum er snúa að vörubifreiðum. Nú nýverið voru til að mynda afhent­ ir hjá Brimborg fyrstu tveir Volvo FH16 6x4 dráttarbílarnir sem eru með lyftanlegri drifhásingu. Hægt er að sjá vídeó á youtube.com sem sýnir vel hvernig þessi lyftanlega drifhásing virkar. Volvo Trucks – Tandem Axle Lift function. Spennandi tímar fram undan hjá Volvo atvinnutækjum Volvo atvinnutækjasvið Brimborg­ ar hefur stækkað talsvert í umfangi undanfarið auk þess sem aðrar rekstrareiningar innan Brimborg­ ar hafa gert það líka. Þetta hefur gert það að verkum að nú hefur verið hafin vinna í þá átt að finna nýja staðsetningu undir starfsemi Volvo atvinnutækja. Eru því án efa spennandi tímar fram undan þar sem huga þarf að framtíðarþróun atvinnutækjamarkaðarins ásamt því að hanna húsnæði sem hentar starfseminni þar sem hafa þarf hag­ kvæmni, nýtingu, aðkomu viðskipta­ manna, vinnuaðstöðu starfsmanna, verkstæði, varahluti, söludeild og margt fleira að leiðarljósi. Heimasíður Volvo atvinnutækja og samfélagsmiðlar Heimasíður Volvo atvinnutækja hjá Brimborg hafa verið uppfærðar töluvert upp á síðkastið og eru þær í dag samtals fjórar. Fyrir Volvo vörubifreiðarnar www.volvotrucks. is, fyrir Volvo vinnuvélar www.vol­ voce.is, fyrir Volvo strætisvagna og rútur www.volvobus.is og fyrir Volvo Penta bátavélar www.volvopenta.is. Jafnframt er haldið úti Facebook síðu hjá Volvo atvinnutækjum þar sem reynt er að koma á framfæri fréttum og öðru efni er tengist því sem atvinnutækjasviðið er að gera hverju sinni og þeim vörumerkjum sem Volvo atvinnutækjasvið hefur með að gera. Verkstæðin hjá Volvo atvinnutækjum Undanfarnar vikur hafa verið anna­ samar á Volvo atvinnutækjaverk­ stæðunum, en þau eru tvískipt. Annars vegar fyrir vörubifreiðar og hópferðabifreiðar og hins vegar vinnuvélar og bátavélar. Gerðar hafa verið breytingar á verkstæðunum sem hafa mælst vel fyrir hjá starfsmönnum og viðskipta­ mönnum. Kristinn Már segir áherslu lagða á snyrtilega umgengni og fag­ mennsku í þessum störfum, en þjálf­ un og endurmenntun starfsmanna skiptir miklu máli enda öll tækni er snýr að atvinnutækjum alltaf að aukast. Á Volvo atvinnutækjaverk­ stæðum starfa menntaðir bifvéla­ virkjar, vélvirkjar og nemar sem eru að mennta sig faginu. Að lokum vill Kristinn minnast á það að vegna aukinna umsvifa er þörf fyrir góða liðsmenn í hóp fagmanna á Volvo at­ vinnutækjaverkstæði. nýtt símanúmer Volvo atvinnu- tækja er 515 7070. gott ár að baki hjá Volvo atvinnutækjum | Brimborg Brimborg fer með umboð Volvo atvinnutækja sem eru í eigu Volvo AB í Svíþjóð. Þar ber að nefna Volvo Trucks vörubifreiðar, Volvo CE vinnuvélar, Volvo Bus hópferðabifreiðar og Volvo Penta bátavélar. Í upphafi síðasta árs bættist Renault Trucks í hóp þeirra vörumerkja sem Brimborg þjónustar og selur, en eignarhald Renault Trucks er í höndum Volvo Trucks í Svíþjóð. 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 4 4 -0 0 7 8 1 8 4 3 -F F 3 C 1 8 4 3 -F E 0 0 1 8 4 3 -F C C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.