Fréttablaðið - 26.01.2016, Blaðsíða 18
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
„Kanada hefur alltaf togað í mig
og eftir efnahagshrunið líkaði mér
ekki að sjá þann farveg sem Ísland
var komið í. Því ákváðum við fjöl-
skyldan að þetta væri rétti tíminn
til að breyta til og flytja allt okkar
hafurtask til Kanada,“ segir Arnar
sem flutti ásamt konu sinni og
þremur af fjórum börnum sínum
til Edmonton í september 2013.
„Mér líkar mjög vel að búa
hérna. Mannlegt viðhorf er svo
gott og kurteisi er í hávegum höfð,“
segir Arnar en viðurkennir þó að
Kanadamenn taki öllum með fyr-
irvara til að byrja með. „Til dæmis
þurfti ég, sem hef þrjátíu ára
reynslu af vörubílaakstri, er bæði
kranamaður og vinnuvélastjóri, að
byrja á því að taka venjulegt bíl-
próf eins og sautján ára krakki
eftir að ég kom til Kanada, í fram-
haldi af því þurfti ég að taka kan-
adískt meirapróf.“
Ekur lengri vegalengdir
Arnar útskýrir að til séu nokkr-
ar tegundir vörubílstjóra í Kan-
ada. „Þetta eru ökumenn sem fara
styttri vegalengdir, borgaröku-
menn, sendibílstjórar og svokall-
aðir „long hall drivers“ en ég fell í
þann flokk,“ segir hann en eins og
nafnið gefur til kynna ekur Arnar
langar vegalengdir og er á ferðinni
frá einum degi og upp í viku. „Á
venjulegum degi eyði ég 13 klukku-
stundum í akstri en leyfilegur
vinnutími hér í Kanada er 16 klst.
á dag sem skiptist í 13 tíma í akstri,
einn tíma „on duty“ sem er hugsað-
ur sem tími til að taka olíu og fram-
kvæma skoðanir á bíl og vögnum.
Síðan eru tveir tímar hugsaðir
sem hvíld en þeim getur þú skipt
niður í fjóra hálftíma. Eftir þenn-
an tíma er nauðsynlegt að taka tíu
tíma stopp,“ segir Arnar sem ekur
eftir svokölluðum 70/7 lögum. Það
þýðir að hann megi aka 70 tíma á
sjö dögum en eftir þann tíma þarf
hann að taka 36 tíma stopp.
Allt til alls í bílnum
Arnar ekur trukk af tegund-
inni 2015 International Pro-Star.
„Hann er með 450 Hp Cumm-
ings og 16 gíra Eton Fuller kassa,
eigin þyngd er 8,8 tonn en leyfileg
heildarþyngd má vera 63,5 tonn á
8 öxla,“ lýsir hann. Að öllu jöfnu
dregur Arnar tvo tengivagna á
ferðum sínum.
Hann segir allt til alls í bílnum
enda nauðsynlegt þar sem hann
dvelur þar langdvölum. „Ég er með
tölvu, sjónvarp, rúm og allt sem til
þarf.“
Sérstakur lífsstíll
Arnar segir trukkakúltúrinn í
Kanada allt annan en á Íslandi.
„Hér er þetta meira lífsstíll en
starf að vera „trucker“. Hér eru
til dæmis mörg dæmi um að hjón
séu ökuteymi og fari bæði um Kan-
ada og Bandaríkin og búi í bílun-
um,“ segir Arnar. Hann telur lítinn
meting á milli manna vegna bíl-
tegunda. „Alls staðar þar sem þú
kemur inn á svokölluð trukkastopp
hittirðu fyrir marga trukkara. Þér
er ávallt boðið sæti, sama hvernig
trukk þú keyrir og venjulega snýst
umræðan um allt annað en trukka.
Frekar er rætt um ástand vega,
vigtir, þyngdir og hversu langt við
erum að fara.“
Spennandi ísakstur
Arnar hefur lent í ýmsu á ferð
sinni um Kanada. Eitt af því sem
honum þótti áhugavert að kynnast
var akstur á ísvegi en sumir kann-
ast við þættina Ice Road Truckers
á sjónvarpsstöðinni History.
„Ísvegi má finna víða í Kanada
en það helgast af því að á suma
staði er einungis hægt að kom-
ast með ferju á sumrin. Á veturna
frjósa árnar og vötnin og ferjurn-
ar hætta að ganga. Þá eru búnir til
þessir ísvegir til að aka vörum á
þessa staði sem oftast eru námur
og einangruð indíánaþorp,“ lýsir
Arnar sem hefur ekið eftir slíkum
ísvegum nokkrum sinnum.
„Í fyrsta skipti ók ég upp eftir
ánni við Yellow Knife um 25 km
leið. Það var dálítið óhugnanlegt
þegar gæslumaðurinn sagði mér
að aka með bílstjórahurðina opna
og gluggann farþegamegin opinn.
Svo hlustaði maður á brak og
Í bílnum er allt til alls enda dvelur arnar þar langdvölum. Ég er með sjónvarp, tölvu, rúm og allt sem þarf.
ferðast um
ísilögð vötn
Arnar Lúðvíksson Fahning flutti til Edmonton í Kanada
haustið 2013 og starfar sem vöruflutningabílstjóri.
Hann hefur upplifað ýmislegt, skógarelda, heimsókn
bjarndýra og akstur um ísilögð vötn.
bresti í ísnum meðan maður silað-
ist áfram á 20 km hámarkshraða,“
segir Arnar en bíllinn og farmur-
inn vógu 53 tonn. Stöðugur ágang-
ur vörubíla á ísveginum veikir
vissulega ísinn en Arnar lýsir því
að ávallt þegar gerir mikið frost
sé vatni sprautað á veginn til að
styrkja hann.
Skógareldar og bjarndýr
Skógareldar eru mjög algeng-
ir í Kanada. „Á sumrin er þetta
alger plága og vegna þeirra verð-
ur gríðar leg eyðilegging,“ segir
Arnar sem sjálfur sat fastur í þrjá
sólarhringa vegna skógarelda.
„Það var tilkomumikil sjón og
mikil lífsreynsla,“ segir hann en
meginástæðan fyrir því að vegum
er lokað er reykur sem leggst yfir
þá. „Eftir þrjá sólarhringa höfðu
tugir flutningabíla safnast saman
báðum megin við reykhafið, þá var
ákveðið að aka með tíu bíla í einu í
gegnum reykinn í lögreglufylgd á
tíu km hraða.“
Arnar hefur einnig upplifað líf-
legt dýralíf landsins. „Ég stopp-
aði einu sinni til að taka mynd af
skógarbirni. Sá stóð og horfði á
mig, labbaði svo upp að trukknum,
settist niður eins og hundur og beið
eftir að ég gaukaði að honum bita,“
segir Arnar og hlær hressilega.
solveig@365.is
Ísvegi má finna víða í
Kanada en það helgast af
því að á suma staði er
einungis hægt að komast
með ferju á sumrin. Á
veturna frjósa árnar og
vötnin og ferjurnar hætta
að ganga. Þá eru búnir til
þessir ísvegir til að aka
vörum á þessa staði.
Arnar Lúðvíksson Fahning
VörUbÍlar og VinnUVÉlar Kynningarblað
26. janúar 20162
2
5
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
3
-D
8
F
8
1
8
4
3
-D
7
B
C
1
8
4
3
-D
6
8
0
1
8
4
3
-D
5
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K