Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1911, Side 124
Skýrsla
um virðingarverð húseigna i kauptúnum á landinu 1909,
með hliðsjón af fyrri árum.
Það hefur ofl verið tekið fram, að skýrslur þessar ná yfir £þau hús, [sem
ekki eru notuð við ábúð á jörðu, sem metin er til dýrleika, ef þau eru 500 kr.
virði eða meira. Skýrslurnar ná yfir öll hús í kaupstöðum, kauptúnum og verzl-
unarstöðum; hús eða bæir sem virtir eru minna en á 500 kr., eru næstum alveg
fallnir úr sögunni. En hinar undantekningarnar, opinberar eignir, skólahús, kirkjur,
sjúkrahús, sem eru notuð til opinberra þarfa, og hús sem eru veðsett fyrir meiru,
en virðingarverði eru næstum öll, og næstum ávalt lalin í skýrslunum.
Skýrslan hvert ár telur þær húseignir sem voru til 1. janúar sama árið. Frá-
hrygði frá þeirri reglu munu vera mjög sjaldgæf, þó liafa þau vitanlega komið fyrir,
en svo sjaldan, að ekkert tillit þaif að taka til þess. Virðingarverð og veðsetningar
á þessum húsum eru svo háar tölur, að nokkurra þúsunda skekkja til eða frá
hverfur svo að segja alveg.
Að þessu sinni hefur verið settur fólksfjöldi við alla kaupstaði og flesta
verslunarstaði landsins. Þegar ibúatalan er yfir 300 manns, er hún tekin eftir
manntalinu 1. des. 1S)10, en sje íbúatalan lægri en 300, þá er hún tekin eftir fólks-
fjölda skýrslunum síðasta dag ársins 1908, því aðgangur að síðari upplýsingum var
ekki greiður. Þeir sem búa í kaupstöðum og verslunarstöðum verða eftir aðal-
skýrslunni 29800 manns. Talan sýnist vera of há, en verður að standa þangað til
manntalið kemur. En það er vitanlegt, að í sumum verslunarstöðum hefur fólkinu
fækkað eftir 1908, þó því hafi viða annarsstaðar fjölgað.
1. Tala háseigna hefur vaxið ár frá ári í landinu, nema árið 1889, þá
fækkaði húseignum um 22. Norðmenn höfðu sett upp fjölda af síldarhúsum hingað
og þangað, og þegar síldaraflinn hrást flutlu þeir húsin burtu aftur. Mest kvað að
þvi árið 1889. Annars er það aðalregla, að þegar hús er komið upp einhversstaðar,
að þá stendur þar það kyrt, nema það brenni. Ef það brennur er það jafnaðar-
legast bygt upp aftur. Vegna þess að húseignum fjölgar ávalt, og kaupstaðir og
verslunarstaðir byggjast meira og meira, er hjer í yfirlitinu aldrei notað meðaltal,
lieldur er eitt og eitt ár tekið fyrir sig með vissu millibili. Það gefur miklu betri
liugmynd um ganginn í vexti kaupstaða og verslunarstaða, en nokkurt meðaltal.