Lögmannablaðið - 01.07.1998, Side 16
formum í tilvikum eins og skilnað-
armálum og búskiptum. Ef um ein-
hverja ráðgjöf er að ræða sem
tengist túlkun á lagareglum eða
framkvæmd mála fyrir dómi fellur
það skýlaust undir lögmannsstörf
og má aðeins veitast af lögmanni.
Skylduaðild lögmanna
Saga samtaka lögmanna er sam-
tvinnuð málefninu um skylduaðild.
Í mörgum fylkjum voru rekin frjáls
samtök lögmanna, sem m.a. önn-
uðust kynningu á pólitískum við-
horfum lögmanna á meðal þing-
manna fylkisins. Mikilvægt fræði-
starf, svo sem samhæfing laga
meðal allra fylkja, hefur verið unn-
ið á vettvangi frjálsra félagasam-
taka. Þar ber hæst það starf sem
unnið er af Lögmannafélagi
Bandaríkjanna (Amercian Bar
Association eða ABA), sem eru
frjáls samtök allra lögfræðinga.
Skylduaðild að samtökum lög-
manna komst á í öllum fylkjum
BNA eftir 1920. Til að tryggja al-
mannahagsmuni varðandi eftirlits-
og agavald yfir lögmönnum þótti
skylduaðild að samtökum lög-
manna nauðsynleg. Með henni
væri tryggt að allir lögmenn undir-
gengjust eftirlitskerfi samtaka lög-
manna og væru jafnframt bundnir
agavaldi þeirra samkvæmt siða-
reglum. Hæstiréttur, sem hafði
æðsta vald í málefnum lögmanna
samkvæmt fylkjalögum, framseldi
lögmannafélaginu forræði eftirlits-
og agavalds á fyrstu stigum mála.
Lögmannafélagið varð því tiltekið í
reglum sem stjórnsýsluarmur dóm-
stólanna í málefnum lögmanna.
Eftirlits- og agavald
Stjórnarskrá Flórídafylkis kveður
á um hver fari með eftirlitshlutverk
og agavald yfir lögmönnum og
annist jafnframt veitingu lög-
mannsréttinda. Slíkt úrskurðarvald
er veitt Hæstarétti Flórída. Svipað-
ur háttur er hafður á í öðrum fylkj-
um BNA. Rökin eru þau að sjálf-
stæði dómstólanna sé besta trygg-
ing borgaranna fyrir réttaröryggi og
sé um leið trygging fyrir óvilhallri
meðferð á agabrotum lögmanna.
Daglegt eftirlitsvald, eins og áður
er getið, hefur hæstiréttur falið
fylkisráði lögmannafélagsins sem
stjórnsýsluarmi dómstólsins. Þeirra
hlutverk er að sjá til þess að siða-
reglum sé framfylgt og að lögmenn
fari að almennum lögum í starfi
sínu. Starfrækir lögmannafélagið
sérstaka aganefnd sem sér um
rannsókn meintra brota á siðaregl-
um og tekur við kærum frá um-
bjóðendum. Sérstakur lögmaður
félagsins (Bar Counsel) hefur með
höndum saksókn brotamála fyrir
aganefnd og Hæstarétti. Hæstirétt-
ur Flórída kveður síðan á um end-
anleg viðurlög, annaðhvort áminn-
ingu, tímabundinn réttindamissi
eða ótímabundna leyfissviptingu.
Heimilt er þó að endurskoða
ótímabundna leyfissviptingu eftir
þrjú ár, ef vissum skilyrðum er full-
nægt.
Í agamálum er sakborningum
ætíð tryggð umfjöllun tveggja sjálf-
stæðra úrskurðaraðila, og er mál-
skotsréttur samkvæmt agareglum
tryggður. Annað myndi vart full-
nægja alríkislögum um réttláta og
sanngjarna málsmeðferð (due
process), sem rætur sínar á að
rekja til 5. viðauka að stjórnarskrá
Bandaríkjanna. Á fyrstu stigum er
brotamálið rannsakað af aganefnd
og lýtur úrskurði fylkisráðs lög-
mannafélagsins, en fullnaðarúr-
skurð fellir síðan Hæstiréttur Flór-
ída, eftir málskot og munnlegan
málflutning aðila.
Siðareglur
Siðareglur lögmanna verður að
telja óaðskiljanlegan þátt í mennt-
un og veitingu starfsréttinda lög-
manna í BNA. Áður en lögmaður
getur hafið störf verður hann að
gangast undir a.m.k. tvö próf í
greininni. Fyrst er um að ræða próf
í skyldugrein í hverjum lagaskóla
sem fjallar um fyrirmynd siða-
reglna fylkjanna, sem oft er nefnd
„ABA Model Rules of Professional
Conduct”. Þessar reglur voru
samdar af nefnd á vegum Lög-
mannafélags Bandaríkjanna (ABA)
og hafa þjónað sem fyrirmynd í
mörgum fylkjum. Í öðru lagi er sér-
stakt próf í siðareglum hvers fylkis
lagt fyrir lögmenn sem einn hluti
lögmannsprófs í öllum fylkjum.
Gefur því auga leið að lögmenn
ættu að vera sæmilega að sér í ein-
stökum ákvæðum siðareglna þegar
þeir loksins hefja störf.
Hæstiréttur hvers fylkis setur
siðareglur fyrir lögmenn. Eru þær
staðfestar af réttinum eftir opinbera
umfjöllun og munnlegan málflutn-
ing fyrir dómi. Siðareglur Flórída
spanna yfir þætti eins og samband
lögmanns og umbjóðanda, hags-
munaárekstur, fjárvörslureikninga
og auglýsingar lögmanna. Siðaregl-
ur Flórídafylkis eru mun ýtarlegri
heldur en ABA reglurnar og þar
hafa verið settar strangar reglur um
fjárvörslureikninga (trust
accounts). Þar er m.a. kveðið svo á
að séu fjármunir, sem tilheyra
skjólstæðingi, lagðir inn á vaxta-
berandi reikning þá renni þeir
vextir óskiptir til styrktarsjóðs lög-
mannafélagsins (Flórída Bar
Foundation). Arður sjóðsins er síð-
an notaður í almannaþágu, svo
sem reksturs lögfræðiaðstoðar fyrir
fátæka og námsstyrki fyrir laga-
nema.
Öflun málflutningsréttinda
Veiting málflutningsréttinda
heyrir undir hæstarétt hvers fylkis.
Skilyrði til veitingar réttinda kunna
að vera svolítið mismunandi eftir
fylkjum, en þó eru nokkur atriði
sameiginleg þeim öllum. Í aðalat-
riðum krefjast öll fylki þess að um-
sækjandi hafi lokið þriggja ára
bandarísku laganámi og öðlast
„Juris Doctor” (JD) gráðu. Að auki
16 Lögmannablaðið
Siðareglur lögmanna
verður að telja óaðskilj-
anlegan þátt í menntun
og veitingu starfsréttinda
lögmanna ...