Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.01.2016, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 26.01.2016, Qupperneq 18
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is „Kanada hefur alltaf togað í mig og eftir efnahagshrunið líkaði mér ekki að sjá þann farveg sem Ísland var komið í. Því ákváðum við fjöl- skyldan að þetta væri rétti tíminn til að breyta til og flytja allt okkar hafurtask til Kanada,“ segir Arnar sem flutti ásamt konu sinni og þremur af fjórum börnum sínum til Edmonton í september 2013. „Mér líkar mjög vel að búa hérna. Mannlegt viðhorf er svo gott og kurteisi er í hávegum höfð,“ segir Arnar en viðurkennir þó að Kanadamenn taki öllum með fyr- irvara til að byrja með. „Til dæmis þurfti ég, sem hef þrjátíu ára reynslu af vörubílaakstri, er bæði kranamaður og vinnuvélastjóri, að byrja á því að taka venjulegt bíl- próf eins og sautján ára krakki eftir að ég kom til Kanada, í fram- haldi af því þurfti ég að taka kan- adískt meirapróf.“ Ekur lengri vegalengdir Arnar útskýrir að til séu nokkr- ar tegundir vörubílstjóra í Kan- ada. „Þetta eru ökumenn sem fara styttri vegalengdir, borgaröku- menn, sendibílstjórar og svokall- aðir „long hall drivers“ en ég fell í þann flokk,“ segir hann en eins og nafnið gefur til kynna ekur Arnar langar vegalengdir og er á ferðinni frá einum degi og upp í viku. „Á venjulegum degi eyði ég 13 klukku- stundum í akstri en leyfilegur vinnutími hér í Kanada er 16 klst. á dag sem skiptist í 13 tíma í akstri, einn tíma „on duty“ sem er hugsað- ur sem tími til að taka olíu og fram- kvæma skoðanir á bíl og vögnum. Síðan eru tveir tímar hugsaðir sem hvíld en þeim getur þú skipt niður í fjóra hálftíma. Eftir þenn- an tíma er nauðsynlegt að taka tíu tíma stopp,“ segir Arnar sem ekur eftir svokölluðum 70/7 lögum. Það þýðir að hann megi aka 70 tíma á sjö dögum en eftir þann tíma þarf hann að taka 36 tíma stopp. Allt til alls í bílnum Arnar ekur trukk af tegund- inni 2015 International Pro-Star. „Hann er með 450 Hp Cumm- ings og 16 gíra Eton Fuller kassa, eigin þyngd er 8,8 tonn en leyfileg heildarþyngd má vera 63,5 tonn á 8 öxla,“ lýsir hann. Að öllu jöfnu dregur Arnar tvo tengivagna á ferðum sínum. Hann segir allt til alls í bílnum enda nauðsynlegt þar sem hann dvelur þar langdvölum. „Ég er með tölvu, sjónvarp, rúm og allt sem til þarf.“ Sérstakur lífsstíll Arnar segir trukkakúltúrinn í Kanada allt annan en á Íslandi. „Hér er þetta meira lífsstíll en starf að vera „trucker“. Hér eru til dæmis mörg dæmi um að hjón séu ökuteymi og fari bæði um Kan- ada og Bandaríkin og búi í bílun- um,“ segir Arnar. Hann telur lítinn meting á milli manna vegna bíl- tegunda. „Alls staðar þar sem þú kemur inn á svokölluð trukkastopp hittirðu fyrir marga trukkara. Þér er ávallt boðið sæti, sama hvernig trukk þú keyrir og venjulega snýst umræðan um allt annað en trukka. Frekar er rætt um ástand vega, vigtir, þyngdir og hversu langt við erum að fara.“ Spennandi ísakstur Arnar hefur lent í ýmsu á ferð sinni um Kanada. Eitt af því sem honum þótti áhugavert að kynnast var akstur á ísvegi en sumir kann- ast við þættina Ice Road Truckers á sjónvarpsstöðinni History. „Ísvegi má finna víða í Kanada en það helgast af því að á suma staði er einungis hægt að kom- ast með ferju á sumrin. Á veturna frjósa árnar og vötnin og ferjurn- ar hætta að ganga. Þá eru búnir til þessir ísvegir til að aka vörum á þessa staði sem oftast eru námur og einangruð indíánaþorp,“ lýsir Arnar sem hefur ekið eftir slíkum ísvegum nokkrum sinnum. „Í fyrsta skipti ók ég upp eftir ánni við Yellow Knife um 25 km leið. Það var dálítið óhugnanlegt þegar gæslumaðurinn sagði mér að aka með bílstjórahurðina opna og gluggann farþegamegin opinn. Svo hlustaði maður á brak og Í bílnum er allt til alls enda dvelur arnar þar langdvölum. Ég er með sjónvarp, tölvu, rúm og allt sem þarf. ferðast um ísilögð vötn Arnar Lúðvíksson Fahning flutti til Edmonton í Kanada haustið 2013 og starfar sem vöruflutningabílstjóri. Hann hefur upplifað ýmislegt, skógarelda, heimsókn bjarndýra og akstur um ísilögð vötn. bresti í ísnum meðan maður silað- ist áfram á 20 km hámarkshraða,“ segir Arnar en bíllinn og farmur- inn vógu 53 tonn. Stöðugur ágang- ur vörubíla á ísveginum veikir vissulega ísinn en Arnar lýsir því að ávallt þegar gerir mikið frost sé vatni sprautað á veginn til að styrkja hann. Skógareldar og bjarndýr Skógareldar eru mjög algeng- ir í Kanada. „Á sumrin er þetta alger plága og vegna þeirra verð- ur gríðar leg eyðilegging,“ segir Arnar sem sjálfur sat fastur í þrjá sólarhringa vegna skógarelda. „Það var tilkomumikil sjón og mikil lífsreynsla,“ segir hann en meginástæðan fyrir því að vegum er lokað er reykur sem leggst yfir þá. „Eftir þrjá sólarhringa höfðu tugir flutningabíla safnast saman báðum megin við reykhafið, þá var ákveðið að aka með tíu bíla í einu í gegnum reykinn í lögreglufylgd á tíu km hraða.“ Arnar hefur einnig upplifað líf- legt dýralíf landsins. „Ég stopp- aði einu sinni til að taka mynd af skógarbirni. Sá stóð og horfði á mig, labbaði svo upp að trukknum, settist niður eins og hundur og beið eftir að ég gaukaði að honum bita,“ segir Arnar og hlær hressilega. solveig@365.is Ísvegi má finna víða í Kanada en það helgast af því að á suma staði er einungis hægt að komast með ferju á sumrin. Á veturna frjósa árnar og vötnin og ferjurnar hætta að ganga. Þá eru búnir til þessir ísvegir til að aka vörum á þessa staði. Arnar Lúðvíksson Fahning VörUbÍlar og VinnUVÉlar Kynningarblað 26. janúar 20162 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 4 3 -D 8 F 8 1 8 4 3 -D 7 B C 1 8 4 3 -D 6 8 0 1 8 4 3 -D 5 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.