Vísbending


Vísbending - 21.12.2015, Síða 42

Vísbending - 21.12.2015, Síða 42
42 hóranir, fyllirí og grimmd fylgdi þeim eins og skugginn, og eru til nóg rit samtíða annálaritara, sem sanna þetta.“ Víkingar í hinni víðtækari merkingu orðsins voru oftar nefndir á nafn í íslenskum ritum þegar leið á 20. öldina, en flatneskjan sem nú ríkir í allri opinberri umfjöllun um víkingafortíð Íslendinga kom þó varla til sögu fyrr en á allra síðustu áratugum aldarinnar og í byrjun þessarar. Heita má að víkingar hafi verið aukapersónur í flestu sem ritað var um Íslandssöguna fram að því þar á meðal sögukennslubókum skólanna. Fornkappar en ekki víkingar Víkingar koma fyrir í allmörgum íslenskum bókmenntaverkum 12. og 13. aldar, þar sem sögusviðið er landnámsöld og tíminn fram að kristnitöku (Íslendingasögur og konungasögur) eða löngu fyrr (fornaldarsögur). Allur þorri þeirra er nafnlausir menn og andlitslausir, oftar er fjallað um þá sem hóp en einstaklinga; höfundar sagnanna hafa gripið til „staðalmyndar“ frekar en að leggjast í flókna persónusköpun. Enginn af köppum Íslendingasagna er sagður víkingur. Ekki Gunnlaugur ormstunga, Gísli Súrsson, Grettir Ásmundarson, Björn Hítdælakappi, hvorki Bolli né Kjartan Ólafsson í Laxdælu, ekki Víga-Styr, Hrafnkell Freysgoði, hvorki Gunnar á Hlíðarenda né Njáll á Bergþórshvoli, Finnbogi rammi eða Víga-Glúmur, Leifur heppni eða Þorfinnur karlsefni og ekki Snorri goði. Enn síður eru kvenskörungar eins og Guðrún Ósvífursdóttir, Guðríður Þorbjarnardóttir, eða Hallgerður og Bergþóra í Njáls sögu tengdar víkingum í fornsögunum. Og ekki foringjar kristnitökunnar árið 1000 samkvæmt Ara fróða, Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason eða lögsögumaðurinn snjalli sem lagðist undir feldinn, Þorgeir Ljósvetningagoði. Meira að segja sjálfur Egill Skallgrímsson, sem var ekki nema sex ára gamall þegar móðir hans kveður hann „víkingsefni“, er aldrei nefndur víkingur í Egils sögu. Hann er þó stundum í slagtogi við víkingaflokka og ekki er framferði hans mikið frábrugðið þeirra nema síður sé. Í Landnámabók, sem rituð var á 12. og 13. öld, eru víkingar ekki fyrirferðarmiklir. Heitið er þar notað um innan við 5% hinna rúmlega 400 landnámsmanna sem nafngreindir eru. Fjöldinn er til marks um hvaða hugmyndir lærðir Íslendingar á ritunartíma bókarinnar hafa gert sér eða viljað sýna um hlut víkinga í landnáminu. Og þarf svo sem ekki að koma á óvart. Má vel eiga við rök að styðjast, þótt ekki sé Landnámabók lengur talin traust heimild um landnámsöldina. Varla hefur Ísland á þeim tíma verið spennandi staður fyrir víkinga sem vildu rupla og ræna: óbyggðir úr alfaraleið nyrst í hafi þar sem ekkert fémætt var að finna. Ýmislegt forvitnilegt er sagt um víkinga í ritinu. Ölvir barnakarl, sem sagður er afi tveggja landnámsmanna, fær sérstakt hrós. „Hann lét eigi henda börn á spjótaoddum, sem þá var víkingum títt.“ Sögur af norrænum bardagamönnum sem köstuðu börnum á loft og gripu á spjótaoddum mátti finna í víðlesnu ensku sagnariti frá 12. öld eftir Henry af Huntingdon. Þaðan gæti hugmyndin verið komin til Íslands. Landnámsmaðurinn Þorbjörn bitra er sagður „víkingur og illmenni.“ Um víkinginn Þorsteinn Ásgrímsson er sagt að fyrir Íslandsferðina hafi hann brennt bæ í Þrumu í Noregi með hjúum öllum en rænt lausafé. Um víkinginn Hella-Björn Herfinnsson er sagt að hann hafi siglt til Íslands með alskjölduðu skipi; síðan hafi hann verið kallaður Skjalda-Björn. Hann hefur þá viljað vera viðbúinn hinu versta á leiðinni. Þetta hefur verið talið óvenjulegt úr því Björn fékk viðurnefni af skjöldunum. Víkingar gátu líka verið ógn við landnámsmenn á leið til Íslands. Þórir nokkur snepill var kominn á haf út þegar víkingar birtast skyndilega. Skipverji hans einn sýnir það hugrekki að höggva til stafnbúa víkinganna með stýrissveif skipsins. Forðuðu víkingar sér þá á brott og komst Þórir heilu og höldnu til Íslands með fólk sitt. Ekki bendir þessi frásögn til þess að víkingar hafi verið álitnir sérlega hugrakkir menn, frekar vandræðamenn sem gefist upp við minnsta mótbyr. Bókfellsvíkingar? Velta má fyrir sér hvað höfundar Landnámabókar og sagnanna, kristnir munkar og lærðir menn í höfðingjastétt, vissu fyrir víst um fornvíkinga sem uppi voru tvö, þrjú eða fjögur hundruð árum áður en þeir fæddust? Hvað gátu þeir vitað? Hverjar voru heimildir þeirra? Um innanlandsviðburði var í upphafi eingöngu hægt að styðjast við arfsagnir. Kannski var hægt að leita í sjóð sagna og ljóða sem lifðu og mótuðust á vörum manna og gengið höfðu á milli kynslóða. En eðli málsins samkvæmt voru þetta ótraustar heimildir. Atburðirnir höfðu gerst mörg hundruð árum fyrr. Hinn sannsögulegi kjarni þeirra, hafi hann yfirleitt verið fyrir hendi, gat verið týndur þegar farið var að skrá sagnirnar eða kvæðin. Engin leið var að skera úr um hvað var byggt á staðreyndum og hvað var tilbúningur. Lærdómsmenn miðalda gerðu að vísu greinarmun á lygisögum sem eingöngu voru til skemmtunar, fabulae, og sagnfræðilegum verkum, historiae. En heimildarýni þeirra var allt önnur en nútímamanna. Á miðöldum var til dæmis talið gott og gilt að álykta um forsögulegar persónur út frá örnefnum. Ættartölur voru settar saman út frá tilbúnum forsendum, en gjarnan af miklum lærdómi. Munur þess sem gerðist og hefði getað gerst var ekki alltaf skýr. Kristin trú og lærdómur mótuðu líka sjónarmið höfundanna; sögulegir atburðir voru gjarnan endurskapaðir og túlkaðir í ljósi kristinna lífsviðhorfa. Teikning úr Frakklandssögu Guizot frá 1879 sem sýnir árás norrænna víkinga á París. Þeir líkjast helst frumstæðum hellisbúum.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.