Lögmannablaðið - 01.07.1998, Page 19
19Lögmannablaðið
heimild til eignarskráningar á
reikning í verðbréfamiðstöð til að
tryggja innbyrðis forgangsáhrif
fullnustugerða en réttaráhrif eign-
arskráningar teljast vera frá þeirri
stundu sem lokafærsla hefur átt sér
stað hjá verðbréfamiðstöðinni.
Reikningsyfirlit skulu gefin út
reglulega til eigenda rafbréfa um
þau réttindi sem viðkomandi
reikningshafi er skráður eigandi
að, en um gerð reikninga og út-
gáfu reikningsyfirlita fer eftir þeim
reglum sem ráðherra setur á
grundvelli laganna. Auk þess eru í
lögunum ákvæði um kærumeðferð
komi upp ágreiningur í tilefni af
eignarskráningu í verðbréfamið-
stöðinni, sbr. VI. kafla laganna.
Ráð er fyrir því gert að um slík mál
fjalli ávallt úrskurðarnefnd, sbr.
25. gr. laganna. Heimilt er að bera
úrskurði hennar undir dómstóla
innan 4 vikna frá því að úrskurður
er uppkveðinn. Hér kann oft að
vera um afar sérstæð mál að ræða
s.s. vegna ágreinings um tæknileg
atriði er varða lokafærslur í verð-
bréfamiðstöðinni. Þess vegna er
sett sem skilyrði að slík ágreinings-
mál verða ekki borin undir dóm-
stóla nema að undangengnum úr-
skurði úrskurðarnefndar. Þess má
geta að á öðrum Norðurlöndum
hafa ágreiningsmál vegna eignar-
skráninga í verðbréfamiðstöð verið
afar sjaldgæf, a.m.k. ef miðað er
við umfang og fjölda eignarskrán-
inga.
Í VII. kafla eru ákvæði um
skaðabætur, í VIII., IX. og X. kafla
er fjallað um eftirlit, viðurlög og
gildistöku laganna. Auk ákvæðis til
bráðabirgða I, sem ég vék að í
upphafi, þá kemur skýrt fram í
lokaákvæði laganna (ákvæði til
bráðabirgða II), að ef útgefin eign-
arréttindi yfir verðbréfi eru færð til
verðbréfamiðstöðvar og eignar-
skráð þar, ber að ógilda hið áþreif-
anlega verðbréf. Nánar skal í reglu-
gerð kveða á um innköllun og
eignarskráningar vegna yfirfærslu á
útgefnum verðbréfum í reglugerð
sem ráðherra setur, enda kunna
að nokkru leyti mismunandi sjón-
armið að eiga við eftir því hvort yf-
irfæra eigi t.d. skuldabréf eða
hlutabréf hlutafélaga. Í ákvæðinu
er því enn á ný ítrekað að sömu
réttindi geta ekki verið jafnt í raf-
bréfi sem og verðbréfi.
Ljóst er að rafræn eignarskráning
verðbréfa mun treysta mjög verð-
bréfaviðskipti hér á landi og auka
samkeppnishæfni íslensks verð-
bréfamarkaðar í sívaxandi alþjóð-
legri samkeppni. Brýnt er því að
tæknilegri úrlausn málsins verði
hraðað þannig að eignarskráningar
á grundvelli hinna nýju laga geti
orðið að veruleika sem fyrst.
Ljóst er að rafræn eignar-
skráning verðbréfa mun
treysta mjög verðbréfavið-
skipti hér á landi ...
Sumarhús
L.M.F.Í.
Lögmannafélag Íslands á og rekur tvö sumar-
hús, Lögmannshlíð og Þingbrekku, í Brekku-
skógi í Biskupstungum. Lögmenn (og aðrir)
geta tekið sumarhúsin á leigu viku í senn yfir
sumartímann og skemmri eða lengri tíma yfir
veturinn, t.d. um helgar.
Úthlutað hefur verið öllum vikum í sumar en
tiltölulega auðvelt er að komast í húsin í haust.
Hægt er að panta húsin á skrifstofu L.M.F.Í. í
síma 568-5620.
Frá ritstjóra og ritnefnd:
Aðsendar greinar.
Félagsmenn eru hvattir til að rita í blaðið
greinar, langar eða stuttar, um hugðarefni sín
er tengjast störfum lögmanna eða Lögmannafé-
laginu og lögfræði. Til að auðvelda vinnslu
blaðsins væri æskilegt að aðsendar greinar
kæmu bæði prentuðu formi og á tölvudiskum,
t.d. í Word eða Word-Perfect ritvinnsluformi. Þá
þarf helst ljósmynd af greinarhöfundi að fylgja.