Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 62
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur fengið hlutverk í nýjustu mynd Alberts Hughes, The Solu-trean, en sá hefur unnið með leikurum á borð við Johnny Depp, Denzel Washington, Chris Tucker og Milu Kunis. Sem stendur ríkir mikil leynd yfir myndinni en einn af leikurunum myndarinnar er enginn annar en hinn tvítugi Ástrali Kodi Smit-McPhee, en hann hefur slegið í gegn í myndum á borð við Rise of the Planet of the Apes og The Road, auk þess sem hann fer með eitt af aðalhlutverkum í nýjustu X-Men myndinni. Aðspurður um aðkomu sína að The Solutrean verður Jóhannes þögull sem gröfin. „Það eina sem ég get sagt er að ég er með hlut- verk í myndinni og verð í Kanada við tökur á myndinni næstu vikur og mánuði. Varðandi hlutverkið og stærðina á því þá má ég ekkert segja, því miður. Maður verður að leyfa framleiðendunum að stjórna þessu. Ég er búinn að skrifa undir samninga sem banna mér að tjá mig nánar um þetta að svo stöddu,“ segir hann um hlutverkið. En Jóhannes er ekki eina íslenska afurðin sem lætur til sín taka í myndinni, því íslenskt landslag kemur fyrir og er það RVX Studios sem sér um herlegheitin. Jóhannes Haukur hefur undan- farið ár landað stórum hlutverkum í kvikmyndabransanum, en hann hefur meðal annars leikið í Game of Thrones ásamt því að hafa farið með hlutverk í A.D. Kingdom and Empire. Jóhannes segist alsæll með þessi forréttindi sem leikarastarfið hefur í för með sér en hann hefur undan- farið einungis starfað við kvikmyndir og sjónvarpsverkefni erlendis. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu, það er frábært að geta ferðast um heiminn og unnið með nýju og ólíku fólki. Fólki sem maður myndi annars aldrei hitta á lífsleiðinni,“ segir hann og er að vonum ánægður með nýja hlutverkið. Ætli þetta stóra verkefni komi til með að veita þér veigameiri hlutverk í Hollywood? „Það hefur gengið ágætlega hjá mér núna í tæp tvö ár. En síðan ég fékk hlutverk í A.D. Kingdom and Empire þáttunum fyrir NBC þá hefur mér tekist að starfa eingöngu við kvikmyndir og sjónvarpsverkefni erlendis. Eftir A.D. var það Game of Thrones, svo The Coldest City og nú þetta. Við sjáum svo bara til hvað þetta endist og hvert þetta fer. En vissu- lega mjög ánægjulegt og spennandi allt saman.“ gudrunjona@ frettabladid.is Jóhannes Haukur Jóhannesson fær hvert stóra hlutverkið á fætur öðru þessa dagana. Fréttablaðið/ VilHelm Kodi Smit- mcPhee fer einnig með hlut- verk í myndinni. Ferill Smit-mcPheeS Jóhannes haukur Jóhannesson leikari fékk nýverið hlutverk í nýjustu mynd leikstjórans Alberts Hughes, The Solutrean. Meðleikari Jóhannesar í myndinni er ástralski leikarinn Kodi Smit-McPhee. Tökur á myndinni fara fram í Kanada í febrúar. Slow West Dawn of the Planet of the apes all the Wilderness bad land: road to Fury romeo & Juliet the Congress a birder’s Guide to every thing ParaNorman Dead europe let me in matching Jack tinytown the road the adventures of Charlotte and Henry the tender Hook romulus my Father the King Fitul’til og pr—teinr’k . . . … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 2 6 . j a n ú a r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D a G U r22 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð mikil leynd yfir nýju hlutverki 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 4 3 -D D E 8 1 8 4 3 -D C A C 1 8 4 3 -D B 7 0 1 8 4 3 -D A 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.