Lögmannablaðið - 01.09.2004, Page 26
Námskeið haustannar
26 3 / 2 0 0 4
•Að leika sér með matinn! –
13. október
Námskeið í gerð græn-
metisrétta þar sem sköpun-
argleði í eldhúsinu ræður
ríkjum. Þátttakendum er skipt niður í smærri hópa
sem hver um sig töfrar fram frábæra rétti úr uppskrift-
ahefti sem fylgir með. Í lokin verður svo sameiginleg
máltíð. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái
góða yfirsýn yfir þær lystisemdir sem jurtaríkið hefur
upp á að bjóða til matargerðar, einnig að örva
sköpunargleðina og löngun til að leika sér með mat-
inn.
Kennarar: Valentína Björnsdóttir, meistarakokkur og
framkvæmdastjóri Móður Náttúru, og
Guðbjörg Gissurardóttir, höfundur mat-
reiðslubókarinnar „Hristist fyrir notkun“.
Staður: Móðir Náttúra v/Gufunesveg.
Tími: Miðvikudagur 13. október kl. 17:30-
22:00.
Verð: Kr. 8.500,- en fyrir félaga í félagsdeild
kr. 7.500,-
•Jónsbók og íslensk réttarsaga –
19. október
Hluti Jónsbókar frá 1281 er enn í gildi og ákvæði
úr henni næstum árlega notuð við dóma. Jónsbók,
með seinni tíma réttarbótum, var nánast einráð sem
veraldleg lög Íslendinga fram á 18. öld. Á nám-
skeiðinu verður texti Jónsbókar notaður til að veita
yfirsýn yfir réttarþróun á Íslandi frá lokum 13. aldar
og fram á 19. öld. Stóridómur frá 1564 verður
einnig skoðaður og ýmsar skipanir aðrar sem þörf
þótti á til hliðar við Jónsbók, auk norsku laga frá
1687 sem lögleidd voru að hluta á 18. öld.
Kennari: Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við
Háskóla Íslands. Hann hefur búið texta
Jónsbókar til útgáfu sem kemur á markað
um miðjan október.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, Rvík.
Tími: Þriðjudagur 19. október kl. 16:00-
19:00.
Verð: Kr. 10.000,- en fyrir félaga í félagsdeild
kr. 8.000,-
• Athugið: Hin nýja útgáfa Jónsbókar verður á
sérstöku tilboðsverði fyrir þátttakendur námskeiðs-
ins.
•Útlendingaréttur – 26. október
Farið verður yfir breytingar á lögum um útlend-
inga, dvalarleyfi, atvinnuleyfi og réttindi pólitískra
flóttamanna á Íslandi. Skoðuð verða mál sem komið
hafa upp. Umræður í lokin.
Kennarar: Hilmar Magnússon hrl. hjá Lögskilum og
Hildur Dungal lögfræðingur hjá Útlend-
ingastofnun.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, Rvík.
Tími: Þriðjudagur 26. október kl. 16:00 -
19:00
Verð: kr. 15.500,- en fyrir félaga í félagsdeild
kr. 12.500,-
•Skaðabótaforritsnámskeið –
3. nóvember
Sl. vetur sóttu um 60 lögmenn námskeið um
skaðabótaforrit SÍT, Sambands íslenskra tryggingafé-
laga, sem það lét útbúa til útreiknings á bótum
vegna líkamstjóna sem gera ber upp samkvæmt
reglum skaðabótaréttarins. Nú hefur verið ákveðið
að bjóða upp á eitt námskeið á haustönn fyrir lög-
menn sem misstu af því þá. Námskeiðið er haldið í
samstarfi við SÍT og tölvufyrirtækið Vigor, sem hann-
aði forritið.
Á námskeiðinu verður farið yfir viðmót og upp-
bygginu kerfisins, ásamt viðhaldi grunnskráa sem
kerfið byggir útreikninga sína á, s.s. töflur yfir vísi-
tölur og framfærslu. Farið verður yfir skráningu ólíkra
mála og þátttakendur vinna raunhæf verkefni. Þátt-
takendur fá í hendur námskeiðsgögn sem innihalda
m.a. kerfishandbók og forritið sjálft.
• Athugið: Þátttakendur verða að vera minnst sjö
til að námskeiðið verði haldið.
Kennarar: Ólafur Þórðarson kerfisfræðingur og Vil-
borg Hjartardóttir þjónustufulltrúi.
Staður: Kennslustofa TölvuMynda, Holtasmára 1,
Kópavogi. 8.hæð.
Tími: Miðvikudagur 3. nóvember kl. 13:00-
16:30
Verð: Kr. 30.000,- en fyrir félaga í félagsdeild
LMFÍ kr. 28.000,-
Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620 eða með tölvupósti á netfangið: eyrun@lmfi.is