Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1908, Blaðsíða 46
40
fram kú. Þótt ekki sje það nema hálf kú, sem maðurinu telur fram er hann settur
þar, sumir þeirra telja fram 2 kýr eða fleiri. Þegar húsfólk eða þurrabúðarfólk hef-
ur kú er mjólkin fengin á heimilið, hana þarf ekki að kaupa að, og munurinn á
þurrabúðarfólki, eða húsfólki og smábóndanum er þá ekki annar en það, að hann
býr á jörðu eða jarðarparti, sem metinn er til dýrleika, en það ekki. Þurrabúðar-
menn með grasnyt eru eiginlega ekki annað en smábændur. Að þeir hafa ekki
nafnið eða titilinn er mest því að kenna að landspildan sem fylgir liúsðæðinu er
mæld úr landi höfuðjarðarinnar eptir 1. apríl 18(51, og að við jarðarmatinu hefur
ekki verið hreyft síðan, nema til þess að færa matið niður á jörðum sem hafa eyðst
eða skemst af sandfoki. Húsmenn og þurrabúðarmenn sem telja fram kú eru á öllu
landinu.......................................................... 808 manns
þar af eru í Vestmannaeyjum og kaupstöðunum fjórum ............ 209 —
Eptir eru 599 —
sem eginlega mætti leggja við ijændabýlin á landinu. Ábúðin á landinu flytur sig
smátt og smátt frá framdölum og tjallahlíðum niður að sjónum i kaupstaði, kaup-
tún og fiskiver. Við það fjölgar þurrabúðarmönnum á landinu.
2. Javðavluindniðin á landinu eru .......................... 86.189,3 liundr.
1906 var búið á ................................. 84.401,4 hundr.
og í Reykjavík eru undir byggingum og notuð
öðruvísi ........................................ .....233,5 hundr. 84.634,9 hundr.
í ej'ði mun vera rjettast að álíta.............................. 1.554,4 hundr.
Það er miklu meira en áðui helur verið í eyði, því ef einhver fæst til að bjóða
1 kr. fyrir afnot á eyðijörðu um árið, þá var hún skoðuð sem byggð væri, en
því hefur ekki verið fylgt, þegar skýrslur þessar voru samdar; í þeim hefur það
verið álitin eyðijörð, sem enginn býr á, þótt einhver liefði afnot af henni, ef skýrsl-
urnar báru það með sjer.
Af því að það hlýtur að gefa góða skýringu á hag bænda, þá hefur öllum
sem búa á jörð eða jarðarparti verið flokkað eptir hundraða tölunni, sem þeir búa
á; þessi skýrsla er sett hjer á eptir.