Lögmannablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 22

Lögmannablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 22
22 < LÖGMANNABLAÐIÐ 3 / 2009 Innan félagsdeildar LMFÍ rúmast blómlegt félagslíf lögmanna. Á öðrum stað í blaðinu segir frá golfmótum sumarsins en auk þess eru haldin námskeið, farið í gönguferðir um fjöll og firnindi, spilaður fótbolti, tefld skák og gert hvaðeina sem frjóum félags- mönnum dettur í hug. Eftir vel heppnaða gönguferð á Heklu í sumar hafa margir verið að velta fyrir sér hvert gengið verði sumarið 2010. Nú er verið að ræða um drottningu fjallanna, sjálfa Herðubreið og væri gaman að fá við- brögð áhugasamra við hugmyndinni. Bókasafn Það lætur nærri að bókasafn LMFÍ sé notað af að minnsta kosti einum lögmanni á dag árið um kring. Bóka- safnið er opið virka daga frá kl. 9:00- 17:00 en lögmenn geta einnig fengið lánaðan lykil til að nota safnið á öðrum tímum. Vegna efnahags kreppunnar hefur lítið sem ekkert verið keypt inn á safnið þetta árið og eins höfum við lokað fyrir rafrænan aðgang að Ufr og Karnov tímabundið. Bent skal á að hægt er að kaupa einstakar greinar Ufr og Karnov með „pay per view“ aðgangi en einnig eigum við flesta árganga á prentuðu formi. Aðstaðan til fræðistarfa á bókasafninu er eins og best verður á kosið. Bókakostur safnsins er inni á www.gegnir.is svo það er hægt að skoða bókakostinn áður en komið er í safnið. Námskeið Á haustmisseri er stefnt að því að halda tíu námskeið fyrir lögmenn en þar af eru átta faglegs eðlis. Tveimur þeirra er þegar lokið en í ágústlok var námskeið í notkun GPS – staðsetningartækja. Haraldur Örn Ólafsson opnaði augu nokkurra fróðleiksfúsra um þessi undratæki. Lögmaður LOGOS í London, Jas Bains, hélt námskeið í byrjun september um „English Law Loan Facility Agreement“ þar sem þátttakendur voru um 40 talsins. Undirbúningur annarra námskeiða á haustönn hefur gengið vel eins og venjulega en lögmenn eru einkar jákvæðir gagnvart því að miðla af sérþekkingu sinni meðal kollega sinna. Eru þeim færðar þakkir fyrir það. Í október verður námskeið í matsgerðum og sönnunargögnum með Sigurði Tómasi Magnússyni og áfrýjun og flutningi einkamáls fyrir Hæstarétti með Hákoni Árnasyni og Garðari Gíslasyni. Í nóvember verður súkku- laðismökkunar námskeið með Viggó Viggóssyni meistarakokki en einnig verða þrjú fagleg námskeið; samruni, yfirtaka og aðrar umbreytingar á rekstrarformi út frá skattareglum með Garðari Gíslasyni, veðréttur og þing- lýsingar með Árna Á. Árnasyni og Eyvindi G. Gunnars syni og neytenda- réttur með Ásu Ólafsdóttur og Eiríki Jónssyni. Á sjálfan fullveldis daginn verður námskeið í skiptastjórn þrotabúa með Kristni Bjarnasyni og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni og viku síðar verður námskeið um efnið og formið í einkamálum, hvenær og hvernig frávísun kæmi til álita með Einari Karli Hallvarðssyni. 61% sótt námskeið sl. tvö ár Í nýafstaðinni könnun Lögmanna- blaðsins, og kynnt er á öðrum stað í blaðinu, voru lögmenn spurðir að því hvort þeir hefðu sótt námskeið LMFÍ sl. tvö ár. 65% lögmanna á stofum svöruðu því játandi og 55% innanhúslögmanna, alls 61%. Þeir sem svöruðu játandi gafst kostur á að segja sitt álit á framboði námskeiða en 87% lögmanna á stofum og 77% innanhúslögmanna sögðu framboð námskeiða vera mikið eða mátulega mikið. Einungis 8% sögðu framboð námskeiða vera lítið. Við getum því vel við unað en þess ber að geta að eftir námskeið er þátttakendum send gæða- könnun og þeir einnig beðnir um að koma með hugmyndir. Stjórn náms- sjóðs hittist nokkrum sinnum yfir árið og ákveður hvaða námskeið skuli halda og því er ætíð tekið fagnandi að fá hugmyndir að nýjum námskeiðum. Fréttir frá félagsdeild Eyrún Ingadóttir Félagslíf og fjallamennska

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.