Fréttablaðið - 27.01.2016, Qupperneq 2
2
banaslys hafa orðið í Silfru
frá árinu 2010
Veður
Suðlæg átt í dag um 5-13 m/s. Snjókoma
með köflum eða él sunnan og vestan til á
landinu, en áfram þurrt og bjart að mestu
um landið norðaustanvert. Kalt í veðri,
einkum í innsveitum norðaustanlands.
Sjá Síðu 18
Samfélag Stefnt er að því að koma
á sjálfvirku flokkunarkerfi á öllum
endurvinnslustöðvum Sorpu fyrir
skilagjaldsskyldar umbúðir, það er
að segja gler- og plastflöskur og dósir.
Frá því kerfin voru tekin í notkun
á endurvinnslustöðvum Sorpu í
Hafnarfirði og á Granda í fyrra hefur
meira magni af umbúðum verið
skilað þangað að sögn Guðmundar
Tryggva Ólafssonar, rekstrarstjóra
endurvinnslustöðva Sorpu.
„Þetta hefur fengið góðar viðtök-
ur,“ segir Guðmundur. Nýja kerfið
krefjist minna af þeim sem skila sem
og af starfsmönnum. Vélin les strika-
merki og það eina sem fólk þurfi að
hugsa um sé að halda umbúðunum
heilum.
Þórhildur Þorleifsdóttir, leik-
stjóri og fyrrum alþingismaður, var
á endur vinnslustöð á Granda í gær
að skila dósum og flöskum. „Ég geri
allt sem ég get til að stuðla að aukinni
endurvinnslu og reyni að draga úr
notkun einnota umbúða,“ segir hún.
Að sögn Þórhildar vandist hún á
að flokka alls konar rusl þegar hún
bjó um skeið í Þýskalandi. Hún hafi
reynt að halda því áfram er heim var
komið þótt fólki sé ekki alltaf auð-
veldað það. „Maður hefur stundum
þurft að standa úti í rigningu og roki
að reyna að troða flöskum í einhvern
gám. Þá hefur maður verið nærri því
að fara og segja endurvinnslunni að
eiga þetta bara.“
Vinkonurnar Sigurbjörg Björns-
dóttir og Matthildur Sigrúnar-
dóttir voru einnig í Sorpu að skila
umbúðum. Þær segjast skila einu
sinni á ári þegar flöskurnar og
dósirnar hafa safnast upp. Þær
nýti búbótina til að kaupa
sér eitthvað skemmtilegt
en nú fást sextán krónur
á hverja einingu.
„Við erum tiltölulega
nýfluttar inn saman og
það er fínt að fara svona
saman, fjölskyldan, og
skila,“ segir Sigurbjörg.
thorgnyr@frettabladid.is
Meiri skil á dósum með
sjálfvirku kerfi í Sorpu
Meira magni af skilagjaldsskyldum umbúðum er skilað frá því sjálfvirk flokk-
unarkerfi voru tekin í notkun á endurvinnslustöðvum. Skilagjaldið er búbót
fyrir Íslendinga. Þórhildur Þorleifsdóttir vill stuðla að aukinni endurvinnslu.
Verðlaunaðar fyrir fuglafræðispil
Ólafur Ragnar Grímsson afhenti í gær Birgittu Steingrímsdóttur og Heiðdísi Ingu Hilmarsdóttur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verk-
efnið Þekkirðu fuglinn? Það er um rannsókn á fuglafræðiþekkingu og gerð spils um fuglafræði fyrir börn sem gæti nýst til náms. Fréttablaðið/anton
Maður
hefur
stundum þurft að
standa úti í rign-
ingu og roki að
reyna að troða
flöskum í
einhvern gám.
Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri
Matthildur Sigrúnardóttir og Sigurbjörg björnsdóttir fara árlega með umbúðir í
endurvinnslu. Fréttablaðið/Hanna
fljótSdalShérað Búnaðarfélag
Eiðaþinghár og Kvenfélag Eiðaþing-
hár hafa gert 23 milljóna króna til-
boð í húsnæði barna- og leikskólans
á Eiðum. Fyrirhugað er að halda úti
ferðaþjónustu í hluta húsanna en
einnig yrði húsnæðið nýtt í félags-
aðstöðu.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segist munu ræða
við félögin á næstunni.
„Áætlunin er sú að byggja þarna
upp eitthvað til eflingar nærsvæð-
inu,“ segir Björn og bendir á að það
sé í samræmi við samþykkt bæjar-
stjórnar frá árinu 2012 þar sem lagt
var til að efla nærsamfélagið. „Hug-
myndin er sú að þetta sé að fara úr
eigu sveitarfélagsins en verði hugsað
til uppbyggingar nærsamfélagsins,“
segir Björn. – þea
Kvenfélag vill í
ferðaþjónustu
SlyS Skoða má hvort herða beri reglur
um köfun í Silfru. Þetta segir Ólafur
Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum, en erlend kona á þrítugs-
aldri slasaðist alvarlega í Silfru í gær.
Lögreglan á Selfossi var kölluð út
um hádegisbilið vegna slyssins og var
konan sótt með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar og flutt á Reykjavíkurflug-
völl. Þaðan var konunni ekið á Land-
spítalann við Hringbraut.
Reglur um köfun í gjánni voru hert-
ar í ársbyrjun 2013 í kjölfar banaslyss
þann 28. desember 2012. Bönnuðu þá
þjóðgarðsvörður og Siglingastofnun,
sem nú er hluti af Samgöngustofu,
köfun fyrir neðan átján metra í því
skyni að reyna að tryggja öryggi kaf-
ara. Ólafur segir að öll slys séu tilefni
til að ræða um hertar reglur. – þea
Enn eitt slys
ofan í Silfru
Allir svona
viðburðir gefa
okkur tilefni til að
skoða málið.
Ólafur Örn
Haraldsson, þjóð-
garðsvörður á
Þingvöllum
Ferðamaður slasaðist alvarlega við
köfun í Silfru. Fréttablaðið/Pjetur
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 6 m I ð V I K u d a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
2
6
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
7
-A
F
8
8
1
8
4
7
-A
E
4
C
1
8
4
7
-A
D
1
0
1
8
4
7
-A
B
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K