Hagskýrslur um skólamál - 01.01.1923, Blaðsíða 27
Barnafræðsla 1916 20
25
með lögunum frá 1919 um skipun barnakennara og laun þeirra
voru laun kennaranna bætt mikið og var sú launabót látin ná til
þeirra kennara, sem ráðnir höfðu verið til kenslu veturinn 1919 — 20.
Um hina einstöku kostnaðarliði virðist annars ekki þörf frek-
ari skýringa. Aðeins skal þess getið, að þar sem komið hefur verið
upp skólahúsum, eru vextir og afborganir af lánum, sem tekin hafa
verið til þeirra, venjulega fært til útgjalda á skólareikningunum og
koma þau útgjöld þá í stað húsaleigu, en ekki húsaleiga tilfærð,
nema þar sem skólarnir búa til leigu.
Ef kostnaðinum er jafnað niður á tölu barnanna, sem kenslu
hafa notið1), hefur hann orðið að meðaltali á hvert barn á ári
hverju síðan fræðslulögin gengu í gildi svo sem hjer segir, bæði í
heild sinni og sjerstaklega í föstum skólum, farskólum og við eftir-
litskenslu.
Fnstir Far- ERirlits- Barnafræðsla
skólar skólar kensla nlls
1908-09 ... .. kr. 35 85 kr. 8 27 kr. 6.88 kr. 19.89
1909-10 ... .. — 35 73 — 14 42 — 7.63 — 23.72
1910-11 ... .. — 35.72 — 14.75 — 7.58 - 23.90
1911 12 ... .. — 37.78 — 15 32 — 7.63 — 25.10
1912—13 ... .. — 38.14 — 14.88 — 7.69 — 25.18
1913-14 ... .. - 39.62 — 15.64 — 6.29 — 26.55
1914—15 ... .. — 42 65 — 16.15 — 6.49 - 28.08
1915—16 ... .. — 51.99 — 20.01 — 5 04 — 35.02
1916-17 ... .. - 62.36 — 22.08 3.31 — 42.06
1917—18 ... .. — 60.69 — 23 28 — 10.60 — 42.67
1918-19 ... .. — 77.84 — 28.42 — 11.74 — 51.81
1919-20 ... .. — 177.04 - 47 67 — 13.24 — 117.80
Við samanburð á kostnaðinum á hvern nemenda í föstum skól-
um og farskólum er auðvitað þess að gæta, að námstimi barnanna
er yfirleitt miklu styttri í farskólunum heldur en í föstu skólunum.
Annars er kostnaðurinn á barn líka nokkuð mismunandi í föstu
skólunum. Pegar þeim er skift i 5 flokka eftir aðsetri þeirra eins
og gert er í yfirlitstöflunum i skýrslum þessum, þá hefur kostnað-
urinn á barn í hverjum flokki verið svo sem hjer segir fyrsta árið
eftir að fræðslulögin gengu í gildi og 5 síðustu árin, sem skýrslur
þessar ná yfir.
1) Tala bnrnauna i Landakotsskólanum i Reykkjavik er |iar ekki tekin með vegna
þess að við liann er enginn kostnaður tilfærður.