Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1908, Qupperneq 123
117
6. Hundaskattur. Hann hefur verið lagður á iil þess, að stemma stigu
fyrir sullaveikinni, eins og hundaskatturinn sem áður var. Þá var lögunum ekki
framfylgt, en það er gjört nú síðara skiptið. Þessi skattur hefur verið:
1893—95 meðallal ........... 14,700 kr.
1896—00 15,300 —
1901 ...................... 14,080 —
1902 11,958 —
1903 ...................... 12,964 —
1904 ........................ 13,754 kr.
1905 14,044 —
1901—05 meðaltal ............. 13,400 —
1906 13,148 —
7. Ýmislegar tekjur eða óvissar hafa verið samsafn af öllum öðrum tekjum
sveitarsjóðanna, en þeim sem að framan eru nefndar. í þeim hefur falist endurgold-
inn sveitarstyrkur og þurfamannalán, sem borguð hafa verið aplur, styrkgreiðslur,
sem einn hreppurinn hefur tekið við lijá öðrum hreppum. Nú er farið að hafa
endurborgaðan sveitarstyrk, sem tekjugrein sjer. Hans verður ekki getið tekjumegin
samt sem áður,. heldur verður þessi tekjuliður dreginn frá útgjöldunum til fátækra
útgjaldamegin, og látinn lækka þau útgjöld, eins og sjálfsagt er.
Ymislegar tekjur hafa verið þessar á ýmsum tímum:
1861 ... 45,800 kr. 1902 ... 128,981 kr.
1871- -80 meðaltal 96,300 — 1903 115,004 —
1881- -90 92,000 — 1904 ... 147,009 —
1891- -95 106,400 — 1905 140,094 —
1896- -00 ... 112,500 — 1901—05 meðaltal .., ... 134,700 —
1901 142,505 — 1906 142,792 —
8 Lán sem sveitir og kaupstaðir hafa lekið, hafa ekki verið sjergreind fyrr
en 1905, þótt þeirra sje getið á fám stöðum áður í reikningunum 1904. Þessi lán
hafa verið:
1904
1905
1906
2,900 kr.
57,500 —
176,800 —
Gjöldin sem voru niðurjöínuð til hreppavega og sýsluvega eru nú horfin sem
sjerstakur tekjuliður, en útgjöldin til vega eru sjerstakur útgjaldaliður og verða tek-
in þeim megin til meðferða.
IV. Útgjöld sveitasjóðanna.
1. Fáiœkra framfœri. Hjer er tekið i eina heild allt sem áður er kallað,
sveitarstyrkur, fátækraframfæri, eða ómaga framfæri. Sömuleiðis er hjer slengt sam-
an, þeim tveimur liðum í síðari ára reikningum, sem ganga til barna undir 16 ára
og til eldri þurfamanna, þar sem kostnaðurinn til hvers um sig mun ekki vera nægi-
lega aðgreindur. Þrjú síðustu árin 1904 — 1906 eru dregnar frá fátækraframfærinu,
sem borgað var af hreppunum eins og hjer er sýnl:
Árin Til barna undir Til þurfamanna Frádregst endurg.
16 ára yfir 16 ára AIls sveitarstyrkur
kr. kr. kr. kr.
1904 7,547 178,835 186,382 1,342
1905 . ... 8,055 174,326 182,381 19,451
1906 7,221 167,196 174,417 16,787
Siðan er farið að eins og áður hefur verið gjört, og sýnt fram á hve mikið fátækra-